Læknablaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 18
190
LÆKNABLAÐIÐ
TABLE 14
Age and sex distribution for SAH where cause autopsy, present series. was not found at
Negative autopsy 0-9 10- 20- 30- 40- 50- 60- 70- Total
Males 2 0 0 1 1 1 3 1 9
Females 1 0 1 0 2 1 0 1 6
Total 3 0 1 1 3 2 3 2 15
(36.0%), þar af 2 með nokkra vinnugetu,
og 2 voru rúmfastir (8.0%). Algjörir ör-
yrkjar voru því 9 (36.0%).
SKIL
Orsakir primer SAH í hinum ýmsu rann-
sóknum, sem gerðar hafa verið, eru nokk-
uð mismunandi, og stafar bað vafalaust
af því, að greining, val efniviðarins og
rannsóknaraðferðir hafa verið mjög mis-
munandi í þeim rannsóknum.
Walton10 fann við krufningu á 70 sjúkl-
ingum með SAH, en í rannsókn hans voru
312 sjúklingar, aneurysma hjá 83.2%,
AVM 3.4% og hvorki aneurysma eða AVM
hjá 13.4%. Bull4 taldi sig hafa fullrann-
sakað með heilaæðamyndatökum 212
sjúklinga af 250, sem höfðu SAH, og var
orsökin aneurysma í 59.4%, AVM í 7.1%
og óþekkt orsök í 33.5%. Broman og Nor-
lén3 fundu, að af 75 sjúklingum, sem gerð
var heilaæðamyndataka á, höfðu aneur-
ysma 38 sjúklingar (50.7%), AVM 6 sjúkl-
ingar (8.0%) og hjá 31 sjúklingi (41.3%)
fannst engin skýring á blæðingunni.
Nokkrir sjúklinganna í rannsókn þeirra
voru taldir hafa fengið SAH vegna blóð-
þynningarmeðferðar.
í rannsókn Pakarinen,7 sem tók til 554
sjúklinga með SAH, kom í ljós, að af öll-
um hópnum, þar með taldir 77 (13.9%),
sem ekki höfðu verið rannsakaðir með
heilaæðamyndatökum eða krufningu,
höfðu 65.5% aneurysma, 1.6% AVM, en
19% höfðu hvorki AVM né aneurysma.
Hins vegar höfðu 76% aneurysma, 1.9%
AVM og óþekkt orsök var hjá 22% þeirra,
sem rannsakaðir höfðu verið með heila-
æðamyndatöku og/eða krufningu. Af þeim
212 sjúklingum, sem eingöngu höfðu verið
rannsakaðir með heilaæðamyndatöku,
voru 67.9% með aneurysma, 3,8% með
AVM, en engin skýring fannst á blæðing-
unni hjá 28.3%. Af þeim 76 sjúklingum
í rannsókn Pakarinen,7 sem voru krufnir
og höfðu dáið áður en þeir komust í
sjúkrahús, voru 79.0% með aneurysma,
1.3% með AVM, en 19.7% höfðu hvorki
aneurysma eða AVM. Richardson8 rann-
sakaði 3042 sjúklinga með heilaæðamynda-
töku á 10 ára tímabili og var óþekkt orsök
hjá 19.9% þeirra.
TABLE 15
Mortality during first and subsequent haemorrhages in 164 patients with
non-differentiated SAH in present series.
Number of recurrences Number of patients Males Females Males Dead Females Dead percentage
None 61 39 38 19 57.00
1-2 29 28 14 18 56.14
3-5 4 2 4 1 83.33
6 and more 0 1 0 0 0.00
Total 94 70 56 38