Læknablaðið - 15.11.1980, Qupperneq 29
LÆK.NABLAÐ1D
279
slíkrar menntunar, sem krefst norrænnar
samvinnu;
5. koma á kynnum og halda sambandi viö
önnur lönd;
6. bera fram tillögur og starfa að öðru pví,
sem stuðlar að eflingu menntunar og
kennslu í læknisfræði.
4. grein
Ákvörðunarvald NSLM er hjá aðalfundi, sem
haldinn er annað hvert ár, svo framarlega sem
engar sérstakar ástæður hamla pví.
Hlutverk aðalfundar er að:
1. taka ákvarðanir um það, að hve miklu leyti
stjórninni er falin ábyrgð á starfsemi og
rekstri NSLM;
2. kjósa stjórn NSLM og varamenn í stjórn;
3. kjósa tvo endurskoðendur og tvo vara-
menn þeirra;
4. starfa þannig að öðru leyti, að markmið það
náist, sem NSLM stefnir að;
Auk ofanritaðra þátta er það hlutverk aðal-
fundarins að leggja tillögur og samþykktir
fyrir viðkomandi samtök og stjórnvöld í þeim
málum, sem algjör eining ríkir um.
5. grein
Eftirfarandi stofnanir, samtök og stjórnvöld
skulu hvert um sig tilnefna einn fulltrúa á
aðalfund:
1. sérhver læknadeild eða önnur samsvarandi
stofnun, sem ábyrg er fyrir læknamenntun;
2. félög læknanema við hverja læknadeild eða
samsvarandi stofnun, sem ábyrg er fyrir
læknamenntun;
3. það eða þau stjórnvöld í hverju landi, sem
hafa ákvörðunarvald varðandi menntun og
nám lækna;
4. það eða þau stjórnvöld í hverju landi, sem
hafa ákvörðunarvald í heilbrigðismálum;
5. heildarsamtök lækna í hverju landi;
6. heildarsamtök ungra lækna í hverju landi;
Sem áheyrnarfulltrúar á aðalfundinum mega
ennfremur vera allt að tveir fulltrúar frá
hverjum fyrrgreindra aðila þ.e.a.s. yfirvöldum,
stofnunum og samtökum, og að auki fullrúar
frá norræna heilsugæsluháskólanum, svæða-
deild WHO í Evrópu, ásamt alþjóðasamtök-
um, sem NSLM er í tengslum við.
Fulltrúarnir eru tengiliðir hinna ýmsu stofn-
ana NSLM milli aðalfunda.
6. grein
Stjórn NSLM skipa sjö menn ásamt vara-
mönnum og er einn tiltekinn fyrir hvern
aðalmann í stjórn. Tveir stjórnarmeðlima eru
fulltrúar stúdentafélaga og eru þeir kjörnir
eftir tillögu frá Félagi norrænna læknanema.
Fimm stjórnarmeðlima eru fulltrúar hinna
aðildarsamtakanna, hver frá sínu landi, og eru
þeir kosnir eftir tillögu frá hinum fulltrúum
landanna á aðalfundinum.
Stjórnin velur formann úr sínum hópi.
Starfstími stjórnarinnar er milli tveggja
aðalfunda og skal hún halda að minnsta kosti
tvo fundi á ári.
Stjórnin skal:
1. bera ábyrgð á starfi NSLM og fjárhagsleg-
um rekstri;
2. gera fjárhagsáætlun;
3. skila skýrslu um starfsemi sína til aðalfund-
ar og jafnframt senda fyrrgreindum lækna-
deildum, eða þeim samsvarandi stofnunum,
sem ábyrgar eru fyrir menntun lækna,
stjórnvöldum og samtökum ásamt fulltrú-
um þeirra, skriflegar upplýsingar um starf-
semina;
4. koma á fót að eigin frumkvæði eða sam-
kvæmt ábendingum aðalfundar nauðsynleg-
um fjölda nefnda fyrir hina ýmsu þætti í
starfsemi NSLM;
5. ráða aðalritara NSLM til að gegna þeirri
stöðu og annast þau verkefni, sem nánar er
greint frá í sérstökum fyrirmælum.
7. grein
Samþykktum NSLM verður aðeins breytt á
aðalfundi. Tillögur um breytingar á samþykkt-
um verða að berast aðalritaraembættinu í
síðasta lagi þremur mánuðum fyrir aðalfund,
svo að unnt sé að taka þær til meðferðar. Rétt
til að bera fram tillögur til breytinga á
samþykktum hafa allir fulltrúar og áheyrnar-
fulltrúar, sem valdir eru til setu á aðalfundi.
Stjórninni ber að senda framkomnar tillög-
ur um breytingar á samþykktum til þeirra
stofnana og samtaka, sem nefnd eru í 5. grein, í
síðasta lagi einum mánuði fyrir aðalfund.
Samþykkt á aðalfundi á Akureyri 1. júlí 1978.