Læknablaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ
207
heimsókn sinni hingað til Reykjavíkur
hafð dr. Povl Riis meðferðis bréf, sem
danska heilbrigðisstjórnin hafði skrifað
honum svohljóðandi: („Med henvisning til
Deres skrivelser af 22. Marts, 1973, om
Vestmannaö-stipendier, skal man — efter
brevveksling med Specialistnævnet cg
Indenrigsministeriet — meddele, at der i
indeværende og de to fölgende finansár,
hvert ár kan optages 1-2 islandske læger
pá speciallægekurser her i landet, sáfremt
dette kan ske uden oprettelse af yder-
ligere hold“). Stjórn L.f. hefur þegar
þakkað dr. Riis þetta framlag hans og fal-
ið námskeiðsnefnd að hafa milligöngu um
væntanlega þátttöku íslenzkra lækna í
þessum námskeiðum. Búast má við, að
framgangur þessa máls næstu árin mótist
mest af því, hvort íslenzkir læknar sýni
áhuga á þátttöku í þessum námskeiðum
eða ekki.
Námskeið íyrir héraðslækna og heimilislækna í Domus
Medica 3.-6. sept. 1973
Svo sem venja hefur verið flest undan-
farin ár, var haldið 4 daga námskeið fyrir
héraðslækna og heimilislækna og var þátt-
taka að þessu sinni óvanalega góð. Voru
flestir læknarnir starfandi utan Reykja-
víkur. Einnig sátu nokkrir stúdentar hluta
námskeiðsins.
Efni 1. dags námskeiðsins voru tvö. Var
hið fyrra heilbrigðisskýrslur og notkun
þeirra í áætlanagerð í heilbrigðismálum.
Fundarstjóri þessa fundar var Guðjón
Magnússon, en framsögumenn og þátttak-
endur í umræðum voru: Benedikt Tómas-
son skólayfirlæknir, Helgi Sigvaldason
tölfræðingur, Kjartan Jóhannsson verk-
íræðingur, Ólafur Ólafsson landlæknir,
og Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri.
Síðari hluta dags var rætt um trygg-
ingamál og stýrði þeim fundi Páll Sig-
urðsson ráðuneytisstjóri, en framsögu-
menn voru Gunnar J. Möller formaður
tryggingaráðs, Stefán Guðnason trygg-
ingayfirlæknir, og Eggert Steinþórsson
trúnaðarlæknir Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur. Auk þess sátu fundinn og tóku þátt í
umræðum starfsmenn Tryggingastofnunar
ríkisins og Jón Guðgeirsson trygginga-
læknir.
Annan dag námskeiðsins var rætt um
lyf, sem notuð eru við meðferð hjarta-
sjúkdóma og háþrýstings. Fundarstjóri
var Árni Kristinsson og hafði hann undir-
búið efni dagsins, en með honum voru
kennarar: Einar Baldvinsson, Magnús
Karl Pétursson, Guðmundur Oddsson og
Kjartan Pálsson, en rætt var um meðferð
hjartabilunar, hjartakveisu, háþrýstings,
hárrar blóðfitu og hjartsláttartruflana.
Seinni tveir dagar námskeiðsins voru
helgaðir ellisjúkdómum og var efni fyrra
morgunsins blóðrásartruflanir í heilaæð-
um og geðtruflanir hjá öldruðum. Fundar-
stjóri var Snorri Ólafsson, en framsögu-
menn yfirlæknarnir Gunnar Guðmunds-
son, Karl Strand og Haukur Þórðarson.
Seinni hluta dagsins stýrði fundi Páll
Ásmundsson. Var þá rætt um þvagfæra-
sýkingu, þvagtregðu og þvaglos hjá öldr-
uðum og voru þar framsögumenn Ólafur
Örn Arnarson og Þór Halldórsson. Síðan
flutti prof. W. Ferguson Anderson frá
Glasgow erindi, er hann nefndi: Diagnosis
in the elderly. Ráðgert er, að erindi þetta
verði birt í Læknablaðinu. Síðasta dag
námskeiðsins voru rædd tvö efni á morg-
unfundinum, en þeim fundi stýrði Emil
Als. Dr. med Per Hansen frá Stavanger
flutrti erindi, er hann nefndi: Hjertesyg-
dommer hos ældre og gamle, en að því
loknu talaði Bragi Guðmundsson um
vandamál frá fótum:,,Hvar skórinn krepp-
ir“. Síðasti hluti námskeiðsins, eftir há-
degi 6. sept., var jafnframt hluti af dag-
skrá læknaþings, sem sett var af for-
manni L.Í., Snorra P. Snorrasyni, kl. 2.
Að því loknu flutti erindi dr. med J.
Schervin frá Árósum um Tilrættelægg-
else af forsorgen for de ældre, en að því