Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 35
fimmtudagur 19. apríl 2007DV Sport 35
gefa þessum strákum tækifæri með
meistaraflokki þegar þeir eru ungir.
Það hefur mjög mikið að segja. Allir
þessir leikmenn hafa fengið sín tæki-
færi og verið að æfa með meistara-
flokki,“ segir Luka Kostic.
Það er meira gert í landsliðsferð-
um en spilað. „Sögustundirnar í her-
bergi doktors Einars eru algjörlega
ómissandi í svona ferðum og svo má
ekki gleyma skemmtikvöldunum hjá
Frey. Hann sýnir þar töfrabrögð og
fleira. Svo eru strákarnir með leikja-
tölvur svo þeir skemmta sér bara eins
og þeir geta.“
Það eru margar freistingar í lífinu
fyrir unga stráka en Luka Kostic seg-
ist engar áhyggjur hafa af því að þess-
ir strákar sem eru í U17 landsliðinu
villist af braut. „Ég er ekki í vafa um
að fótbolti er efst í forgangsröð þess-
ara stráka ásamt kannski skólanum.
Ég hef fylgst með þeim í gegnum
dagbókarform sem ég hef látið þá
fylla út. Þar hefur sýnt sig að það er
ekki mikill tími fyrir mikið annað en
fótboltann og skólann,“ segir Luka.
„Ég hef svakalega trú á þessum strák-
um og tel að þeir séu enn á uppleið.
Við eigum ennþá eitthvað inni.“
elvargeir@dv.is
Luka Kostic -
landsliðsþjálfari
Hefur stjórnað u17 landsliði
karla frá 2003 en hann hafði
áður þjálfað lið Þórs, grindavík-
ur, Kr og Víkings í efstu deild.
Hann þjálfar einnig u21 landslið
karla í dag og vinnur að ýmsum
málum, þar á meðal hæfileika-
mótun, fyrir Knattspyrnusam-
band íslands.
Vignir Jóhannesson -
Breiðablik
Fæddur 6. september 1990
markvörður sem hefur sýnt
mjög miklar framfarir á síðustu
mánuðum og er enn að gera
það. Er búinn að þroskast mikið
líkamlega og í hugsun.
grimmur, ákveðinn og með góð
viðbrögð milli stangana. Hann
er mjög jákvæður og góður fyrir
hópinn. týpa eins og markverðir
eiga að vera.
Trausti Sigurbjörnsson - ÍA
Fæddur 25. september 1990
mjög metnaðargjarn markvörð-
ur. Var fyrst þriðji markvörður í
þessum aldursflokki en setti sér
það markmið að verða númer
eitt. Er aðalmarkvörður u17
landsliðsins í dag og geislar af
öryggi og sjálfstrausti sem
smitar út frá sér til hópsins.
gefst aldrei upp og stígur vart
feilspor í markinu.
Finnur Orri Margeirsson -
Breiðablik
Fæddur 8. mars 1991
Er einu ári yngri en flestir í
hópnum. Hvar sem hann er
látinn spila þá stendur hann allt-
af 100% fyrir sínu. Hefur nef fyrir
leiknum, góða tækni og gefur
aldrei tommu eftir. Er rólegur
utan vallar en innan hans er
hann eins og eldgos. Hefur sýnt
það í leikjum gegn stærri og
reyndari mönnum hversu
megnugur hann er.
Kristinn Jónsson - Breiða-
blik
Fæddur 4. ágúst 1990
Hefur sprungið út en hann
spilar oftast sem vinstri
bakvörður. Er sóknarsinnaður
og líklegur til að skapa hættu
fram á við með fyrirgjöfum eða
skotum. Er einnig mjög sterkur
varnarlega. getur hlaupið
endalaust og gefur liðinu nýjar
víddir í spilamennskunni.
Kristinn Steindórsson -
Breiðablik
Fæddur 29. apríl 1990
Hefur mjög mikla kunnáttu og
líkir luka honum við demant.
getur notað báðar fætur og
hefur góða tækni. Er með mjög
gott auga fyrir samspili og getur
skorað mörk. Hefur verið að
spila með meistaraflokki
Breiðabliks og skorað á
undirbúningstímabilinu. Eini
galli hans er að honum skortir
styrk líkamlega.
Brynjar Benediktsson - FH
Fæddur 7. febrúar 1990
Hefur svakalega knattspyrnu-
getu og mikið jafnvægi.
tæknilega er hann frábær og
hefur margt til brunns að bera.
Hefur verið að leysa þrjár stöður
með landsliðinu, djúpan
miðjumann, á vængnum og
sókninni. Hjá fH spilar hann
frammi og skorar mikið. Er
ómissandi fyrir hópinn.
Guðlaugur Victor Pálsson -
Fylkir
Fæddur 30. apríl 1991
Er einu ári yngri en flestir í
hópnum. Hefur mikla hæfileika
en þarf að læra meira varðandi
skipulag. Þetta mót getur
hjálpað honum í því. mjög
góður í öllu spili. Býr yfir tækni
og kemur með meiri möguleika
inn í hópinn með þeim mikla
hraða sem hann býr yfir.
Björn Jónsson - Heerenveen
Fæddur 7. janúar 1990
Spilar í Hollandi. mjög
skemmtilegt að fylgjast með
honum enda listamaður með
knöttinn. Hefur glæsilega tækni
og er þar að auki stór og vinnur
mikið af skallaboltum. mjög
duglegur og þá er hann með
frábæran leikskilning.
Spilamennska liðsins snýst að
miklu leyti í kringum hann.
Aaron Palomares - HK
Fæddur 9. mars 1990
fljótur og grimmur kantmaður
sem býr yfir fínni tækni og getur
hlaupið endalaust. Hann er
góður í samspili og stöðugt
ógnandi. Skorar en skilar sínu
einnig varnarlega. Hefur vaxið
mikið sem leikmaður og hefur
til dæmis bætt leikskilning til
mikilla muna.
Eggert Rafn Einarsson - KR
Fæddur 28. janúar 1990
Spilaði einnig með u17 landslið-
inu í fyrra og á því marga leiki
að baki. mjög hraður og harður
varnarmaður sem erfitt er að
komast framhjá. hefur mjög
góðar sendingar, bæði langar
og stuttar. Hefur sýnt miklar
framfarir síðustu mánuði.
traustur og glæsilegur fyrirliði.
Þórarinn Ingi Valdimarsson -
ÍBV
Fæddur 23. apríl 1990
Örvfættur leikmaður sem gefur
liðinu meiri möguleika vinstra
meginn á vellinum. Er hraður og
góður í samspili. Er mjög góður
í hóp, hefur mikinn leiksskilning
og er alltaf tilbúinn til að læra
meira. Ótrúlega jákvæður og
mikil útgeislun í kringum hann.
Ragnar Þór Gunnarsson - ÍA
Fæddur 6. júní 1990
Ákveðinn mótor í liðinu.
duglegur leikmaður sem er á
fullu allan tímann. Er líka mjög
góður í að lyfta liðinu upp,
hvetur liðsfélagana áfram. Hann
er mjög hugrakkur og les
leikinn mjög vel. Hefur góða
tækni og endalausa hlaupagetu.
luka segir hann vera gullmola
innan hópsins, bæði innan
vallar og utan.
Kolbeinn Sigþórsson - HK
Fæddur 14. mars 1990
leikmaður sem andstæðingarn-
ir vilja ekki mæta. Stöðugt
ógnandi og hefur nánast
fullkomna boltatækni. Er einnig
mjög sterkur í loftinu og góður
að spila. Hans tími í unglinga-
knattspyrnu er að baki og hann
er tilbúinn í alvöru slaginn.
dregur liðið á hærra plan og er
þegar á óskalista margra
stórliða í Evrópu.
Hólmar Örn Eyjólfsson - HK
Fæddur 6. ágúst 1990
Sonur Eyjólfs Sverrissonar, a-
landsliðsþjálfara og fyrrum
atvinnumanns. framtíðarvarn-
armaður og hefur heilmikla
getu. Er mjög hraður og sterkur
líkamlega. mjög erfitt að
komast framhjá honum maður
á mann. Hefur góðar langar
sendingar og mikinn stökkkraft
líkt og faðir hans. mjög traustur
og smitar út frá sér jákvæðni.
Frans Elvarsson - Njarðvík
Fæddur 14. ágúst 1990
leikmaður sem býr yfir mikilli
spyrnutækni og á mjög góðar
sendingar. mjög harður
varnarlega og er sterkur í
loftinu. Hann hleypur endalaust
og spilar boltanum oft einfalt.
Hann heldur boltanum vel niðri
á jörðinni sem er markmið
liðsins. Spilar vel fram á við og
bindur liðið saman sóknarlega
og varnarlega.
Viktor Unnar Illugason -
Reading
Fæddur 25. janúar 1990
Spilar með unglingaliði og
varaliði reading á Englandi.
Hefur mikla getu og kann að
skora. Hann er með góða
tilfinningu fyrir boltanum,
heldur miklum stöðugleika,
hefur auga fyrir samspili og er
sífellt ógnandi í sóknarleiknum.
Hann er líkamlega sterkur og
duglegur. Ber ekki virðingu fyrir
neinum andstæðingi og býr yfir
hugrekki.
Jóhann Laxdal - Stjarnan
Fæddur 27. janúar 1990
Öll góð lið verða að hafa svona
leikmann í sínum röðum. Er
ómissandi fyrir liðið og skilar
alltaf sínu. Á móti mörgum
stórefnilegum erlendum
leikmönnum hefur hann sýnt
hvað í honum býr. Er varnarjaxl
sem er duglegur og jákvæður.
með mikið sjálfstraust.
Arnar Sveinn Geirsson -
Valur
Fæddur 30. ágúst 1991
Er einu ári yngri en flestir í
hópnum en hefur blómstrað
undanfarna mánuði. Var fyrst
valinn í æfingahópinn til að
undirbúa hann fyrir næsta ár.
Hann sló hinsvegar í gegn á
æfingum og komst alla leið í
hópinn. Hraður og sterkur
líkamlega, er mjög ógnandi og
fer rakleiðis að marki andstæð-
ingsins. Er með íþróttagen og
gefur liðinu aðrar víddir.
STOLTUR HVERNIG SEM FER
Leikir Íslands
í riðlinum
í Belgíu:
2. maí: England
4. maí: Holland
7. maí: Belgía
Ræðan Luka Kostic ræðir við strákana.
Efnilegur hópur Luka
Kostic segist aldrei hafa séð
jafngóðan hóp hjá
unglingalandsliði á Íslandi.