Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 58
216 LÆKNABLAÐIÐ BRép tiL BLacísins 7. júlí 1973 Þrátt fyrir steikjandi sólskin og kæf- andi hita, hef ég hugsað mér að senda blaðinu nokkrar hugrenningar um heil- brigðismál, og þá sérstaklega menmun lækna, ef það mætti verða til að glæða umræðu og skrif um þessi mál hér í vett- vangi læknasamtakanna. Möguleikar lækna til framhalds- og viðhaldsmenntunar eru án efa mjög mis- jafnir. Hafa án efa ekki margir læknar lifað það, sem kollega minn Örn Bjarna- son og undirritaður, hafa reynt á s.l. vori. Okkur barst ekki vitneskja um það, að við værum skráðir sem þátttakendur í 6 vikna námskeiði á vegum Osló Háskóla fyrr en í lok maímánaðar, eða skömmu áður en átta mánaða námi lauk við Há- skólann í Bristol, Englandi. Það er því sambland furðu og ánægju að dvelja hér við nám í Osló, án þess að vita eiginlega af hverju eða til hvers. Sjálfur hafði ég ekki sótt um þetta námskeið, fékk blátt áfram skilaboð um, að ég gæti fengið styrk til dvalarinnar hér, og var því að- eins um tvo kosti að velja, hrökkva eða stökkva. Skeytasendingar höfðu farið fram um styrkveitinguna milli Noregs, fslands og Danmerkur frá því í marz, þó að við værum þar ekki til kvaddir, svo að erfitt var annað en taka þessu kosta- boði, þó að skammur tími væri til stefnu. En styrkveiting þessi sýnir glög'glega, hversu handahófskennd öll framhalds- og viðhaldsmenntun lækna er. Það er því ástæða til að taka til gagn- gerrar umræðu framhalds- og viðhalds- menntun lækna. Læknafélag íslands og Félag íslenzkra lækna í Bretlandi hafa gert margar og góðar tillögur um þetta mál, þó einkum hinir ungu læknar í Bret- landi, enda ákveðinna og skipulegra átaka virkilega þörf á þessu sviði. Víðast hvar í Evrópu hefur menntun lækna fastmótað form og eru Austur-Evrópuþjóðirnar þar í broddi fylkingar, en meðal þeirra er öll menntun heilbrigðisstétta hluti heilbrigð- isþjónustunnar sjálfrar, sem sennilega er veigamesta atriði framhalds- og viðhalds- menntunar lækna. Um læknamenntunina sjálfa gætir nokkru öðru máli. Þar sem heilbrigðisþjónustan er þjóð- nýtt (socialized) telja margir eðlilegt að líta á hana sem: 1. Heilsuvernd (public health) 2. Lækningar (curative medicine) 3. Menntun heilbrigðisstétta (medical education) Með þessu skipulagi verður menntun lækna óaðskiljanlegur hluti allrar starf- semi heilbrigðisþjónustunnar og því t. d. viðhaldsmenntunin ekki aðeins æskileg heldur beinlínis nauðsyn og skylda. Læknadeild Háskóla íslands þarf því að vera mjög nátengd heilbrigðisþjónustu landsmanna, ef menntun lækna á að mæta þörfum þjóðfélagsins og þegnanna. í lög- um þeim, sem taka eiga gildi 1. janúar n.k., er heilbrigðisþjónusta skilgreind sem: 1) heilsugæzla 2) heilbrigðiseftirlit 3) lækningarannsóknir 4) lækningar á sjúkrahúsum 5) endurhæfingarstarfsemi. Þar er því ekki gert ráð fyrir ofangreindu skipulagi, þó að lögin geri í rauninni ráð fyrir þjóðnýttri heilbrigðisþjónustu. Þar sem ríkisvaldið hefur tekið að sér að veita cg ábyrgjast þegnunum ,,þá full- komnustu heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tíma eru tök á að veita“ verður framhalds- og viðhaldsmenntun lækna óhjákvæmilega hlutverk þess, þar eð ekki er hægt að tryggja „góða“ heilbrigðis- þjónustu nema með háum menntunar- staðli allra heilbrigðisstétta (quality). Stéttarfélag lækna hefur hér veigamiklu hlutverki að gegna sem ráðgefandi og gagnrýnandi aðili, en ekki nema að litlu leyti sem framkvæmdaraðili. Það er í rauninni óþarft að minna á það handahóf, sem gætt hefur á mörg- um gengnum áratugum um framhalds-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.