Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Síða 40
föstudagur 27. apríl 200740 Ættfræði DV ættfræði U m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s Reykjavík fyrr og nú: Gamla Lækjargötu Síðasta vetrardag brunnu tvö af elstu húsunum í miðbæ Reykjavíkur. Eldra húsið og það sögufrægara, sem er meðal annars fyrrverandi ráðhús Reykjavíkur, (Austurstræti 22) er mjög illa farið og jafnvel ónýtt, en yngra hús- ið (Lækjargata 2) er mikið brunnið að innan. Borgarstjóri hefur lýst áhuga á því að borgin kaupi húsin og lóðirnar og byggi þau upp í fyrri mynd. Þetta hefur yfirleitt mælst vel fyrir þótt einnig hafi heyrst raddir um að nú sé tímabært að byggja upp allan reitinn sem afmarkast af Lækjargötu, Austurstræti, Pósthússtræti og Skóla- brú þannig að þar séu alls staðar fimm til sex hæða hús. Stóra spurningin er því enn og aftur sú hvaða stefnu eigi að taka um framtíð miðbæjarins. Spillingarbælið Reykjavík Þegar Ísland reis úr öskustónni fyrir hundrað árum og menn fóru að mynda hér þéttbýli að hætti siðaðra manna, var okkur sagt að slíkt hátta- lag væri aðför að menningararfinum. Sveitin varð að málsvara þjóðlegra verðmæta en í Reykjavík rökkuðu sig saman höfðingjasleikjur, hórur, brask- arar og landráðamenn. Frá Pilti og stúlku Jóns Thoroddsen að Atómstöð Halldórs Laxness hafa íslenskar skáld- og smásögur lýst Reykjavík sem spill- ingarbæli. Er nema von að menn sæju ekki ástæðu til að halda til haga sögum úr slíkum stað, hvað þá sögusviðinu. Skipulagsslys og bruninn 1915 Framfarir tuttugustu aldar komu frá Reykjavík sem þar með varð borg framtíðar – ekki fortíðar. Íbúunum fjölgaði hraðar en nokkurn óraði fyr- ir og borgaryfirvöld höfðu ekki und- an að skipuleggja íbúðarhverfi, at- hafnasvæði og umferðarmannvirki. Við þessar aðstæður sýndu borgarfull- trúar oft ótrúlegt sinnuleysi gagnvart sögulegum verðmætum. Dæmi þar um eru niðurrif Skólavörðunnar, Amt- mannshússins og Siemsenshúss. Því miður hafa svo margir arki- tektar bætt gráu ofan á svart með því að reisa sjálfum sér minnisvarða í stað þess að taka tillit til samfélags- ins, sögunnar og nánasta umhverfis. Dæmi um slíka vafasama minnisvarða í miðbænum eru viðbygging Lands- bankans, Morgunblaðshöllin, Bóka- búð Sigfúsar Eymundssonar í Austur- stræti, húsið milli Reykjavíkurapóteks og Hótel Borgar og Iðnaðarbankinn í Lækjargötu. Öll þessi atriði, að viðbættum brunanum mikla 1915, hafa lagst á eitt við að skapa hér miðbæ sem er á góðri leið með að missa öll sín sérkenni. Skáldunum úthýst Ólíkt Akureyri sem á sitt Nonna- hús, safn Davíðs Stefánssonar og Sig- urhæðir, og ólíkt öllum bæjum og borgum um víða veröld sem stæra sig af sínum stórskáldum, hafa borgaryf- irvöld aldrei séð minnstu ástæðu til að minnast þeirra stórskálda sem Reykja- vík hefur fóstrað. Hvar í Reykjavík hélt Jónas Hall- grímsson til, eða Sigurður Breiðfjörð? Hvar við Austurvöllinn var hús Stein- gríms Thorsteinssonar? Hvert er nú- verandi ástand húss Benedikts Grön- dal við Vesturgötuna – og er það ekki á förum? Hvar væri Unuhús í dag ef einkaaðili hefði ekki haldið því sóma- samlega við? Hvar fæddist Halldór Laxness við Laugaveginn og hvar sér þess stað? Hvað varð um tillögu Al- berts Guðmundssonar í borgarstjórn um að láta útbúa Þórbergslund á bak við Hringbraut 45? Og hvar bjó borg- arskáldið Tómas Guðmundsson eða Steinn Steinarr, tvö höfuðskáld þjóð- arinnar á tuttugustu öld? Saga, sérkenni og félagsmótun Það kann að þykja sérviska að vilja halda í sögu og sérkenni miðbæjarins, en sú sérviska er engu að síður mik- il pólitísk viska. Hún er fólgin í þeim kjarna íhaldsstefnunnar, að sérhvert samfélag sem afneitar sögu sinni og sérkennum, verði sjálfu sér sundur- þykkt. Það er manninum eðlilegt að skoða sjálfan sig sem hluta af stærri heild, skilgreina sig í víðtækara sam- hengi tíma og rúms en æviskeið hans nær yfir, tengjast tilfinningaböndum því umhverfi sem hann elst upp við og ljá sérkennum þess merkingu með því að tengja þau við söguna. Þess vegna er það mannskemm- andi fyrir börn og unglinga að al- ast upp við þau viðhorf að umhverfi þeirra sé merkingarlaust – án sögu og sérkenna. Slíkt umhverfi stuðlar að sjúklegri sjálfhyggju og elur á tilgangs- leysi og andfélagslegum viðhorfum sem birtast okkur í veggjakroti, ann- arri skemmdarstarfsemi og ofbeldi. Við erum ekki einungis Íslendingar. Við erum Reykvíkingar og eigum að fá að vera stolt af því. En til þess þurfum við staðfestingu frá umhverfinu. Við þurfum sögur og sérkenni, ekki síst í miðbæ Reykjavíkur þar sem við kom- um saman þegar mikið liggur við. Við þurfum sögu og sérkenni sem segja okkur fyrir hvað Reykjavík stendur - og fyrir hvað við stöndum sem Reyk- víkingar. Saga, sérkenni og ferðaþjónusta Önnur rök fyrir sögu og sérkenn- um miðbæjarins eru fjárhagsleg. Eðli málsins samkvæmt eru ferðamenn sífellt á höttunum eftir skemmtileg- um sögum og staðbundnum sérkenn- um. Þeir vilja upplifa einkenni þeirrar menningar sem þeir hafa lagt á sig að heimsækja, ekki sálarlaus tollstjórahús sem eru alls staðar eins í veröldinni. Það sem því vekur athygli þokkalega upplýsts ferðamanns í miðbæ Reykja- víkur eru gömul dönsk grindarhús, gömlu dönsku átjándu aldar steinhús- in, Stjórnarráðshúsið og Dómkirkj- an, bárujárnsklæddu timburhúsin frá fyrsta áratug tuttugustu aldar og glæsi- legustu stórhýsi Guðjóns Samúels- sonar. Það er því augljóslega farið að standa ferðaþjónustu í Reykjavík fyr- ir þrifum að Miðbærinn er hvorki fugl né fiskur og hefur of lengi verið í nið- urníðslu án þess að teknar séu stefnu- mótandi ákvarðanir um framtíð hans. Einhver bjargráð? Það að bjarga Miðbænum, snýst um tvennt. Að viðhalda ákveðnu yf- irbragði, andrúmslofti og einkenn- um sem minna á sögu Miðbæjarins í þau tvö hundruð ár sem hann hefur verið við lýði og að viðhalda því fjöl- breytta mannlífi sem við viljum sjá þar blómstra. Málið snýst alls ekki um það eitt sér, að vernda gömul hús. Við get- um hæglega ofverndað húsin og eytt með því mannlífinu.Við viljum ekki breyta Miðbænum í byggðasafn því þá kæmu þangað jafnmargir og koma á Árbæjarsafnið, en það eru ekki mjög margir. Í öðru lagi þurfum við að hafna al- farið þeirri kenningu að hin ósam- stæða byggð Miðbæjarsins sé sjarmer- andi. Hún er það ekki. Við þurfum að auka samræmið, huga að götumynd- um þar og byggðarkjörnum sem gætu orðið dæmigerðir fyrir tiltekna byggð í byggingarsögu Miðbæjarins, herða skipulagsskilyrði og vera ófeimin við að færa til hús í þessu skyni (eins og Ísafoldarhúsið) endurbyggja horfin hús (eins og Uppsali) og breyta fram- hlið húsa (eins og til dæmis húss- ins milli Reykjavíkurapóteks og Hótel Borgar). Byggðarkjörnum af þessu tagi yrði ekki komið upp á einum degi en með því að skilgreina hús sem víkjandi eða ríkjandi á tilteknum svæðum væri hægt að stuðla að jákvæðari þróun í þessum efnum. Gamla Lækjargötu Gott dæmi um slíka götumynd sem stuðla bæri að, væri Lækjargat- an í mun upprunalegri mynd en hún er nú. Þá yrði stefnt að því á næstu árum eða áratugum, að skipulags- slys eins og Iðnaðarbankinn, Lækj- argata 4 og húsið sem kom í staðinn fyrir Nýja bíó yrðu víkjandi í götu- myndinni, en Ahrenzhús flutt aft- ur úr Árbæjarsafni á sinn uppruna- lega stað og fyllt upp í götumyndina með eldri húsum sem annar staðar þurfa að víkja. Þar með yrði Lækjar- gatan að gömlu, fallegu ,,striki’’ milli tveggja nýrra póla, Tónlistar- og ráð- stefnuhúss í norðri, og uppbyggingar í Vatnsmýrinni í suðri. Götumyndin myndi einnig kallast á við Stjórnar- ráðið, Bernhöftstorfu og Mennta- skólann sem mynda sögufrægustu götumynd landins. Vonandi viðhorfsbreyting Nýr borgarstjórnarmeirihluti kom í veg fyrir að tröllaukið stórhýsi sem R-listinn var þó búinn að samþykkja, yrði reist á horni Lækjargötu og Von- arstrætis. Sú bygging hefði endan- lega eyðilagt hina gömlu götumynd Lækjargötunnar. Nú er verið að skoða möguleika á því að opna aftur lækinn og láta hann renna eftir Lækjargöt- unni eins og áður fyrr en ekki und- ir henni. Viðbrögð Vilhjálms borgar- stjóra við brunanum síðasta vetrardag lýsa röggsemi og myndugleika stjórn- málamanns sem lætur sér ekki standa á sama um sérkenni Miðbæjarins. Þá stendur til að finna Ziemsenhús- inu stað á bílastæðinu við Grófina og menningar- og ferðamálaráð vinnur nú að metnaðarfullum hugmyndum um að gera grásleppuskúrana við Æg- isíðu að lifandi safni. Öll þessi dæmi og ýmis fleiri benda til þess að núverandi borgarstjórnar- meirihluti geri sér betur grein fyrir því en aðrar borgarstjórnir hingað til, að saga og sérkenni Kvosarinnar snúast ekki einungis um svo kölluð menn- ingarverðmæti, heldur einnig og ekki síður um félagsleg og fjárhagsleg verð- mæti. Ættfræði DV Kjartan gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra íslendinga. lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk� dv.is skemmtilegri miðbæ Lækjargatan á sjötta áratug síðustu aldar lækjargatan er ein af fáum götum Kvosarinnar sem hefur haldið nokkuð heillegri húsaröð gamalla húsa frá því á nítjándu öld og frá upphafi tuttugustu aldar. Lækjargatan frá því í lok nítjándu aldar Myndin er tekin í norður og sýnir þrjú hús sem enn standa við götuna en fjórða húsið, ahrenzhús, er nú á Árbæjarsafni. Þá sést á myndinni að lækurinn hefur enn ekki verið settur í stokk en það var gert 1911.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.