Læknablaðið - 15.11.1980, Síða 19
LÆKNABLAÐID
271
t
MINNING
JÓHANN HAFSTEIN
fyrrv. ráðherra heilbrigðismála,
f. 19.9. 1915, d. 15.5.1980.
Það er sem ráðherra heilbrigðismála að Jó-
hanns Hafsteins verður lítillega minnst hér í
Læknablaðinu, en hann gegndi á stjórnmála-
ferli sínum einnig ýmsum öðrum ráðherraem-
bættum, svo sem kunnugt er, m.a. embætti
forsætisráðherra.
Jóhann Hafstein var sérstaklega vel til
forystu fallinn og stóð alla sína starfsævi í
fremstu fylkingarlínu þar sem hann fór. Hann
valdist þegar á ungum aldri í ábyrgðarstöður,
og eftir hann liggja gæfurík spor á mörgum
sviðum pjóðlífsins, en stjórnmál voru hans
aðalvettvangur.
Jóhann var kosinn í bæjarstjórn Reykja-
vikur árid 1946 og sama ár í nýstofnaða
byggingarnefnd Heilsuverndarstöðvar Reykja-
vikur og var ritari hennar. Hann átti sæti í
heilbrigðisnefnd bæjarins árin 1946-1954. í
meðferð mála þar komu fram rómaðir eiginleik-
ar hans, framsýni, réttlætiskennd, drenglyndi,
stefnufesta og einurð. Voru peir eiginleikar
hans nýendurskipulögðu heilbrigðiseftirliti
bæjarins mikill styrkur, ekki sízt vegna ríkra
áhrifa Jóhanns í bæjarstjórn. Sagði hann síðar
svo frá, að í heilbrigðisnefndinni hafi hann
fyrst kynnst og fengið áhuga á heilbrigðis-
málum.
Á landsmálasviðinu kom pessi áhugi Jó-
hanns Hafstein einnig fram. í Kúbu-deilunni
síðla árs 1961 var hætta talin á, að land okkar
gæti beint eða óbeint orðið fyrir barðinu á
hugsanlegum styrjaldaraðgerðum tveggja
stórvelda, par sem jafnvel kjarnorkuvopn
kynnu að verða notuð. Fyrir atbeina Jóhanns,
sem pá fór með heilbrigðismál í ríkisstjórn,
voru sett ný lög til verndar og líknar lands-
mönnum, ef til kæmi, almannavarnarlög.
Komu pau i stað loftvarnalaganna gömlu og
leiddu pau til vóðtæks viðbúnaðar á pessu
sviði, a.m.k. í Reykjavík.
Sem dóms- og kirkjumálaráðherra fór Jó-
hann Hafstein jafnframt með heilbrigðismál
pjóðarinnar frá sept. til des. 1961 og árin 1963
til 1969. Þá hafði lengi ríkt í læknastétt
óánægja með hægagang á framkvæmdum á
sviði heilbrigðismála hér á landi og einnig með
skipulag peirra. Jóhann sýndi lofsverðan skiln-
ing á nauðsyn nyrra viðhorfa og stórra átaka
í heilbrigðismálunum í samræmi við nýjar
framfarir og breyttar stefnur á pví sviði. Til
pess að hrinda pessum framfaramálum af stað
og koma peim í höfn beitti hann sér fyrir og
fékk stofnað sérstakt ráðuneyti fyrir heilbrigð-
is- og tryggingamál, hið eina á Norðurlönd-
um, sem einvörðungu fer með pessa mála-
flokka. —Áður fór dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið einnig með heilbrigðismálin, en varð-
andi pau gafst par, vegna mannfæðar, naumast
tími til annars en að sinna aðkallandi vanda-
málum á hverjum tíma.
Með stofnun heilbrigðis og tryggingamála-
ráðuneytisins, sem tók til starfa 1. jan 1970, var
stigið stórt heillaríkt framfaraspor í heilbrigðis-
málum pjóðarinnar. Með auknum sérhæfðum
mannafla, bættum vinnuskilyrðum, breyttu
viðhorfi og markvissum vinnubrögðum urðu
algjör páttaskil í pessum málum. Ástæðulaust
er að lýsa nánar mikilvægi pessara breytinga
fyrir lesendum Læknablaðsins.
Islenzkir læknar og aðrar heilbrigðisstéttir
munu minnast Jóhanns Hafsteins pakklá'tum
huga fyrir afskipti hans af heilbrigðismálum
pjóðarinnar, pegar hann fór með stjórn peirra.
Jón Sigurdsson.