Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Side 32
Margét Sverrisdóttir segir fund-
að stíft í þeim tilgangi að stofna nýj-
an flokk fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. Hún segir Ómar Ragnarsson
vinna að undirbúningnum með sér
og vonast hún til þess að niðurstaða
liggi fyrir í vikunni.
„Ég leyfi mér að fullyrða að eftir-
spurn eftir endurnýjun sé um þrjátíu
prósent og ég tel raunhæft að stefna
á að ná fylgi helmings þess,“ seg-
ir Margrét. Aðspurð segist hún hafa
áhuga á að fá Jón Baldvin Hanni-
balsson með í baráttuna, gott sé að fá
fólk með sem er ekki of niðurnjörv-
að því sveigjanleiki sé nauðsynlegur.
Eins segist Margrét vilja þiggja ráð og
reynslu Jakobs Frímanns Magnús-
sonar en hann sagði sig úr Samfylk-
ingunni um síðustu helgi. Hann hef-
ur þó ekki viljað gefa út hvort hann
hyggist ganga til liðs við nýjan flokk
Margrétar.
Margrét segir nafn á flokkinn
ekki ákveðið þótt margar góðar hug-
myndir hafi komið fram og vill hún
ekki taka ástfóstri við neitt ákeðið
nafn fyrr en það hefur verið endan-
lega ákveðið. Ljóst sé þó að listabóka-
stafur flokksins verði fyrsti stafurinn í
nafninu, annað segir Margrét óþarfa
áhættu og betra að hann sé ekki aft-
arlega í stafrófinu. hrs@dv.is
Miðvikudagur 28. febrúar 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónir fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is
HerefordBorðapantanir í síma 511 3350
2 fyri
r 1 á
drykk
jum
hússi
ns 17
-19
Íslenska nautakjötið
klikkar ekki.
Notum eingöngu sérvalið
íslenskt nautakjöt á
Hereford steikhúsi
Óregla er þetta á börnunum
í Hafnarfirði!
Hlutfall efnis, unnið af ritstjórnum, í dagblöðum miðviku-
daginn 28. febrúar. Dregið hefur verið frá innsett efni, selt
efni og auglýsingar.
Efni blaðanna
Margrét sverrisdóttir vinnur að stofnun nýs flokks:
Vonast eftir 15 prósenta fylgi
Margrét sverrisdóttir Segir sig og
Ómar Ragnarsson vera aðalkokkana að
nýju framboði.
„Mælarnir eru notaðir til að skera
úr um vafaatriði,“ segir Geir Bjarna-
son forvarnafulltrúi í Hafnarfirði.
Tekið var upp á því að notast við
áfengismæli á grunnskólahátíð þar í
bæ í síðustu viku.
Gísli segir að örfáir unglingar hafi
mælst með áfengi í blóðinu. Mælir-
inn nemur alkóhól í andardrætti
unglinganna en ekki magn í blóði.
Hafi unglingurinn drukkið einn sopa
af áfengi finnst það á mælinum, segir
Geir, en hann áréttar líka að þeir ein-
ir hafi verið mældir sem þóttu grun-
samlegir.
„Við átt-
um áfengis-
mæli í gamla
daga en vor-
um bara að endurnýja,“ svarar Geir
spurður hvort verið sé að brjóta blað
í forvarnasögu Íslands með mæling-
unum. Það mælist ekki vel fyrir að
greinast með áfengisanda, segir Geir,
en sérstakt vinnuferli fer af stað sé
grunur um áfengisneyslu staðfestur.
Þá er hringt í foreldra auk þess sem
stjórnendur þess skóla sem barnið
gengur í eru látnir vita.
Geir segir öflugt eftirlit vera á
skólaböllunum enda sjá fjölmargir
starfsmenn félagsmiðstöðvanna og
kennarar um gæslu á svæðinu. Starfs-
fólk félagsmiðstöðvanna sé þjálfað
til þess að finna út hvort unglingarn-
ir hafi neytt áfengis. Yfirleitt séu það
einhverjir sem geti ekki beðið eftir
því að neyta áfengis en unglingarn-
ir mega að sjálfsögðu ekki innbyrða
áfengi fyrr en þeir eru orðnir tvítug-
ir. Að mati Geirs væri betra að þau
slepptu því alfarið. Á heildina litið
eru unglingarnir þó til fyrirmyndar
og því ekki mikið upp á þá að klaga,
að sögn Geirs.
Hann segir að gríðarlega vel hafi
verið mætt á grunnskólahátíðina en
hún er haldin árlega. Þá taka allir
grunnskólar í Hafnarfirði og á Álfta-
nesi sig til og gera sér glaðan dag. Alls
mættu um níu hundruð unglingar og
höguðu þeir flestir sér vel. Hátíðin er
vímuefnalaus með öllu eins og allt
sem tengist grunnskólum og félags-
miðstöðvum.
GrunnskÓlaBörn
sett í áfenGisprÓf
Forvarnafulltrúi í Hafnarfirði notar áfengismæla fyrir unglinga:
– ef grunur lék á að þau hefðu neytt áfengis á grunnskólahátíð
Myndlistarsýning á afmæli fyrrverandi blaðasala Auðunn Gestsson hélt upp á 69 ára afmælið með því að opna sýningu á
verkum sínum í Sólheimaútibúi Borgarbókasafns Reykjavíkur. Auðunn var lengi einn þekktasti blaðasali borgarinnar. Hann hefur
sótt námskeið í myndlist og er afraksturinn til sýnis á myndlistarsýningunni. Sjá síðu 20.
DV-mynd Stefán
Geir Bjarnason Forvarnafulltrúinn
Geir segir áfengismælinn hafa virkað
vel en sjaldan þurfi þó að nota hann.
strandaði í
innsiglingunni
Eyjaskipið Dala-Rafn strand-
aði í innsiglingunni í Grindavík á
fimmta tímanum í gær. Svo virðist
sem skipinu hafi verið stýrt aðeins of
snemma í austur og þess vegna rat-
að upp í grynningar þar sem Dala-
Rafn festist.
Dráttarbáturinn í Grindavík kom
fljótlega til bjargar en taug sem sett
var í Dala-Rafn slitnaði. Það var svo
ekki fyrr en björgunarskip björgun-
arsveitarinnar Þorbjörns var einnig
komið á vettvang að tókst að losa
skipið. Otti Sigmarsson, hjá Þorbirni,
sagði björgunarstörf hafa gengið
vel þó ekki hefðu þau mátt dragast
lengi. „Það hefði hreinlega fjarað
undan bátnum ef hann hefði staðið
þarna í nokkrar klukkustundir.“
Rætt við Dani
Danskir embættismenn komu
hingað til lands til að ræða við
Íslendinga í annað sinn um sam-
starf þjóðanna um öryggismál.
Fundurinn var í Reykjavík og var
fjallað um mögulegar leiðir til að
auka samstarf þjóðanna á sviði
öryggismála og var ákveðið að
hefja frekari vinnu við útfærslu
þess. Öryggissvæðið á Keflavík-
urflugvelli var heimsótt þar sem
Danir kynntu sér aðstæður. Ís-
lensku embættismennirnir hafa
nýverið átt í viðræðum við Noreg
um samstarf í öryggismálum.
kviknaði í sendibíl
Heimilisfólk í Lindasmára í Kópa-
vogi slapp ómeitt þegar eldur kom
upp við heimili þeirra í nótt. Eldurinn
kviknaði í sendibíl í eigu húsráðenda
sem var lagt upp við bílskúr. Þaðan
teygði eldurinn sig yfir í bílskúrinn
áður en slökkviliðsmenn náðu að
ráða niðurlögum hans. Skemmdir á
bílskúrnum urðu þó litlar, helst að út-
veggir sviðnuðu. Húsráðendur urðu
sjálfir varir við eldinn upp úr klukk-
an þrjú í nótt og gerðu slökkviliði
viðvart. Nóttin var annars róleg hjá
slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Annað sem bar hæst var að slökkva
þurfti í sinu við Fálkabakka í Breið-
holti í gærkvöld.
Vöknuðu við
reykskynjarann
Kona vaknaði við reykskynjara
þegar eldur blossaði upp í íbúð
hennar í nótt. Hún og tvö börn
hennar voru þá sofandi í íbúðinni.
Eldurinn kviknaði út frá elda-
vél. Konan brást fljótt við og náði
að slökkva eldinn með hand-
slökkvitæki. Þannig kom hún í veg
fyrir bæði meiðsl á heimilisfólki
og stórtjón á íbúðinni. Skemmd-
irnar urðu ekki meiri en svo að
konan og börn hennar gátu lagst
aftur til svefns í íbúðinni.
Talið er að kviknað hafi á hell-
unni þegar verið var að þrífa elda-
vélina í gærkvöld. Hitinn magnað-
ist síðan og braust út eldur þegar
komið var fram á nótt.
framboðið að
verða að veruleika
„Mér heyrist vera talsverð-
ur hugur í eldri borgurum og ég
vona að menn nái saman um að
samþykkja tillögu um slíkt fram-
boð,“ segir Arnþór Helgason, einn
þeirra sem undirbúa sameiginlegt
framboð eldri borgara og öryrkja.
Verkefnaskrá sem framboð-
ið á að byggja á var samþykktur
á fundi Átakshóps öryrkja í gær.
Úrslitin ráðast svo á sunnudag
þegar eldri borgarar fjalla um
verkefnaskrána. Áherslan er lögð
á að berjast fyrir réttindum og
hagsmunum lífeyrisþega sem að-
standendur fyrirhugaðs framboðs
segja hafa verið fyrir borð borna
hin síðari ár.
d
v v
ið
sk
ip
ta
B
la
ð
ið
M
o
rG
u
n
B
la
ð
ið
Fr
ét
ta
B
la
ð
ið
81%
70%
59%
35%
fimm bíla árekstur
Fimm bílar
lentu í árekstri
á Sæbrautinni í
Reykjavík laust
eftir klukkan átta
í morgun. Einn
bíll keyrði aftan
á annan og síðan
lenti hver bíllinn
á fætur öðrum í þvögunni.
Lögreglumenn voru enn að
störfum á slysstað þegar DV fór í
prentun. Þá var óljóst hvort einhver
meiðsl hefðu orðið á fólki og óvíst
hvort þörf hefði reynst fyrir sjúkra-
bíl. Algengt er þegar um aftaná-
keyrslur er að ræða að fólk leiti á
slysadeild síðar sama dag eða næsta
dag þegar óþægindi koma í ljós.
Einn bílanna skemmdist sýnu
mest en aðrir bílar minna.