Læknablaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ
219
Loifur Jónsson
FRÁ HEINOIA
Bærinn Heinola í Finnlandi myndi um
fátt teljast merkur, ef ekki væri þar stað-
sett rheumamiðja (center) landsins, eða
Reumasáátiön Sairaala á þarlenzku.
í maí 1973 dvaldist ég þar um skeið
og hafði til þess hlotið styrk af NATO-
gulli, og fylgja hér nokkrir þankar þar af
spunnir.
NOKKUR ORÐ UM
RHEUMATOID ARTHRIT
Lengi var talið, að sjúkdómurinn RA
væri bundinn hinum tempruðu beltum
jarðar, en eftir því sem tímar hafa liðið
cg reynzt hefur mögulegt að gera sam-
bærilegar rannsóknir á tíðni hans í fleiri
löndum, hefur komið í Ijós, að hann herj-
ar á allar þjóðir og sennilegt virðist, að
tíðni hans sé hin sama um allan heim.
Hinu verður ekki neitað, að sjúkdómur-
inn er misábsrandi á hinum ýmsu breidd-
arstigum og er það komið undir því, hve
mannfólkið í ólíkum löndum er misvinnu-
gefið, misjafnlega kvartsárt o. s. frv.
Talið er, að þar sem flest kurl komi
til grafar, sé 1/2% af íólkinu haldið sjúk-
dómi þessum með öllum einkennum hans,
serologiskum, subjectivum og objectivum.
Þar að auki hafa 5% miður dæmigerð ein-
kenni, annaðhvort væg, óvenjuleg eða