Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Page 4
„Ég var ekki neyddur til þess að hætta
en ég hafði hugsað mér að vera ár í
viðbót hefði ég fengið til þess stuðn-
ing. En þetta varð niðurstaðan og
ég hlýti henni,“ segir Jóhannes Geir
Sigurgeirsson sem settur var af sem
stjórnarformaður Landsvirkjunar í
gær.
Engar skýringar
Jóhannes segist enga skýringu
hafa fengið á því af hverju þess-
ar breytingar voru gerðar gegn vilja
hans. Honum finnst erfitt að hætta
áður en Kárahnjúkavirkjun verður
sett í gang sem mun gerast á næstu
mánuðum. „Það verður ekki og við
því er ekkert að gera.“ Jóhannes Geir
og bætir við að þótt hann hefði kosið
að vera lengur fari hann sáttur frá fyr-
irtækinu. Jóhannes vildi ekki tjá sig
um við hverja eða með hvaða hætti
hann hefði látið óánægju sína í ljós,
en svarar því játandi að Jón Sigurðs-
son, formaður Framsóknarflokksins,
hafi vitað afstöðu hans. Hann segir
nokkra vikna aðdraganda hafa verið
að stjórnarformannsskiptunum þótt
málið hafi fyrst verið rætt um ára-
mótin og menn hafi skipst á skoðun-
um um skiptin í framhaldinu.
Páll Magnússon, bæjarritari í
Kópavogi og fyrrverandi aðstoðar-
maður Valgerðar Sverrisdóttur, tek-
ur við stjórnarformennskunni af Jó-
hannesi. Þegar ráðherrar flokksins
hittust á fundi fyrr í vikunni gagn-
rýndi Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra Jón Sigurðsson, formann
flokksins, en stjórnarformannsskipt-
in eru gerð að undirlagi Jóns. „Ég
hef í sjálfu sér ekkert annað en gott
um Pál Magnússon að segja. Ég hef
þekkt hann frá því hann var ungling-
ur,“ segir Jóhannes Geir.
Laus í vinnu
„Ég hef notað tímann síðustu tvö
ár til að taka mitt háskólanám sem ég
frestaði í 35 ár. Ég þarf bara að skoða
hvað ég geri í framhaldinu, ef það
er einhver þarna sem hefur áhuga
á mér þá lætur hann vita,“ segir Jó-
hannes aðspurður hvort hann sé bú-
inn að finna sér vinnu. Hann seg-
ist fara frá fyrirtækinu með söknuði
en segir það líka ákveðinn létti því
stjórnarformennskunni hafi fylgt
mikil ábyrgð.
Spennandi viðfangsefni
„Þetta er spennandi viðfangsefni
þannig að ég er mjög þakklátur fyr-
ir að fá að taka þátt í þessu verkefni,“
segir nýskipaður stjórnarformað-
ur Páll Magnússon. Aðspurður hvort
ekki sé óþægilegt að taka við stóln-
um í þeim látum sem orðið hafa seg-
ir Páll að hann hafi ekki orðið var við
nein læti enda hafi enginn kvartað við
hann. Páll segir of snemmt að segja til
um hvort honum fylgi áherslubreyt-
ingar en sjálfsagt fylgi nýir siðir nýj-
um mönnum. Hann á þó ekki von á
stefnubreytingum í stjórn Landsvirkj-
unar. „Ég kom ekkert að þeirri ákvörð-
un að skipt yrði um stjórnarformann.
Ég hef heyrt af því að þetta hafi ver-
ið niðurstaðan um áramótin en mitt
nafn kom mér að vitandi ekki upp fyrr
en fyrir nokkrum vikum,“ segir Páll.
Hann mun áfram gegna starfi bæj-
arritara Kópavogs enda ekki um fullt
starf að ræða í Landsvirkjun heldur
stjórnarsetu sem hann ætlar að sinna
af alúð.
Rekstarhagnaður Landsvirkj-
unar á síðasta ári nam 9,8 milljörð-
um króna en hagnaðurinn var 4,7
milljarðar króna árið á undan. „Það
er alltaf hægt að gera betur í rekstri
og það er hlutverk stjórnarinnar að
sýna aðhald,“ segir Páll. Ákveðið var
á stjórnarfundi í gær að greiða 500
milljónir króna í arð.
föstudagur 27. apríl 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Samstarf þrátt
fyrir ágreining
„Engir norskir hermenn
verða með fasta búsetu hér á
landi,“ sagði Geir Haarde for-
sætisráðherra á blaðamanna-
fundi um undirritun varnar-
samnings Íslands og Noregs.
Geir sagðist vera ánægður
með að frændþjóðirnar geti
starfað saman að öryggismál-
um þrátt fyrir deilur í sjávar-
útvegsmálum. „Þetta eru tvö
aðskilin mál og það er eðli-
legt að nágrannaþjóðir deili
að einhverju leiti, alveg eins
og í hjónabandi,“ segir Geir.
Ennfremur tók Geir fram að
viðræður standi yfir við Dan-
mörku, Bretland og Kanada
auk þess sem Þýskaland hafi
óvænt lýst yfir áhuga og mun
sendinefnd á þeirra vegum
koma til landsins í maí næst-
komandi.
Uppihald fyrir
erlendan her
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri-grænna,
furðar sig á samkomulaginu
sem stjórnvöld hafa gert við
Norðmenn um varnarmál.
Steingrímur segir ekkert
hafa komið fram sem rétt-
læti að Íslendingar haldi uppi
erlendum herjum við óþarf-
ar og jafnvel varhugaverð-
ar heræfingar. Telur hann að
þeim fjármunum sem verður
varið í þetta yrði betur varið í
að efla borgaralega gæslu- og
björgunarstarfsemi Íslendinga.
Raunar telur Steingrímur að
samstarfið við Norðmenn geti
leitt til þess að Landhelgisgæsl-
an verði síður efld en ef ekki
hefði komið til samstarfsins.
Refsingarnar
verða þyngri
Þeir sem brjóta af sér í um-
ferðinni mega frá og með degin-
um í dag eiga von á að sæta mun
harðari viðurlögum en áður.
Ný umferðarlög og reglugerð-
ir taka gildi í dag. Lögregla getur
nú gert bíl upptækan ef eigandi
hans er staðinn að stórfelldum
eða ítrekuðum ölvunarakstri,
hraðakstri eða akstri án ökurétt-
inda. Þá er kveðið á um að öku-
maður skal sviptur ökuréttind-
um í þrjá mánuði hið minnsta ef
hann keyrir á tvöfalt hærri hraða
en leyfilegur hámarkshraði segir
til um.
Nýir ökumenn verða að vera
varkárari en áður. Fái þeir fjóra
punkta áður en bráðabirgða-
ökuskírteini þeirra rennur út er
hægt að svipta þá réttindum þar
til þeir hafa farið á námskeið og
tekið ökupróf að nýju.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson vildi sitja í stóli stjórnarformanns Landsvirkjunar í eitt
ár til viðbótar. Hann segir Jóni Sigurðssyni, formanni Framsóknarflokksins, hafa verið
kunnugt um vilja hans til að sitja áfram. Hann segist ekkert hafa út á arftaka sinn, Pál
Magnússon, að setja.
AUGLÝSIR EFTIR STARFI
HJördíS rut SiGurJónSdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Jóhannes Geir segist engar skýringar
hafa fengið á því af hverju hann var
settur af.
Jóhannes Geir
fylgist með viðtali
við Pál Magnússon
Jóhannes segist hafa
þekkt pál frá því
hann var unglingur
og hafa ekkert út á
hann að setja.
Útlendingar bjóða vinnu sína ódýrt á Suðurnesjum:
Vilja vinna fyrir 300 kall
„Þarna er um einangruð tilvik að
ræða þar sem tveir karlar hafa farið á
milli fyrirtækja og undirboðið. Sem
betur fer er þetta mjög sjaldgæft en
það eru líka til dæmi um að Íslend-
ingar bjóði sig fram fyrir lítið. Í þessu
tilviki er þó botninum líklega náð því
þetta eru lægstu upphæðirnar sem ég
hef heyrt,“ segir Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreinasambands Ís-
lands.
Borið hefur á undirboðum launa
á vinnumarkaði á Suðurnesjum þar
sem erlendir verkamenn í atvinnuleit,
einkum Pólverjar, bjóðast til að ráða
sig til starfa fyrir allt niður í 300 krónur
á tímann svart. Verkamennirnir hafa
leitað til fyrirtækja bæði í sjávarútvegi
og byggingariðnaði á Suðurnesjum.
Þessu greina Víkurfréttir frá og segja
heimildarmenn sína staðfesta þessi
undirboð sem vekji upp þá spurningu
hversu algengt sé að fyrirtæki séu að
nýta sér þessi gylliboð.
Kristján vonast til þess að íslensk-
ir atvinnurekendur nýti sér ekki sér
slík tilboð. Hann segir fjölda manns
koma hingað til starfa úr mikilli neyð
í heimalandi sínu. „Við sjáum fólk
koma hingað úr óskaplegri neyð. Það
er mjög dapurlegt ef það er staðreynd
að íslenskir atvinnurekendur séu að
nýta sér þessa neyð. Ég spyr þá ein-
faldlega um siðferði þeirra og trúi því
bara ekki að þetta viðgangist. Það get-
ur bara ekki verið,“ segir Kristján
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, tekur í sama streng og undr-
ast slík undirboð þar sem skortur sé
á vinnuafli ef eitthvað er. Hann hef-
ur enga trú á að atvinnurekendur taki
þátt í þessu því slíkt væri óvirðing við
alla málsaðila. „Ég hef heyrt af því að
svipuð tilvik hafi komið upp á síðustu
árum. Þetta kemur mér á óvart því hér
eru nóg störf að finna fyrir ófaglærða,
til dæmis í byggingariðnaði. Af þeim
sökum hljómar þetta sérkennilega og
er sannfærður um að þetta séu undan-
tekningartilvik. Að sjálfsögðu hvet ég
menn til að líta framhjá svona undir-
boðum og tel mig varla þurfa að minna
atvinnurekendur á það,“ segir Árni.
trausti@dv.is
Lágt kaup Neyð erlendra verkamanna hefur fengið þá til að bjóða fram vinnu sína í
fiskvinnslu og byggingariðnaði fyrir lágt kaup. Borið hefur á undirboðum á suður-
nesjum undanfarið.