Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Qupperneq 30
Köfunardagurinn var haldinn
hátíðlegur í Sundhöll Reykjavíkur í
ellefta sinn um síðustu helgi. Þeg-
ar blaðamann bar að garði var mik-
ið fjölmenni og höfðu kennarar og
leiðbeinendur vart undan, slíkur var
fjöldinn. Fjölmargir loftkútar höfðu
klárast og var mikið líf í vatninu og
sáust ungir sem gamlir skemmta sér
konunglega.
„Í fyrra komu 270 manns og síð-
ustu þrjú ár hefur þetta alltaf verið
meiri og meiri aukning. Þetta virðist
stefna í að toppa árið í fyrra, sem var
þó algjört metár,“ sagði Anton Smári
Sigurjónsson formaður Sportkaf-
arafélags Íslands sem kom að þess-
um árlega degi ásamt fjölda annarra
félaga í Sportköfunarfélaginu.
„Hingað eru krakkar að koma
sem og fullorðið fólk, nánast all-
ir aldurshópar. Við höfum ótrúlega
gaman af því að leyfa krökkunum að
prófa og svo er það líka svo gefandi.
Þeir virðast líka hafa alveg ofsalega
gaman af þessu.“
Kostar sitt en lítið um afföll
Smári segir að ef fólk vilji byrja
að kafa og hafi ekki komist á köfun-
ardaginn sé um að gera að kíkja á
heimasíðu félagsins kofun.is.
„Það eru fjórir aðilar að kenna
hvern einasta dag og tveir skólar
sem vinna við að kenna. Þessir aðil-
ar eru með krækju inni á heimasíð-
unni okkar. Ef þú ert að byrja og ferð
á námskeið þá kostar námskeiðið
55 þúsund krónur, þar færð þú allan
búnað sem þú þarft og í framhald-
inu er hægt að leigja búnað. Með því
námskeiði sem heitir Open Water
færðu réttindi á 18 metra dýpi.“
Smári segir að byrjendapakki
kosti á milli 70 og 350 þúsund, allt
eftir því hversu mikið er lagt í bún-
aðinn. Hvort sem það er neðan-
sjávarmyndavél, búningur, önd-
unarbúnaður eða betri búnaður.
Byrjendakostnaðurinn virðist hár
en hafa skal í huga að afföll á verði
búnaðar eru ekki mikil. Almennur
viðhaldskostnaður búnaðs er sam-
bærilegur við reiðhjól.
Fjöldi annara framhaldsnám-
skeiða eru síðan í boði, Advanced
Open Water Diver réttindi sem leyf-
ir þér að kafa niður á fjörutíu metra
dýpi og síðan Nitrox diver þar sem
þú færð nitrox-blöndu á loftkútinn.
„Það verður að sýna skírteini til
að fá Nitrox á loftkútinn því kunn-
áttuleysi með Nitrox getur leitt til
eitrunar og dauða.
Það dugar samt alveg fyrir hinn
almenna áhugamann að hafa Open
Water-skírteini.“
Þingvellir heimsfræg
köfunarperla
Köfunarmenn og -konur hafa
verið dugleg að kafa hjá Álverinu í
Straumsvík, í Kleifarvatni og á Þing-
völlum sem er ein frægasta köfunar-
perla heimsins.
„Þingvellir eru mikið sóttur sem
köfunarstaður, gjáin Silfra er dýpst
65 metrar en það er hægt að kafa
þar sem Open Water-kafari og hafa
ofboðslega gaman af. Það eru fullt af
köfunarstöðum rétt hjá höfuðborg-
arsvæðinu.
Það eru margir sem halda að köf-
un snúist um að komast á sem mest
dýpi, en þannig er það alls ekki. Það
sem þú vilt sjá í köfun er dýralíf og
það getur verið mikið líf á tíu metra
dýpi og jafnvel fimm metra dýpi. Ég
hef farið í meiriháttar köfunarferð-
ir á fimm til tíu metra dýpi. Suður
í Garði er mjög gaman að hoppa
bara fram af Garðsbryggju, þar er 19
metra dýpi mest og mikið dýralíf.
Nokkrir félagar köfuðu þar með
höfrungum í klukkutíma þangað til
að loftið kláraðist. Þá fóru þeir bara
nánast að gráta við að þurfa að yf-
irgefa þá. Það er til myndband af
þessu og er rosalega flott.
Það eru þó nokkrir meðlimir í fé-
laginu þar sem öll fjölskyldan er að
kafa, krakkarnir og hjónin. Sá yngsti
í félaginu sem hefur Open Water-
réttindi var 12 ára þegar hann tók
réttindin. Það er miðað við að krakk-
arnir séu orðnir 15 ára en sumir
krakkar eru svo öruggir með sig að
það er ekkert mál.“ benni@dv.is
föstudagur 27. apríl 200730 Sport DV
Köfun
Nokkrir félagar köfuðu
með höfrungum í
klukkutíma þangað til
að loftið kláraðist. Þá
fóru þeir bara nánast
að gráta við að þurfa
að yfirgefa þá.
snýst eKKi um að fara sem dýpst
Mikið fjölmenni kíkti
við í Sundhöll Reykja-
víkur á hinn árlega
köfunardag Sportkaf-
arafélags Íslands um
síðustu helgi. Sá yngsti
sem prófaði var tíu ára
og sá elsti var um sjö-
tugt.
Tilbúinn í slaginn
Þessi ágæti herra var
tilbúinn til að læra að kafa.
Handagangur í
öskjunni Það var líf
og fjör í sundhöllinni
um síðustu helgi.
Ungir sem aldnir
Hér eru kennarar að gefa
ungum nemanda góð ráð.