Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Page 16
miðvikudagur 28. Febrúar 200716 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR Miðvikudags- Menn og stoke syrgja Sheffield Wednes- day og Stoke City syrgja nú fyrrum framherja sinn John ritchie sem lést 65 ára úr alzheimer. Wednesday keypti ritchie á 80 þúsund pund árið 1966 og skoraði hann 45 mörk í 106 leikjum. ritchie var eitt sinn markahæsti leikmaður í sögu Stoke City. Fyrir leik Stoke og barnsley í gær var mínútu þögn til heiðurs ritchie. ekkert vesen Sir alex Ferguson segir að það séu enginn vandræði á milli hans og david beckham. beckham mun snúa aftur á Oldt Trafford þann 12 mars og leika með evrópska stjörnuliðinu sem marcello Lippi mun stýra. „david mun fá góðar viðtökur, líkt og allir aðrir sem hafa gert góða hluti með utd. Ég hef séð nokkra leiki með real madrid eftir að hann fór og það er ekkert vesen á milli okkar,“ sagði Ferguson í viðtali við gazzetta dello Sport. alMunia aftur til spánar? varamarkvörður arsenal manuel almunia gæti verið á förum til villareal á Spáni í júní. villareal finnst ekki leiðinlegt að eiga viðskipti við arsenal því robert Pires og Pascal Cygan fóru báðir til liðsins. „almunia er okkar helsta forgangsverkefni,“ sagði Fernando roig forseti villareal. Talið er líklegt að Jens Lehman aðalmarkvörður arsenal yfirgefi liðið einnig í sumar og því þarf arsene Wenger að leita sér að nýjum manni milli stanganna. Hollendingurinn Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússa í knattspyrnu, var í gær dæmdur í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir skattsvik. Auk þess er honum gert að greiða tæpar fjórar milljónir króna í sekt. Hiddink var ákærður fyrir að hafa komið sér undan skattgreiðslum í Hollandi sem samsvara rúmlega 122 milljónum króna með því að segjast vera búsettur í Belgíu á árunum 2002 og 2003. Dómarinn sýknaði Hiddink af ákærum fyrir árið 2002, þar sem Hiddink hafði hug á því að flytja til Belgíu, en dæmdi hann sekan fyrir skattsvik á árinu 2003. Á því ári bjó Hiddink hjá foreldrum sínum í Am- sterdam. Hann fékk hámarks sekt. „Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að Hiddink hefði vísvitandi skilað inn óútfylltri og ófullnægjandi skattskýrslu fyrir árið 2003,“ sagði í yf- irlýsingu sem gefin var út eftir dóms- uppkvaðningu. Saksóknari fór fram á tíu mánaða fangelsi og sagði að fyrir- ætlanir Hiddinks um að búa í Belgíu hefðu verið „grín“. Hiddink var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna. „Hiddink er ánægður með að refs- ingin var minnkuð. En þrátt fyrir það hefur mannorð hans hlotið skaða,“ sagði lögfræðingur þjálfarans. Svo virðist sem neikvæð um- ræða hafi valdið því að refsingin var minnkuð. „Dómurinn tók til athug- unar að nú þegar hefur mikil nei- kvæð umræða átt sér stað í kringum málið,“ sagði í dómsuppkvaðning- unni. Talsmaður rússneska knatt- spyrnusambandsins sagði að það ætlaði að leita lögfræðiráðgjafar um afleiðingar dómsins. „Við höfum mestar áhyggjur af því hvað skilorðsbundni dómurinn hef- ur í för með sér. Við höfum áhyggj- ur af því að Hiddink verði meinað að ferðast eða vinna vinnuna sína,“ sagði talsmaðurinn. Hiddink viðurkenndi í réttarhöld- unum að hann hefði ekki eytt svo mikið sem einni nótt í húsinu sínu. Hann neitaði einnig að hafa búið hjá kærustu sinni í Amsterdam. Hann sagðist hafa eytt nóttum á hinum ýmsu stöðum, meðal annars á hótelum, heima hjá kærustunni, á æfingasvæði PSV og stundum sofið í bílnum sínum. Endurskoðandi Hiddinks var einnig dæmdur til að greiða sem nemur fjórum milljónum króna í sekt auk átta mánaða skilorðsbund- ins fangelsis. dagur@dv.is fékk skilorðsbundinn dóm guus Hiddink fékk skilorðsbundinn dóm og var gert að greiða um fjórar milljónir króna í sekt. Hér er hann ásamt marco van basten, landsliðsþjálfara Hollands. guus Hiddink var í gær dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik: Mannorð Hiddinks hefur hlotið skaða Leikmenn Reading og Manchest- er United buðu áhorfendum uppá frábæra skemmtun í gær þegar lið- in mættust í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. 5 mörk litu dagsins ljós þar sem Manchester United fór með sigur af hólmi, 3-2. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru báðir í byrjunarliði Reading og spiluðu allan leikinn. Því miður fyrir Reading þá var engu líkara en að leikmenn liðsins hafi ekki mætt til leiks því þeir Ga- briel Heinze, Lou- is Saha og Ole Gunnar Solskjær komu gestunum í 3-0 eftir aðeins sex mínútna leik. Reading menn lögðu þó ekki árar í bát. Dave Kitson náði að minnka muninn í 3-1 fyrir leikhlé eftir undir- búning frá Ívari Ingimarssyni. Liðin skiptust á að sækja í síðari hálfleik. Sókn Reading bar loks árang- ur á 84. mínútu þegar varamaðurinn Leroy Lita skoraði fallegt skallamark. Brynjar Björn var nálægt því að jafna metin í uppbótartíma þegar þrumuskot hans small í þverslánni á marki Manchester United. Þar við sat, 2-3 lokatölur og það verða því Manchester United sem mætir Middlesbrough í næstu um- ferð. „Liðið mitt áttu bestu byrjun sem ég hef séð þegar við skoruðum þrjú mörk á sex mínútum. Fyrra mark Reading kom þeim aftur inní leikinn og fyrirgjafir þeirra sköpuðu vand- ræði hjá okkur. Eftir að þeir skoruðu annað markið þá hélt ég að leikur- inn færi í framlengingu. Það stefndi allt í það. Ég sagði Scholes að gera sig kláran undir lokinn,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United. „Í fyrri hálfleik vorum við að spila boltanum vel frammá við og valda þeim usla. En í þeim síðari spiluðum við mikið þvert á völlinn og vorum sjálfum okkur verstir. Fyrir mér var þetta frábær bikarleikur og bæði lið eiga hrós skilið. Fyrir áhorfendur var þetta eflaust frábær leikur að horfa á,“ bætti Ferguson við. „Þetta var versta byrjun sem hægt er að hugsa sér. Við töluðum um að byrja vel og pressa þá en það leið ekki að löngu að við vorum 3-0 undir. Þá fer maður að hugsa hvað sé hægt að fá út úr leiknum. Síðari hálfleikur var mjög góður og ég tek ofan fyrir mín- um leikmönnum. Stoltið er mikið í liðinu og þeir sættu sig ekki við neina niðurlægingu,“ sagði Steve Coppell, stjóri Reading. „Þjálfari verður að treysta sínum leikmönnum að taka sig á og gera bet- ur. Það var það sem við gerðum. Mér fannst við eiga möguleika á að vinna leikinn. Mér fannst við líka opna vörnina hjá okkur þegar við sóttum hvað mest undir lokinn. Við fengum tækifæri en Manchester United er lið í hæsta gæðaflokki og það hjálp- aði þeim undir lokinn,“ bætti Copp- ell við. Middlesbrough sigraði í vítaspyrnukeppni W.B.A. tók á móti Middlesbrough á heimavelli sínum í gær í ensku bik- arkeppninni. Eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni fór svo að leik- menn Middlesbrough fögnuðu sigri. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 1-1. Middlesbrough vann vítaspyrnukeppnina 5-4. Darren Carter kom heimamönn- um yfir á 26. mínútu með góðu vinstri fótar skoti af um 25 metra færi. Eftir rúmlega klukkutíma leik náði Mark Viduka að jafna metin með skoti úr teignum. 1-1 var staðan eftir venju- legan leiktíma og því þurfti að fram- lengja. Eina mark- verða sem gerð- ist í fram- lenging- unni var að Nathan Ellington, framherji W.B.A., fékk að líta rauða spjaldið fyrir grófa tæklingu á Stuart Parnaby, leikmanni Middlesbrough. Eftir markalausa framlengingu þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Eftir fimm vítaspyrnur hjá hvoru liði var staðan 4-4. Georg Boateng skor- aði úr sjöttu spyrnu Middlesbrough manna. Það kom í hlut Sherjill Mac- Donald að taka sjöttu W.B.A. Hann skaut yfir og sigur Middlesbrough í höfn. „Við sýndum frábæran karakter í þessum leik. Við lékum illa í fyrri hálf- leik. En strákarnir tóku sig á, spiluðu vel og við vorum líklegri til að skora. Ég lét nokkra unga stráka taka víti en þeir stóðust það próf mjög vel,“ sagði Gareth Southgate, stjóri Middles- brough. dagur@dv.is NAuMuR siguR Manchester united vann reading 3-2 á útivelli í ensku bikarkeppninni í gær þar sem United gerði út um leikinn á fyrstu sex mínútunum. W.B.A. - Middlesbr. 1-1 (4-5) 1-0 (26.) Darren Carter 1-1 (63.) Mark VidukaReading - Man. Utd. 2-3 0-1 (2.) Gabriel Heinze 0-2 (4.) Louis Saha 0-3 (6.) Solskjær 1-3 (23.) Dave Kitson 2-3 (84.) Leroy Lita Marki fagnað Samherjar Louis Saha fagna hér Frakkanum knáa eftir að hann hafði kom- ið manchester united í 2-0. fyrsta markið gabriel Heinze kom manchest- er united á bragðið í gær. skotskórnir fundnir mark viduka virðist vera búinn að finna skotskóna á nýjan leik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.