Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Page 42
Föstudagur 27. apríl 200742 Helgarblað DV B etty Suarez hefur alltaf haft eitt mark- mið í lífinu, að ná langt í fjölmiðla- bransanum. Þar sem Betty greyið hefur ekki beint út- litið með sér hafa fáir gefið sér tíma til þess að kynn- ast því hversu klár og dugleg hún er svo hingað til hefur henni ekki gengið alltof vel að fá vinnu. Þrátt fyrir að vera vel menntuð í fjöl- miðlafræðum hefur hún ekki feng- ið tækifæri til að vinna við sitt heit- asta áhugamál þar til, henni sjálfri til mikillar furðu, hún fær vinnu hjá flottasta tískutímariti Banda- ríkjanna, Mode-tímaritinu, sem aðstoðarmaður ritstjóra. Það var í raun útlit hennar sem réði því að hún fékk vinnuna því stofnandi og eigandi Mode-tískuveldisins, Bradford Meade, sá fram á það að með Betty sem aðstoðarmann myndi sonur hans, Daniel Meade, ná að halda sig á mottunni og ein- beita sér að nýja starfinu sínu sem ritstjóri tímaritsins. Daniel Meade er mikill kvennabósi og hefur hing- að til haft meiri áhuga á að horfa á eftir fallegum kvenmönnum held- ur en að vinna fyrir föður sinn svo mikil pressa er nú á honum að standa sig vel í starfi sínu sem rit- stjóri tímaritsins. Harður heimur tískunnar Hjá Mode-fyrirtækinu snýst að sjálfsögðu allt um tískuna og útlitið á öfgafullan en skemmtilegan hátt og í hinum harða heimi tískubrans- ans virðast allir tilbúnir til að fara örlítið yfir siðferðismörkin til að fá sínu framgengt. Sú sem er einna grófust við að ná á toppinn er hin hrokafulla Vilhelmina, sem er goð- sögn hjá Mode og hefur starfað fyr- ir fyrirtækið í tuttugu ár, en það er leik- og söngkonan Vanessa Willi- ams sem fer á kostum í hlutverki Vilhelminu. Að sjálfsögðu verður hún ekki sátt við ákvörðun forstjór- ans Bradfords um að setja kvenna- bósann son sinn í ritstjórastöðuna og vinnur því hörðum höndum að því að ýta feðgunum frá völdum og yfirtaka sjálf fyrirtækið. Í kjölfar nýju vinnunnar hefst svo barátta Bettyar við að reyna að falla inn í hópinn hjá útlitsdýrk- andi samstarfsmönnum sínum sem eru ekki beint á þeim bux- unum að taka hinni lummulegu Betty opnum örmum. Fyrsta dag- inn sinn í vinnunni mætir hún í rauðskræpóttu „poncho“-sjali og byrjar á því að skreyta skrifborð- ið sitt með bleikum kanínubangsa og öðrum undarlegum hlutum sem vekur ekki beint lukku hjá samstarfsfólki hennar. Hin tík- arlega Amanda sem starfar sem símadama hjá Mode byrjar strax á fyrsta degi að gera Betty lífið leitt með kvikyndislegum skotum á klæðaburð hennar og útlit. Það eru þó ekki allir jafnandstyggi- legir og Amanda því skoskættaða saumakonan Christina er ekki lengi að sjá góðmennskuna í Betty og verða þær góðar vinkonur og má eiginlega segja að Christina sé eins konar klettur fyrir Betty inn- an veggja fyrirtækisins. Fjölskyldan mikilvægust Ásamt því að fylgjast með Betty sinna starfi sínu með sóma (sem virðist þó aðallega felast í því að senda hjásvæfum yfirmannsins blóm og skartgripi og bjarga hon- um úr vandræðum) fáum við að sjá hvernig sambandið gengur við fjölskylduna og vonlausa kærast- ann hennar hann Warren. Betty býr í Queens með ólöglega inn- flytjandanum föður sínum sem er í eldhúsinu að elda allan daginn, systur sinni henni Hildu sem sel- ur megrunarlyf og er frekar óviss um að Betty sé í rétta starfinu og síðast en ekki síst litla frænda sín- um, syni Hildu, Justin Suarez sem hefur brennandi áhuga á tísku og dansleikjum. Fjölskyldan er mjög samhent og er það mikilvægasta í lífi Bettyar sem reynir eftir fremsta megni að láta vinnuna ekki bitna á fjölskyldunni. Það getur hins veg- ar reynst erfitt þegar yfirmaðurinn hringir í hana við minnsta tilefni og grátbiður hana jafnvel um að kenna sér salsa í gegnum símann. Betty er að sjálfsögðu gríðarlega samviksusöm og húsbóndaholl svo hún vill alls ekki neita Daniel um aðstoð en á sama tíma vill hún ekki bregðast fjölskyldunni. Spennandi gamanþættir Þáttunum um Ugly Betty er best líst sem gamanþáttum með dramaívafi, því þrátt fyrir að oftast sé hægt að hlæja að hnyttnum til- svörum samstarfsaðila Bettyar og skrautlegum uppátækjum hennar fléttast einnig inn fjölskyldudrama og undarlegt sakamál sem nær að halda uppi spennu og eftirvænt- ingu eftir næsta þætti. Ugly Betty er á dagskrá Ríkissjónvarpsins á miðvikudagskvöldum og höfðar til allra aldurshópa. krista@dv.is Það er hin tuttugu og tveggja ára gamla America Ferrera sem fer með hlutverk Bettyar Suarez og gerir það með stakri prýðri. Hún hefur meðal annars hlot- ið Golden Globe-verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Betty. Þrátt fyrir að í hlutverki sínu í þáttunum sé hún einstaklega lummuleg og langt frá því að vera fegurðardrottning segir hún að þegar hún sé í karakter líði henni alls ekki eins og hún sé ljót. „Það er svo fyndið að þegar ég er í hlutverki sem ljóta Betty, finnst mér ég samt svo falleg,“ er haft eft- ir leikkonunni í viðtali við Opruh Winfrey og hún bætir svo við „Það er eitthvað við þetta breiða bros með bláa teina á tönnunum og ótrú- lega góðmennsku Bettyar sem lætur mér líða eins og betri manneskju.“ Am- erica segir einnig að henni finnist Betty alveg sérstaklega mikilvægur karakter þar sem hún geti sýnt ungum stúlkum fram á það að í raun- inni hafi þær upp á meira að bjóða en fallegt andlit. „Þær gleyma því oft að það er svo miklu meira sem er mikilvægt í heiminum en útlit- ið,“ segir leikkonan. America Ferrera á glæstan feril að baki þrátt fyrir ungan aldur en áður en hún fékk hlutverkið sem Betty Suarez hafði hún leikið í fjölda kvikmynda allt frá átta ára aldri. Hún fór meðal annars með stórt hlutverk í kvik- myndinni Real Women Have Curves og hlaut hún í kjölfarið verðlaun fyrir frammistöðu sína á Sundance-kvikmyndahátíðinni árið 2002, þá einungis átján ára gömul. UGLY BETTY ÆÐIÐ Þættirnir Ugly Betty hafa notið gríðar- legra vinsælda upp á síðkastið og hlutu þeir meðal annars tvenn Golden Globe- verðlaun, bæði sem besti gamanþáttur- inn og fyrir bestu leikkonu í aðalhlut- verki en það er leikkonan America Ferrera sem fer á kostum sem hin sein- heppna Betty Suarez. Betty Suarez ugly Betty er orðin að fyrirmynd fyrir ungar stúlkur. Betty í bláu úlpunni Mætir hress og kát í vinnuna með fullan kassa af skrifborðsskrauti. Vilhelmina og Marc aðstoðarmaður Vilhelminu hjálpar henni að halda sér unglegri. Staðreyndir um leikarana Vanessa Williams sem fer með hlutverk Vilhelminu í þáttunum var fyrsta litaða konan til að vinna titilinn ungfrú Bandaríkin árið 1983. Hún þurfti því miður að láta frá sér krúnuna eftir að penthouse-tímaritið birti nektarmyndir af henni. leikarinn alan dale sem leikur Bradford Meade lék áður í hinum geysivinsælu áströlsku þáttum Nágrönn- um. Þar fór hann með hlutverk Jims robinson. Hann fer einnig með hlutverk Calebs Nichol í unglingaþáttunum O.C. þar sem hann er ríkasti maður sýslunnar. Mark Indelicato sem leikur litla frænda Bettyar, Justin suarez, tók nýlega upp plötu fyrir unga krakka sem ber heitið little Maestros eða litlu meistararnir en hann hefur leikið í mörgum söngleikjum frá unga aldri. ashley Jensen sem leikur hina geðþekku Christinu hefur einnig leikið í sjónvarpsþáttunum Extras sem skrifaðir eru af gamanleikaranum ricky gervais. Þar fór hún með hlutverk Maggie Jacobs. america Ferrera sem leikur sjálfa Betty segist vera forfallinn aðdáandi Heroes- þáttana og að hún átti sig stundum ekki á því að leikararnir í þáttunum séu alls ekkert ofurhetjur í alvörunni. salma Hayek, sem bæði framleiðir og leikur gestahlutverk í ugly Betty, fékk brennandi áhuga á leiklist eftir að hafa séð Charlie and the Chocolate Factory árið 1971, þá aðeins fimm ára gömul og ákvað þá að verða leikkona. Kevin sussman sem leikur Warren kærasta Bettyar segir að hann hafi ekki haft hugmynd um það að stóri bróðir hans sem hann þó bjó með hafi verið í sama menntaskóla og hann fyrr en að hálft ár var liðið af skólagöngu hans. Það eru reyndar fjögur ár á milli þeirra og þeir voru víst ekki vanir að eyða miklum tíma saman í æsku og urðu því furðulostnir þegar þeir rákust hvor á annan á ganginum í skólanum. Leikkonan America Ferrera kom fram í þættinum hjá Opruh Winfrey fyrir skömmu og sagði sér líða eins og betri manneskju þegar hún væri í hlutverkinu sem Betty. Hlaut Golden Globe-verðlaun fyrir frammistöðuna America Ferrera tekur hana klukkutíma að fara í gervi Bettyar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.