Læknablaðið - 01.09.1976, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ
141
cofporoiion
(or APNEA
Þrýstingsstýrð öndunarvél, en nokkrar slíkar eru í notkun hér á landi.
unar og útöndunar er einn á móti tveimur.
Talið er, að heilbrigð lungu þoli a. m. k.
70 cm vatnsþrýsting. Oft þarf að nota mik-
inn þrýsting til að yfirvinna mótstöðu í
öndunarvegum og virðist ekki koma að sök,
þar eð meiri hluti þrýstingsins fer í að
yfirvinna mótstöðuna og aðeins hluti hefur
áhrif á sjálfan lungnavefinn og aðeins í
hluta af öndunarsveiflunni. Þegar um er að
ræða stóra hluta lungnanna, sem ekki eru
starfhæfir, getur mjög hár þrýstingur í
hinum starfandi hluta orsakað pneumo-
thorax eða emphysema í mediastinum, en
sjaldgæft er, að slíkt komi fyrir.
Notkun neikvæðs þrýstings við útöndun
minnkar meðalþrýsting í brjóstholi. Hins
vegar hefur komið í ljós, að slíkt stuðlar
að samanfalli á litlum berkjum og hefur í
för með sér atelectasis og shunt og er yfir-
leitt ekki notað lengur.
HVERNIG ÖNDUNARVÉLAR
ERU NOTAÐAR
Öndunarvélar eru mikið notaðar við
svæfingar, einkum við langvarandi skurð-
aðgerðir, svo sem við aðgerðir á hjarta og
æðum, heilaaðgerðir og kviðarholsaðgerð-
ir (12). Þannig verður öndun jafnari en
ella og sá, sem svæfir, hefur þá báðar
hendur lausar til lyfjagjafa og þess háttar.
Bezt er að nota vélar, sem blása ákveðnu
magni á hverri mínútu (volume cycled
respiration).
Notkun öndunarvéla við meðferð lungna-
sjúkdóma er algeng vestanhafs. Eru vél-
arnar einkum notaðar til úðunar lyfja og
rakagjafar og sem hjálpartæki við öndun-
aræfingar (22). Víða eru sérstakar deildir
með sérmenntuðu starfsfólki, sem annast
þessa þjónustu eftir fyrirsögn lækna.
Þá hefur aukizt mjög notkun öndunar-
véla í fyrirbyggjandi augnamiði hjá sjúkl-
ingum, sem reynslan hefur sýnt, að senni-
lega fái öndunarbilun, svo sem eftir síórar
skurðaðgerðir, slys eða lost, sérlega hjá
þeim, sem eru veilir fyrir vegna hjarta-
eða lungnasjúkdóma eða eru með offitu.
í þessu sambandi má nefna, að af sjúkl-