Læknablaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 44
208
LÆKNABLAÐIÐ
loknu voru flutt stutt erindi um þjónustu
við aldraða í Reykjavík af þeim Geir-
þrúði Hildi Bernhöft ellimálafulltrúa
Reykjavíkurborgar og Alfreð Gíslasyni
yfirlækni. Að þessu loknu voru umræður
og stýrði Tómas Á. Jónasson þeim um-
ræðum, en síðasti þátturinn var í formi
hringborðsumræðna með þátttöku alira
framsögumanna, auk þeirra prof. Fergu-
son Anderson og dr. Per Hansen ásamt
Þór Halldórssyni, yfirlækni.
Eins og sjá má á ofangreindri dagskrá,
vcru að þessu sinni 3 erlendir fyrirlesarar
á námskeiðinu. Þetta þótti æskilegt, þar
sem hér á landi hefur ekki verið mikið
rætt um ellisjúkdóma sem slíka og má
telja, að val þessara fyrirlesara hafi tek-
ist vel. Þátttakendur námskeiðs virtust
yfirleitt fremur ánægðir með þátttöku
sína að loknu námskeiði, en að þessu sinni
var ekki gerð formleg könnun á áliti
þátttakenda. Þess má geta, að námskeiðs-
þátttakendur nutu meðan námskeiðið stóð
gestrisni lyfjafirmans Sandoz, heilbrigðis-
ráðuneytisins og borgarstjórnar Reykja-
víkur.
Námskeið í læknisfræðilegum aðferðum og tölfræði í
Norræna húsinu 12.-15. sept. 1973
Námskeið um þetta efni var haldið í
Norræna húsinu fyrir réttum tveim ár-
um, og þótti takast mjög vel. Fyrir at-
beina dr. Povl Riis tókst að fá dönsku
læknana til að koma hingað aftur og end-
urtaka námskeiðið, þó með lítils háttar
breytingum og einum kennara í viðbót,
svo sem sést í dagskránni hér á eftir.
Námskeið þetta var haldið í samvinnu
við Norræna húsið og í húsakynnum þess,
en allgóður styrkur fékkst frá „Nordisk
sommerskole for forskeruddannelse“.
Kennarar námskeiðsins voru eftirfar-
andi: Dr. med. Björn Andersen, dr. Olav
Bonnevie, dr. med. Erik Juhl, dr. med.
Povl Riis og dr. med. Henrik R. Wulff.
Efni námskeiðsins var sem hér segir:
Miðvikudaginn 12. sept.: Det kontroller-
ede kliniske forsög, — Povl Riis; Hypo-
tesetesting, — Björn Andersen; Estima-
tion, — Björn Andersen og Den epidemio-
logiske metode, — Olav Bonnevie.
Fimmtudagur 13. sept.: Beskrivelse af
fordelingskurver, — Henrik R. Wulff; 2x2
tabellen, — Erik Juhl; Registrering af
data og elektronisk databehandling, —
Erik Juhl. Síðan voru dæmi, sem allir
kennararnir hjálpuðu þátttakendum við
að leysa.
Föstudagur 14. sept.: Non-parametrisk
statistik, — Henrik R. Wulff; Korrelation
og regression, — Björn Andersen; Over-
levelsestabeller, — Olav Bonnevie og síð-
an dæmi.
Laugardagur 15. sept.: Statistiske over-
vejelser ved igangsættelse af projekt, —
Björn Andersen; Formelle grundprincipp-
er i klinisk forskning, — Henrik R. Wulff;
Kontrollerede kliniske undersögelser
(gruppearbejde), — stjórnað af Povl Riis.
Þátttakendur voru 26, þar af 5 stúdent-
ar, en flestir hinna ungir læknar, á fyrstu
árum framhaldsnáms. Það var einróma
álit þátttakenda, að námskeið þetta hefði
verið bæði gagnlegt og skemmtilegt og
virtust tungumálaerfiðleikar öllu minni
en flestir höfðu búist við.