Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Síða 25
DV Sviðsljós miðvikudagur 28. Febrúar 2007 25 F yrrverandi kryddpían Victoria Beckham hefur skrifað undir 10 milljóna punda samning við NBC sjónvarpsrisann um gerð raunveruleikasjónvarps- þáttar um hjónin. Í þætt- inum verður fylgst með búferlaflutn- ingum David og Victoriu Beckham til Bandaríkjanna þar sem David mun spila fyrir fótboltaliðið Los Angeles Galaxy næsta vetur. Það var umboðsmaður Victoriu, Simon Fuller, sem landaði samningn- um en hann hjálpaði einnig David að ná í 128 milljóna punda samninginn við LA Galaxy. Þátturinn mun líkt og fyrr segir fjalla um búferlaflutninga Beckham fjölskyldunnar og aðlög- un þeirra en ekki er víst hvort sýnt verði frá leikjum Davids í þáttunum þar sem keppinauturinn FOX sjón- varpsstöðin er með sýningarréttinn af bandarísku deildinni. Miklar vonir eru gerðar við þátt- inn og að hann muni skjóta Beck- ham hjónum upp á stjörnuhimin- inn vestan hafs. Þó svo að Beckham sé frægasti knattspyrnumaður heims eru hann og frúin lítt þekkt í Banda- ríkjunum. Eftir að furðurfuglarnir í Os- bourne-fjölskyldunni slógu í gegn hafa mörg hjón og fjölskyldur reynt að leika sama leik. Þau Jessica Simpsson og Nick Lacey, Carmen Electra og Dave Navarro og Britney Spears og Kevin Federline létu öll gera raunveruleikaþátt um líf sitt og hafa öll pörin nú sótt um skilnað. Það er því spurning hvort hjóna- band Beckham-hjónanna þoli álag- ið sem mun fylgja þættinum. Sögu- sagnir eru uppi um það að herra David hafi fengið litlu ráðið um þátt- inn þar sem Victoria hefur í mörg ár reynt að auka frægðarsól sína en með misjöfnum árangri þó. asgeir@dv.is Victoria Beckham hefur skrifað undir 10 milljóna punda samn- ing um gerð sjónvarpsþáttar vegna búferlaflutninga hennar og Davids til Los Angeles. búferlaflutningar Beckham-hjóna HHH Velkomin til Bandaríkjanna vaxstyttur af hjónunum á madame Tussauds-safninu. David og Victoria Beckham verða í raunveruleikasjón- varpsþætti um búferlaflutninga sína til bandaríkjanna. Faðir rapparans Ludacris lést úr alvarlegum veikindum aðfaranótt sunnudagsins. Faðirinn hét Wa- yne Bridges og var búinn að berj- ast við heilsuleysi í langan tíma. Fyrr í mánuðinum vann Ludacris Grammy verðlaun fyrir plötuna Re- lease Therapy og vildi hann þá til- einka verðlaunin föður sínum. „Hr. Wayne Bridges ég elska þig fram á síðasta dag,“ sagði Ludacris þeg- ar hann tók við verðlaununum, en hann var verðlaunaður fyrir bestu rappplötu og besta rapplagið. Í kjöl- far dauða Wayne hefur Ludacris gefið út fréttatilkynningu, þar sem hann biður fjölmiðla um að angra sig sem allra minnst, þar sem hann vilji nota næstu daga og vikur til að syrgja. „Við þökkum þær heillaósk- ir sem við höfum fengið og erum orðlaus yfir þeim stuðningi sem að- dáendur hafa veitt okkur. Takk fyr- ir allt,“ stóð meðal annars í frétta- tilkynningunni. Ludacris er einn farsælasti rappari Bandaríkjanna, hann seldi fyrstu plötuna sína sjálf- ur úr skottinu á bílnum sínum og græddi á tá og fingri. Síðasta platan hans, Release Therapy hefur selst í milljónum eintaka út um allan heim og þótti ein af bestu plötum ársins í fyrra. Undanfarið hefur hann svo sótt í sig veðrið í leiklistinni og hefur leikið burðarhlutverk í Óskarsverð- launamyndum á borð við Crash og Hustle & Flow. Rapparinn Ludacris missti föður sinn úr veikindum á sunnudaginn var: Vill fá að syrgja föður sinn í friði Ludacris Tileinkaði föður sínum sínum grammy verðlaunin í upphafi mánaðarins. Sacha Baron kærður Breski grínistinn Sacha Baron Cohen hefur verið kærður af konu sem segir hann hafa kallað hana tík og „minger“ sem er breskt slangur yfir ljóta konu. Cohen á að hafa gert það í einum þátta sinna af Da Ali G Show en þar bregður Cohen sér í líki Ali G. Nafn konunnar var klippt út úr þáttunum en óklippt útgafa af atriðinu hefur verið til sýnis á vefnum youtube.com. Þar segir Ali: „Me used to go out with this bitch called Heddi Cundle.“ Hann kallar hana þá líka „minger“ og segist hafa barnað hana. Cundle segist hafa kynnst Cohen í æskulýðsferð til Ísraels árið 1987. Ford í form fyrir Jones 4 Leikarinn og Íslandsvinurinn Harri- son Ford vinnur nú hörðum höndum að því að koma sér í gott líkamlegt form fyrir fjórðu kvikmyndina um Indiana Jones. 18 ár eru síðan leik- arinn brá sér undir leðurjakkann og hattinn síðast og óttast hann því að aldurinn geti spilað rullu í nýju mynd- inni. „Hann er að úða í sig próteini og borðar mikið af fisk og grænmeti. Hann lyftir svo og lyftir og reynir að koma sér í þetta Indiana Jones -form eftir bestu getu,“ sagði heimildarmað- ur sem er náinn leikaranum. Hostel- plakat umtalað Kynningarplakat fyrir hryll- ingsmyndina Hostel 2 sem Íslands- vinurinn Eli Roth leikstýrir hefur vakið mikla athygli. Plakatið skart- ar leikkonunni Bijou Phillips haus- lausri og naktri. Eða öllu heldur naktri og með höfuðið í hendi sér. Sem fyrr er það Quentin Tarantino sem framleiðir myndina en hún kemur út vestan hafs 8. júní. Hluti myndarinnar var tekinn upp hér- lendis en bróðurparturinn í Prag í Tékklandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.