Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.1980, Qupperneq 35

Læknablaðið - 15.02.1980, Qupperneq 35
LÆKNABLADID 17 12. Shields, T. W„ Fox, R. T., Lees, Wm. M.: Changing Role of Surgery in the Treatment of Pulmonary Tuberculosis. Arch. Surg., 100: 363- 366, 1970. 13. Sigurðsson, Sigurður: Um berklaveiki á fslandi. Læknablaðið, 62: 3-50, 1976. 14. Þórarinsson, Hjalti: Skurðaðgerðir við lungna- berklum. Læknablaðið 1960.44: 100-117, 1960. 15. Þórarinsson, Hjalti: Skurðaðgerðir við tubercu- losis pulmonum. Læknablaðið, 39: 33-55, 1955. 16. Þórarinsson, Hjalti: Surgery for Pulmonary Tu- berculosis in lceland. Acta. Chir. Scand., 124: 261-269, 1962. LEIÐBEININGAR FYRIR GREINAHÖFUNDA EFNI Efni, sem óskað er birtingar á, skal sent í tvíriti til ritstjórnar Læknablaðsins, Domus Medica, Reykjavík. Skulu pví fylgja upplýsingar um vinnustað og heimilisfang höfundar (höfunda). Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræðinnar, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsókn- um eða um er að ræða samantekt á reynslu annarra, bæði yfi.rlits- og fræðslugreinar. Blaðið birtir efni er varðar málefni L. í., svæða- og sérfélaga og um hvert pað efni annað, sem tengt er hagsmuna- og áhugamál- um lækna. Þá eru og birtar stuttar athugasemdir og lesendabréf. GREINAR Greinar skulu settar upp á skýran og ljósan hátt. Creinartitill skal vera stuttur, en skýr, og lýsa viðfangsefni greinarinnar. Stundum er betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðaltitill pá eitt eða fleiri lykilorð sem nauðsynleg eru til réttrar færslu greinarinnar í spjaldskrá. Undir titil greinarinnar setur höfundur nafn sitt og ef til vill nafn stofnunar peirrar, par sem að greininni hefur verið unnið. EFNISÁGRIP I upphafi greinar skal í örstuttu máli segja frá efni hennar og par sem pað á við, hvert sé tilefni hennar og/eða tilgangur með birtingu hennar. Greinar skulu vera á góðri íslenzku og skal íslenzka öll erlend orð og heiti, verði pví við komið. Sé pörf á skulu erlend orð sett i sviga aftan við pau íslenzku. Séu ekki til íslenzk heiti eða hugtök yfir pað, sem um er rætt skulu erlend orð sett innan gæsalappa. HANDRIT Handrit skulu vélrituð skýrt og greinilega öðru megin á pappírsarkir í stærðinni A4, (með 50 mm eyðu vinstra megin og 20 mm eyðu hægra megin). Línubil skal vera tvöfalt (8,5 mm). Ekki er leyfilegt að vélrita á jaðrana. Blaðsíður handrits skulu tölusettar í röð í efra horni hægra megin. Slík töluröð er áframhaldandi á efniságripi og heimildum. Áður en handrit er sent ritstjórn skal pað vandlega yfirfarið. Minniháttar leiðréttingar má vélrita inn á milli lína. Sé hins vegar um meiriháttar leiðréttingar að ræða, skal vélrita pann hluta að nýju. Frágangur handrits skal vera þannig, að hægt væri að senda pað til setningar í prentsmiðju, ef um þrykkingu efnis verður að ræða. Ef hins vegar á að, »offset«- prenta eða »offset« fjölrita, skal frágangur handrits vera pannig, að hægt sé að gera myndamót eða stensla beint eftir handritinu og pað á að geta þolað nauðsynlega smækkun. Skal pá haft samband við ritstjórn, hver skuli vera lögun og stærð pess flatar, er letur á að vera innan. TÖFLUR Töflur spara oft langt mál og skal ekki að nauðsynjalausu endurtaka í texta pær upplýs- ingar, sem í töflum standa, Töflur skulu hafðar eins einfaldar og skýrar og unnt er. Töflur á að vera hægt að skilja óháð texta í aðalmáli. Á þeim skal vera númer, t.d. Tafla I, eða Table I, pegar ástæða er til að hafa texta töflunnar á ensku. Á peim skal vera titill eða yfirskrift. Þar skal í örstuttu máli gera grein

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.