Læknablaðið - 15.11.1980, Page 26
278
LÆKNABLADIÐ
Fréttatilkynning frá Nordisk Federation for Medicinsk Undervisning
(NFMU)
Samtökin NFMU eru norræn samtök lækna-
deilda, læknastúdenta, læknafélaga, heilbrigð-
is- og menntamálayfirvalda á öllum Norður-
löndum til þess að efla og móta grunnmenntun
og sérmenntun lækna og í sumum tilvikum
einnig annarra heilbrigðisstétta. Samtök þessi
tóku til starfa í Finnlandi 1964 og starfa í
nánum tengslum við Norðurlandaráð.
Fyrsta fund sinn á íslandi héldu þau 1974,
þar sem fjallað var um ýmis vandamál í
menntun heilbrigðisstétta og skiþulag heil-
brigðisþjónustu á Norðurlöndum á 8. tug
aldarinnar. A þessum fundi var aðallega fjallað
um sammenntun hjúkrunarfræðinga og lækna,
gerð grein fyrir nýstofnaðri námsbraut í hjúkr-
unarfræði við Háskóla íslands. Par var einnig
skýrt frá nýrri íslenskri heilbrigðislöggjöf, sem
samþykkt hafði verið á Alþingi árið áður.
Hvoru tveggja þessi mál vöktu almenna at-
hygli hjá hinum norrænu þátttakendum.
Þrem áður síðar efndi NFMU til námskeiðs
um samtalstækni fyrir lækna og hjúkrunar-
fræðinga í Reykjavík. En ári síðar, 1978, var í
fyrsta skipti haldinn aðalfundur samtakanna á
Islandi og var það á Akureyri. A þeim fundi
var formlega gengið frá nýjum samþykktum
fyrir samtökin, þær fólu í sér verulegar breyt-
ingar frá hinum eldri, enda verið í smíðum um
2ja ára skeið.
Á stjórnarfundi í NFMU, sem haldinn var í
Reykjahlíð við Mývatn 1. júlí 1978, var ákveð-
ið að samþykktir NFMU skyldu þýddar á öll 5
mál Norðurlandanna, og höfðu raunar komið
tilmæli unt þetta frá Norræna ráðinu, sem mun
gefa lögin út á öllum tungumálunum í sérstöku
riti, þar sem lýst verður helstu samnorrænum
samtökum, sem opinberir aðilar eiga þátt í.
Islensku þýðinguna á samþykktum NFMU
gerðu Hanna Þórarinsdóttir og Páll Þórðarson
í júlí 1979. Birting samþykktarinnar í Lækna-
blaðinu er einn þáttur í kynningu þessara
samtaka fyrir íslenska lækna. Aðalfundur sam-
takanna er haldinn annað hvort ár, síðasti
aðalfundur var haldinn í marslok s.l. og voru
þá kjörnir fulltrúar í stjórn samtakanna af
íslands hálfu Víkingur Arnórsson. Jón Stefáns-
son, en þá létu af störfum þeir fulltrúar, sem
kjörnir voru á fundinum á Akureyri 1978, en
það voru Arinbjörn Kolbeinsson og Örn
Bjarnason.
Fer hér á eftir íslensk þýðing á samþykktum
NFMU.
Frekari upplýsingar um Nordisk Federation
for Medicinsk Undervisning (Norðurlanda-
samband um læknamenntun) er að finna í
Læknablaðinu 1970 og 1978.
Arinbjörn Kolbeinsson.
SAMÞYKKTIR
1. grein
Norðurlandasamband um læknisfræðimennt-
un (NSLM) er vettvangur samskipta og sam-
vinnu fyrir læknadeildir, eða samsvarandi stofn-
anir, sem ábyrgar eru fyrir menntun lækna, og
stjórnvöld þau og samtök, sem tengd eru
grunnnámi, framhaldsnámi, endurmenntun og
vísindastarfi lækna í Danmörku, Finnlandi,
Noregi, Svíþjóð og á íslandi.
2. grein
Markmið NSLM er að efla menntun og nám á
öllum sviðum og öllum menntunarstigum lækn-
isfræðinnar.
3. grein
Til þess að ná þessu markmiði skal NSLM:
1. skipuleggja, hvetja til, aðstoða við og kynna
fundi og námskeið um menntun og nám í
læknisfræði, þar sem fjallað er um mikilvæg
og raunhæf vandamál, einkum þau, sem
leysa verður úr á samnorrænum grundvelli;
2. hvetja til lýsingar og skrásetningar á stöðu
menntunar og kennslu í læknisfræði á
Norðurlöndum;
3. hvetja til tilrauna- og vísindastarfsemi á
sviði menntunar og kennslu í læknisfræði;
4. hvetja til og aðstoða við skipulagningu