Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 38
Föstudagur 27. apríl 200738 Helgarblað DV að mismuna samkynhneigðum áfram Þjóðkirkjan samþykkir P restastefna sem haldin var á Húsavík fjallaði um mál- efni samkynhneigðra. Mik- il spenna ríkti fyrir atkvæða- greiðslu um umdeilda tillögu 42 presta og guðfræðinga um að Þjóðkirkjan færi þess á leit við Alþingi að það samræmdi hjúskap- arlög og lög um staðfesta samvist þannig að vígslumönnum Þjóðkirkjunnar og skráðra trúfélaga yrði heimilt að annast hjónavígslu samkynhneigðra. Tillagan var felld með mikl- um mun, sextíu og fjórum atkvæðum gegn tuttugu og tveimur. Prestastefnan samþykkti hins vegar tillögu með 43 atkvæðum gegn 39 að prestar, sem það kjósa, megi vígja samkynhneigða í stað- festa samvist. Samtökin ‘78 segja það vera skýlausa kröfu þeirra að Þjóðkirkjan viðurkenni fullt jafnrétti samkynhneigðra og sagði Hrafnhildur Gunn- arsdóttir, varaformaður samtakannam í sam- tali við DV á fimmtudag að ljóst sé að Þjóð- kirkjan ætli sér að halda áfram að mismuna samkynhneigðum. Niðurstaða atkvæða- greiðslunnar hafi þó verið eins og við var að búast. Það sé ekki auðvelt að breyta reglum sem hafa verið gildandi í mörg hundruð ár. DV leitaði til nokkurra samkynhneigðra Íslendinga sem láta sig málið varða og fékk þeirra álit á niðurstöðu prestastefnunnar. Spurning hvort kirkjan sé hæf til að fara með heimild að lögum Heimir Már Pétursson er framkvæmda- stjóri Hinsegin daga í Reykjavík. Hann er í staðfestri sambúð með Jean François Tessir, gert hjá sýslumanninum í Reykjavík. „Söfnuðir landsins og þar með Þjóðkirkj- an þiggja heimild sína til að gefa út hjúskapar- vottorð frá Alþingi. Það er hjúskaparvottorðið sem veitir hjónum lagaleg réttindi og leggur á þau lagalegar skyldur, ekki blessun prestsins eða heitið sem hann biður pör að taka um ei- lífða tryggð. Blessunin hefur aðeins gildi fyr- ir trúaða, þá sem vilja bindast trúnaðarbandi frammi fyrir guði sínum. Alþingi hefur sett lög sem banna alla mis- munun gegn samkynhneigðum. Ef Þjóðkirkj- an getur ekki orðið við þeim lögum með því að gefa út hjúskaparvottorð fyrir hönd stjórn- valda til samkynhneigðra, er spurning hvort hún sé hæf til að fara með heimildina? Það er ekki sjálfgefið að söfnuðir hafi þessa heimild og sumstaðar hafa þeir hana alls ekki og fólk þarf að fá hjúskaparvottorð sitt frá skrifstofu yfirvalda, jafnvel þótt það þiggi svo blessun í kirkju. Það er hins vegar verra að þrákelkni Þjóðkirkjunnar til að viðurkenna kristni sam- kynhneigðra hefur komið í veg fyrir að löggjaf- inn veiti öðrum söfnuðum sem óskað hafa eft- ir því, heimild til að gefa út hjúskaparvottorð fyrir hönd ríkisins. Lausnin er því ef til vill sú að taka heimildina af öllum söfnuðum og láta embættismenn ríkisins alfarið um útgáfu hjú- skaparvottorða, þar sem gildandi lög um jafn- an rétt gagnkynhneigðra og samkynhneigðra er virtur.“ Löggjörningurinn á ekki heima í kirkju Bergþór Pálsson söngvari er í sambúð með Alberti Eiríkssyni framkvæmdastjóra. „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara spurningunni um hvort það skipti samkyn- hneigða máli að fá að gifta sig í kirkju, vegna þess að mér finnst löggjörningurinn ekki eiga heima í kirkju. Mér finnst eðlilegt að farið sé með þetta mál eins og víða er gert í öðrum löndum, að löggjörningurinn fari fram hjá borgarfógeta eða sýslumanni og síðan geti hver sem er farið í kirkju og fengið blessun yfir sambandið. En það verður að fara eftir því hvort trúarstofnunin leyfir það, sjálfum finnst mér ekki hægt að skylda trúarstofnun til þess að hafa ákveðna trú. Mér finnst alveg sjálfsagt að farið sé með sérstakt ritúal yfir samkynhneigðum en á sama hátt verður það að vera samkvæmt sannfæringu prestsins sem framkvæmir það. Sjálfum finnst mér eðlilegast að ritúalið sé mjög svipað þótt það sé auðvitað ekki hægt að nota sömu orð. Merkingin er alltaf sú sama. Þeirri spurningu hvort mér finnist kirkjan vera að mismuna börnum sínum verð ég að svara þannig að það er háð þeirri sýn sem ég hef á þessi mál. Mér finnst ekki hægt að pína neinn til þess að blessa samband sem honum finnst ekki eðlilegt og ef samkynhneigður aðili vill ekki vera meðlimur í slíkri kirkju þá hefur hann val um að fara eitthvert annað. Þróunin er í þá átt að fólk bíður átekta og sér hvern- ig málin þróast. Það er alltaf verið að taka eitt og eitt spor í rétta átt. Það eru geysilega marg- ir prestar innan kirkjunnar sem eru samkyn- hneigðum hliðhollir. Við Albert erum í hópi þeirra sem bíða átekta og eftir að ákvörðun er tekin höfum við val um það hvað við viljum gera. Ég er ekkert beiskur út í kirkjuna og skil að sumu leyti bæði sjónarmiðin.“ Víkur jafnréttisboðskap Krists til hliðar Sigursteinn Másson, formaður Öryrkja- bandalags Íslands, giftist Caio Namur Milreu í Fríkirkjunni í fyrrasumar. „Það skiptir jafn miklu máli fyrir samkyn- hneigða og aðra landsmenn að hafa mögu- leikann að gifta sig í kirkju. Kirkjan er í hug- um fólk meira en trúarleg stofnun. Hún er mikilvægur hluti samfélagins í gleði og sorg. Ekkert okkar kemst hjá því að sækja kirkju á sérstökum hátíðar- og sorgarstundum. Sam- kynhneigðir eru skírðir og fermdir í kirkju og sömuleiðis jarðsungnir. Af hverju ættu sam- kynhneigðir þá að sætta sig við útskúf- un þegar kemur að ást þeirra og hjónalífi? Þegar ég gifti mig í Frí- kirkjunni síðasta sumar var sama hjónaritúal notað og hjá öllum öðrum. Engum gest- anna fannst það skrýtið. Það er betra að kirkjan komi alveg hreint til dyranna og útskúfi opinberlega sam- kynhneigðum í eitt skipti fyrir öll frek- ar en að bjóða okkur upp á einhverja áframhaldandi sér meðferð. Þjóðkirkj- an er íhaldssöm stofnun og í síbreyti- legum heimi er það að sumu leyti gott. Þegar hún hins vegar mismunar fólki á grundvelli kynhneigðar eins og hún hefur gert þá víkur hún jafnréttisboð- skap Krists til hliðar og hefur á loft aldagamlan rétttrúnað sem stóð fyrir mismunun og yfirgang. Sú kirkja er ekki kirkja krists og getur heldur ekki staðið undir nafni sem þjóðkirkja. Þess vegna er brýnt að þjónar kirkj- unnar skynji sinn vitjunartíma nú og sjái ljósið í kærleikanum og jafnrétt- inu fyrir alla en ekki bara flesta.“ Þjóðkirkjan vinnur gegn þjóðinni Kristín Þ. Þórisdóttir, oft köll- uð Kidda Rokk, er í staðfestri sam- vist með Ingu Björk Hannesdóttur rekstrarstjóra. Giftu sig hjá sýslu- manni 1. febrúar 2003. „Að sjálfsögðu eiga samkyn- hneigðir að hafa jafnan rétt og aðrir. Þetta er mannréttinda- spursmál. Þeir sem vilja gifta sig í kirkju eiga að fá að gera það, sérstaklega af því að þetta á að heita þjóðkirkja. Mér finnst að þeir sem vijla láta gifta sig í kirkju fái að gera það. Að minnsta kosti 22 prestar eru til í að gifta samkynhneigða, ég er hlynnt því að þeir sem vilja það geti fengið leyfi til þess að gera það. Já, mér finnst kirkjan algjörlega vera að mismuna börnum „Þrákelkni Þjóðkirkjunnar til að viðurkenna kristni sam- kynhneigðra hefur komið í veg fyrir að löggjafinn veiti öðrum söfnuðum sem ósk- að hafa eftir því, heimild til að gefa út hjúskaparvottorð fyrir hönd ríkisins.“ „Það var ekki eingöngu verið að fjalla um það hvort kirkjan ætti að hætta þessari mis- munum heldur um fram- tíð hennar innan íslensku þjóðarinnar.“ Bergþór Pálsson „sjálfsagt að farið sé með sérstakt ritúal.“ Kristín Þórhalla Þórisdóttir „Kirkjan mismunar börnum sínum.“ Hanna Katrín Friðriksson „Það skiptir máli fyrir trúað fólk að fá að gifta sig í kirkju.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.