Læknablaðið - 15.02.1980, Side 35
LÆKNABLADID
17
12. Shields, T. W„ Fox, R. T., Lees, Wm. M.:
Changing Role of Surgery in the Treatment of
Pulmonary Tuberculosis. Arch. Surg., 100: 363-
366, 1970.
13. Sigurðsson, Sigurður: Um berklaveiki á fslandi.
Læknablaðið, 62: 3-50, 1976.
14. Þórarinsson, Hjalti: Skurðaðgerðir við lungna-
berklum. Læknablaðið 1960.44: 100-117, 1960.
15. Þórarinsson, Hjalti: Skurðaðgerðir við tubercu-
losis pulmonum. Læknablaðið, 39: 33-55, 1955.
16. Þórarinsson, Hjalti: Surgery for Pulmonary Tu-
berculosis in lceland. Acta. Chir. Scand., 124:
261-269, 1962.
LEIÐBEININGAR FYRIR GREINAHÖFUNDA
EFNI
Efni, sem óskað er birtingar á, skal sent í tvíriti
til ritstjórnar Læknablaðsins, Domus Medica,
Reykjavík.
Skulu pví fylgja upplýsingar um vinnustað
og heimilisfang höfundar (höfunda).
Læknablaðið birtir vísindalegar greinar
um öll svið læknisfræðinnar, hvort sem þær
eru byggðar á eigin athugunum og rannsókn-
um eða um er að ræða samantekt á reynslu
annarra, bæði yfi.rlits- og fræðslugreinar.
Blaðið birtir efni er varðar málefni L. í.,
svæða- og sérfélaga og um hvert pað efni
annað, sem tengt er hagsmuna- og áhugamál-
um lækna.
Þá eru og birtar stuttar athugasemdir og
lesendabréf.
GREINAR
Greinar skulu settar upp á skýran og ljósan
hátt.
Creinartitill skal vera stuttur, en skýr, og
lýsa viðfangsefni greinarinnar. Stundum er
betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðaltitill pá
eitt eða fleiri lykilorð sem nauðsynleg eru til
réttrar færslu greinarinnar í spjaldskrá. Undir
titil greinarinnar setur höfundur nafn sitt og ef
til vill nafn stofnunar peirrar, par sem að
greininni hefur verið unnið.
EFNISÁGRIP
I upphafi greinar skal í örstuttu máli segja frá
efni hennar og par sem pað á við, hvert sé
tilefni hennar og/eða tilgangur með birtingu
hennar.
Greinar skulu vera á góðri íslenzku og skal
íslenzka öll erlend orð og heiti, verði pví við
komið. Sé pörf á skulu erlend orð sett i sviga
aftan við pau íslenzku. Séu ekki til íslenzk heiti
eða hugtök yfir pað, sem um er rætt skulu
erlend orð sett innan gæsalappa.
HANDRIT
Handrit skulu vélrituð skýrt og greinilega
öðru megin á pappírsarkir í stærðinni A4,
(með 50 mm eyðu vinstra megin og 20 mm
eyðu hægra megin). Línubil skal vera tvöfalt
(8,5 mm). Ekki er leyfilegt að vélrita á
jaðrana. Blaðsíður handrits skulu tölusettar í
röð í efra horni hægra megin. Slík töluröð er
áframhaldandi á efniságripi og heimildum.
Áður en handrit er sent ritstjórn skal pað
vandlega yfirfarið. Minniháttar leiðréttingar
má vélrita inn á milli lína. Sé hins vegar um
meiriháttar leiðréttingar að ræða, skal vélrita
pann hluta að nýju. Frágangur handrits skal
vera þannig, að hægt væri að senda pað til
setningar í prentsmiðju, ef um þrykkingu efnis
verður að ræða. Ef hins vegar á að, »offset«-
prenta eða »offset« fjölrita, skal frágangur
handrits vera pannig, að hægt sé að gera
myndamót eða stensla beint eftir handritinu
og pað á að geta þolað nauðsynlega smækkun.
Skal pá haft samband við ritstjórn, hver skuli
vera lögun og stærð pess flatar, er letur á að
vera innan.
TÖFLUR
Töflur spara oft langt mál og skal ekki að
nauðsynjalausu endurtaka í texta pær upplýs-
ingar, sem í töflum standa, Töflur skulu hafðar
eins einfaldar og skýrar og unnt er. Töflur á að
vera hægt að skilja óháð texta í aðalmáli.
Á þeim skal vera númer, t.d. Tafla I, eða
Table I, pegar ástæða er til að hafa texta
töflunnar á ensku. Á peim skal vera titill eða
yfirskrift. Þar skal í örstuttu máli gera grein