Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Qupperneq 2
föstudagur 27. apríl 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Reykjavíkurborg er ekki sama hvaða
rekstur fer fram í fyrirhuguðum höf-
uðstöðvum Ungmennafélags Ís-
lands, UMFÍ, við Tryggvagötu 13 og
mun setja skilyrði um hvernig mál-
um verður háttað.
Borgarráð samþykkti 9. nóvem-
ber umsókn UMFÍ um lóð í tilefni
af 100 ára afmæli samtakanna. Með
umsókninni fylgdu teikningar að
fyrirhuguðum höfuðstöðvum. Fyr-
irheit borgarinnar um afhendingu
lóðarinnar er háð þessum tillögum
þar sem ekki er gert ráð fyrir öðrum
rekstri en starfsemi UMFÍ. Engu að
síður hefur félagið hafið viðræður við
einkaaðila um gistihúsarekstur í góð-
um hluta byggingarinnar og sá hluti
húsnæðisins yrði því leigður út.
Formaður UMFÍ, Sæmundur
Runólfsson, hefur staðfest að við-
ræður hafi farið fram um að leigja
út hótelreksturinn. Fram til þessa
hefur hann ekki viljað gefa upp um
hvaða rekstraraðila ræðir og ítrek-
ar að starfsemin verði aldrei leigð út
til annarra en þeirra sem samtökin
beri fyllsta traust til. Sæmundur seg-
ir enga samninga hafa verið gerða
enn sem komið er og af hálfu UMFÍ
sé ekki verið að braska með eignina.
Samkvæmt áætlun verður húsnæðið
tekið í notkun um mitt ár 2009.
Reiknað með
ungmennafélagsstarfemi
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins og forseti
borgarráðs, telur ekkert óeðlilegt við
úthlutunina og bendir á að enn sem
komið er sé aðeins um fyrirheit að
ræða. Hann segir að farið verði ítar-
lega yfir það með forsvarsmönnum
UMFÍ hvaða starfsemi verði þarna
leyfð. „Auðvitað er þetta mjög dýr-
mæt lóð en fordæmin er mörg fyrir
því hjá borginni og öðrum sveitarfé-
lögum að afhenda verðmætar lóðir til
samfélagslegra samtaka, ég get tekið
ÍSÍ sem dæmi. Jafnframt eru fordæmi
fyrir því að félög hafi leigt út hluta
bygginga sinna til fjármögnunar.
UMFÍ hefur verið með gistiþjónustu
fyrir sína félagsmenn í sínum höfuð-
stöðvum og það verður auðvitað rætt
hvernig samtökin ætla að standa að
gistiaðstöðunni í nýja húsnæðinu,“
segir Björn Ingi.
„Fyrirheitið er háð fyrirvara og
gert ráð fyrir byggingum sem kveð-
ið var á um samkvæmt teikningum. Í
henni er fyrst og fremst gert ráð fyr-
ir ungmennafélagsstarfsemi. Bygg-
ingareitnum verður deilt út formlega
þegar deiliskipulag hefur verið sam-
þykkt og nánari skilmálar ákveðnir.
Við eigum einfaldlega eftir að setjast
niður með þessum aðilum og ræða
um gistireksturinn.“
Ekkert ákveðið
Sæmundur bendir á að engir
samningar hafi verið gerðir varðandi
gistireksturinn og endanlegar ákvarð-
anir ekki verið teknar. Hann staðfestir
að fyrirheitið hafi verið gefið á þeim
forsendum að UMFÍ sjái alfarið um
húsið. „Við höfum verið í viðræðum
við aðila en ekkert ákveðið í þeim
efnum. Aðalmálið er að við ætlum að
eiga þetta fjölnota hús og þar eiga að
vera okkar höfuðstöðvar. Við erum að
vinna eftir nákvæmlega sömu tillög-
um og voru sendar með umsókninni
þar sem gert er ráð fyrir okkar starf-
semi. Að fá inn þriðja aðila hefur bara
verið á viðræðustigi,“ segir Sæmund-
ur. „Það er alveg rétt að samkvæmt
þeim hugmyndum sem við sendum
inn er ekki gert ráð fyrir neinum sam-
starfsaðila. Ef það er eitthvað mál af
hálfu borgarinnar að vera með þriðja
aðila þarna inni þá verður það bara
ekkert, við bara bökkum með það og
gerum þetta sjálfir.“
Ekki sama hvernig verður
Aðspurður segist Björn Ingi ekki
hafa fengið neinar upplýsingar um
að gistirekstur verði í höndum þriðja
aðila en hann útilokar ekki að sú leið
verði samþykkt. Hann ítrekar vilja
sinn til að flest íþróttafélög borgar-
innar fái aðgang að UMFÍ og því fari
vel að því að hafa höfuðstöðvar þess
í miðborginni.
„Að mínu mati er of snemmt að
segja til um hvort borgin muni setja
ákveðin skilyrði gegn því að einka-
aðili sjái um reksturinn,“ segir Björn
Ingi. „Þegar samfélagsaðilar hafa
fengið svona úthlutað þá gilda um
það ákveðin skilyrði og þá kemur líka
til greina að ef aðili komi þarna inn,
sem er í samkeppnisrekstri, þurfi að
greiða meira endurgjald fyrir þann
hluta. Ég er sannfærður um að UMFÍ
mun örugglega fylgja þeim fyrirtætl-
unum sem við setjum. Við höfum
tekið vel í þær hugmyndir sem lagðar
hafa verið fram og það er ekki sama
hvernig þetta verður gert.“
TRausTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Borgin setur skilyrði
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 17. apríl 2007 dagblaðið vísir 43. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
fulltrúar reykjavíkur sýndu ungmennafélagi íslands rausnarskap:
Við erum
ströngust
borgin gaf hótel-
lóð í miðborginni
-þiggjendurnir ætla að nýta húsið
að hluta fyrir sjálfan sig en leigja
mestan hlut út til hótelrekstrar.
Hugsanlega breyttar forsendur
fyrir gjöfinni. Sjá baksíðu.
fréttir fréttir
>>Sparnaður stjórnvalda
er helsta orsök mismunar
til launa í fæðingarorlofi.
Fangar:
Helmingur á
hvergi heima
Ráðamenn
bera ábyrgðina
Bílstjórar gegn
ölvunarakstri
>> Leigubílstjórar berjast gegn akstri
ölvaðra og merkja bíla sína með áróðri
gegn ökuglæpamönnum.
>> Innflytjendur til Íslands búa
við strangari reglur en eru í
öðrum löndum.
fréttir
KR-ingar
Íslandsmeistarar
sport
Vilja vita meira
Borgarráð mun óska eftir hugmyndum uMfí um fyrirhugaðan
gistirekstur í nýjum höfuðstöðvum samtakanna. Þær verða
reistar á verðmætri lóð sem borgin hefur gefið fyrirheit um.
„Fyrirheitið er háð fyr-
irvara og gert ráð fyrir
byggingum sem kveð-
ið var á um samkvæmt
teikningum.“
Borgaryfirvöld setja skilyrði fyrir því hvernig starfsemi verður í húsi ungmennafé-
lags Íslands á lóð í miðbænum sem samtökin fengu að gjöf. Forystumenn Ungmenna-
félags Íslands hafa átt viðræður við einkaaðila um hótelrekstur í húsinu. Óvíst er þó
hvort borgaryfirvöld fallist á slíkan rekstur.
Ætlum að efla
þjónustuna
„Við erum að vinna samkvæmt
níu liða áætlun til að styrkja starf-
semi BUGL. Það er auðvitað ekki
gott að hafa biðlista og alltaf má
gera betur. Að mínu mati eiga
erfiðustu tilvikin að fá meðferð
inni á BUGL og vægari tilvik eiga
að beinast til heilsugæslunnar.
Grunnþjónustuna ætlum við að
efla og þetta er allt saman að fara í
gang,“ segir Siv Friðleifsdóttir.
Biðtími eftir greiningu hjá
Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans getur verið nærri
tveimur árum. Á meðan hljóta
börn og unglingar ekki nauðsyn-
lega aðstoð. Aðspurð telur Siv
íslenskt heilbrigðiskerfi standa
framarlega. Hún telur mikilvægt
að gera heilsugæsluna í stakk
búna til að taka á vægari tilvikum.
Endurlífgaður í
Kópavogslaug
Fimmtán ára piltur
drukknaði í Sundlaug Kópa-
vogs í gærmorgun en var end-
urlífgaður.
Pilturinn var í skólasundi
þegar atvikið átti sér stað. Ekki
er ljóst hver tildrög slyssins
eru en piltinum var bjargað
og var hann þá meðvitundar-
laus og andaði ekki. Þá hófust
björgunaraðgerðir sem stóðu
yfir þar til sjúkralið kom á vett-
vanginn. Þeir tóku við og tókst
að koma piltinum aftur til
meðvitundar. Hann var fluttur
á gjörgæslu. Ekki er vitað hvað
kom fyrir. Sundlaug Kópavogs
var lokuð í gærdag á meðan
rannsókn fór fram.
Vörubíll valt
Vörubíll valt á hringtorginu
við Hveragerði um hádegisbilið
í gær.
Bíllinn, sem er venjulegur
vörubíll með tengivagn, ók inn
á hringtorgið og virðist sem
ökumaðurinn hafi misst stjórn á
bílnum með þeim afleiðingum
að hann valt. Vörubíllinn fór ekki
út af veginum heldur lá á hlið-
inni og gat umferð smeygt sér
framhjá án vandræða. Lögreglu-
menn þurftu að kalla eftir aðstoð
stórvirks krana á vettvang til að
fjarlægja bifreiðina.
Strandaði við
Fagranes
Björgunarsveitir og áhöfn
björgunarbátsins Sigurvins
voru kölluð út þegar sex tonna
trilla strandaði við Fagranes
laust eftir miðnætti í fyrrinótt.
Einn maður var um borð.
Sigurvin var fljótur á staðinn
og hófust þá tilraunir til að
þétta botn trillunnar og dæla
úr henni sjó. Það gekk þó ekki
nægilega vel. Sigurvin sigldi
til hafnar með trilluna í eftir-
dragi en þar sem hún maraði
í hálfu kafi sóttist ferðin seint.
Gott veður var á strandstað
en þung undiralda. Talið er að
sjálfsstýring bátsins hafi bilað.
Fangavörðurinn fyrrverandi
Heimir Óskarsson játaði í gær fyr-
ir Héraðsdómi Suðurlands að hafa
smyglað fíkniefnum inn á Litla-
Hraun þegar hann starfaði þar sem
fangavörður í ágúst síðastliðnum.
Hann er einnig ákærður fyrir pen-
ingaþvott fyrir fangann Mikael Má
Pálsson þar sem hann kom hundrað
þúsund krónum út úr fangelsinu fyrir
hann. Mikael hefur ákærður fyrir að
skipuleggja fíkniefnalagabrot með
því að hafa fengið Heimi til þess að
smygla efnunum inn í fangelsið.
Það var á laugardegi í lok ágúst
að upp komst um Heimi. Dagurinn
var sá síðasti í vinnunni en Heim-
ir hugðist hefja nám í lögfræði um
haustið. Leitað var á honum en lög-
reglan hafði rökstuddan grun um að
hann smyglaði fíkniefnum inn í fang-
elsið. Ríflega þrjátíu grömm af hassi
og rúmlega 240 grömm af kanna-
bis fundust í fórum hans. Hann var
handtekinn og úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Einnig var Mikael settur í
gæsluvarðhald ásamt öðrum fanga.
Lögreglan yfirheyrði fimm menn
utan fangelsismúranna í ágúst. Sjálf-
ur játaði Heimir brot sín fyrir lögreglu
og var haft á orði að hann hefði verið
mjög samvinnuþýður við rannsókn
málsins.
Í ljós kom að nokkrum dögum
áður en hann smyglaði fíkniefnum
inn í fangelsið fór hann með hundrað
þúsund krónur í reiðufé fyrir Mikael
Má út úr fangelsinu. Hann hitti ótil-
greindan mann og lét hann hafa féð.
Talið er að Heimir hafi smyglað
fíkniefnum inn í fangelsið allt sumar-
ið. Valtýr Sigurðsson, fangelsismála-
stjóri, hafði orð á því síðasta sumar,
að fíkniefnaneysla innan fangelsis-
ins, hefði verið óvanalega mikil. Svo
virðist sem innflutningurinn hafi ver-
ið vel skipulagður. Sjálfur var Mika-
el dæmdur til fangelsisvistar fyrir að
smygla kókaíni inn í landið snemma
á síðasta ári.
Heimir játaði brot sín skýlaust fyr-
ir Héraðsdómi Suðurlands í gær. Rík-
issaksóknari krefst tveggja til fjögurra
mánaða fangelsisdóms. Brot Heimis
eru talin sérlega alvarleg vegna starfs
hans. Hann hefur þó aldrei áður orðið
uppvís að ólöglegu athæfi. Báðir pilt-
arnir bíða dóms en hann verður kveð-
inn upp innan þriggja vikna.
valur@dv.is
Viðurkenndi peningaþvott og fíkniefnainnflutning:
Fangavörður játar dópsmygl
fangavörður játar fangavörðurinn
Heimir Óskarsson játaði að hafa smyglað
fíkniefnum inn á litla-Hraun þegar hann
starfaði þar sem sumarstarfsmaður.