Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Page 44
Carmen Reserve Carmenére Cabernet Sauvignon 2004
Þetta vín er gert í Maipo Valley við rætur Andesfjalla og er blanda úr áðurnefndu
Carmenére (60%) og Cabernet Sauvignon (40%). Árið 2004 voru Cabernet-berin tínd
fyrstu vikuna í apríl en Carmenére 25 dögum síðar. Fjórir fimmtu hlutar vínsins liggja í
eikartunnum í átta mánuði og hálft ár á flösku áður en það er sett á markað. Vínið var
frekar lokað í upphafi en varð mun hressilegra við öndun. Sólber, leður, kaffi, kirsuber,
vindlar og smá kanill og vanilla. Ágætis vín sem batnar örugglega við geymslu.1.490 kr.
FöStudAgur 27. Apríl 200754 Helgarblað DV
Indversk kjötsúpa
800 g lambakjöt
2 laukar
1 hvítlauksgeiri
1 tsk salt
1 tsk chiliduft
½ tsk mulið engifer
½ tsk karrý
½ tsk anís krydd
75 g hrísgrjón
safi úr einni sítrónu
1 ½ líter vatn
2 msk olía
1 dós hreint jógúrt
2 súputeningar
Skerið lambakjötið í litla bita. Brúnið í
olíunni ásamt grænmetinu. Setjið
kryddið saman við ásamt súputening-
unum, hrísgrjónum,vatni og sítrónusafa
og sjóðið í 1 klst. takið pottinn af
hellunni og hrærið jógúrtinni saman við
rétt áður en súpan er borin fram.
U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s
&Matur vín
Bananageymsla
Bananar eru annaðhvort of þroskaðir, óþroskaðir eða ónýtir segja þeir sem komast
varla gegnum daginn án þess að fá sér banana. til að flýta fyrir því að bananar
þroskist er gott að setja þá í pappírspoka með einu epli. Þegar banani er orðinn
þroskaður má geyma hann í ísskáp við 10 gráðu kulda í allt að tvær vikur. Stundum
verða bananar verða dökkbrúnir á fyrsta degi og hreinlega óætir. Ástæðan mun vera
sú að banana á aldrei að leggja flata á borð og benda þeir sem þekkinguna hafa á
það að í verslunum eru bananar ýmist látnir hanga eða liggja í láréttri stöðu...
Eyþór á Óðinsvéum
Sósa yfir ávexti
dýrindissósa sem gott er að hella yfir
ferska ávexti að eigin vali:
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. púðursykur
2 msk. súkkulaðispænir
2 msk. þeyttur rjómi
Smá appelsínulíkjör eða appelsínusafa
öllu blandað saman og borið fram kalt.
Torreon de Paredes Merlot Reserva Privada 2005
Vínið er gert í rengo-hæðunum í Cachapoal-dalnum við rætur Andesfjalla í
Chile. Þar er þurrt að vori og sumri en sumarnæturnar eru svalar. Vínið liggur í
eikartunnum í tólf mánuði sem skilar sér í mildu vanillubragði. Skemmtilega
fjólublátt vín sem líklega hefði gott af nokkrum misserum í kjallaranum. Sterk
angan af dökkum villiberjum, áfengu kaffi og dökku súkkulaði. í munni dökkt
súkkulaði, sólber, brómber og vanilla. Mjög gott vín. 2.000 krónur.
Norton Cabernet Reserve 2003
Vínið er frá Mendoza í miðvesturhluta Argentínu, helsta vínræktarsvæðið upp undir
Andesfjöllum. Vínið er eingöngu úr Cabernet Sauvignon og er látið liggja í eikartunn-
um í tólf mánuði og á flöskum í tíu mánuði. Mikil eik í nefi, smjör, vanilla, dökkt
súkkulaði, pipar og nellikur. Karamella í munni með mikilli vanillu af eikinni, banani og
hunang. Mjúkt og skemmtilegt vín í góðu jafnvægi. Vín á frábæru verði. 1.390 kr.
Starfsins vegna neyðist ég til að drekka vín nánast dag-lega. Samkvæmt nýjustu rannsóknum hentar það miðaldra karlmönnum ein-
staklega vel, sem þýðir væntanlega
að ég verð fjörgamall. Hollenskur
rannsóknarhópur undir stjórn Marti-
nette Streppel kynnti á dögunum
niðurstöður sínar af fjögurra áratuga
rannsókn, á árlegu þingi um hjarta-
og æðasjúkdóma í Orlando í Flórída.
Streppel segir hóflega áfengisneyslu
draga verulega úr líkum á hjarta- og
æðasjúkdómum og reyndar dán-
artíðni yfirleitt. lífslíkur eftir
fimmtugt aukast einnig veru-
lega. Þetta á við um áfengis-
neyslu almennt, en sérstaklega
léttvínsdrykkju. Hófdrykkju-
menn lifa lengur en þeir
sem ekki drekka og mun
lengur en þeir sem drekka
ótæpilega.
Niðurstaða hópsins var sú
að þeir sem drekka um
það bil hálft vínglas á
dag eru fjörutíu prósent
ólíklegri til að deyja ung-
ir en þeir sem ekki
drekka. líkur á hjarta- og æðasjúk-
dómum reyndust fimmtíu prósent
minni. Að jafnaði lifa hófdrykkju-
menn og svokallaðir meðaljónar í
drykkju, einu og hálfu ári lengur en
þeir sem ekki drekka. Þeir sem aðeins
drekka léttvín lifa fjórum árum leng-
ur. rauðvín virðist hollara en hvítvín.
Martinette Streppel segir mikilvægi
rannsóknarinnar ekki síst felast í því
að fylgst var með áhrifum alkóhóls á
líkamann í fjóra áratugi. Hún segir að
þeir sem á annað borð drekki eigi að
drekka eitt til tvö glös af léttvíni á
dag en óráðlegt sé að hefja drykkju
á gamals aldri. Hjartavernd í
Bandaríkjunum bendir reyndar á
fleiri leiðir að sama marki. Huga að
þyngd, hreyfa sig reglulega, heil-
brigt mataræði og ekkert
tóbak. En það er allt annað
tóbak. Skál!
Stefán guðjónsson ritstýr-
ir vefnum smakkarinn.is.
Þar velur hann “vín mán-
aðarins”, sem í flestum til-
vikum eru afar dýr en hann
velur einnig “kaup mánað-
arins” sem eru afbragðsvín á
innan við 2000 krónur. Ég
smakkaði þrjú vín af listanum
og varð ekki fyrir vonbrigð-
um.
Pálmi jónasson
vínsérfræðingur DV
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt
Hóflega drukkið vín!
Þorskur
l 600 gr þorskhnakki
l 100 gr gróft salt
l 2 msk ólífuolía
l 3 msk ósaltað smjör
l 4 greinar rósmarin
l 8 hvítlauksgeirar
l hvítur pipar úr kvörn
Setjið þorshnakkann í bakka og
stráið saltinu yfir hann og látið liggja
á í 15 mínútur.
Skolið saltið af, þerrið þorskinn
og skerið í 4 steikur. Hitið pönnu
og hellið olíunni á hana og leggið
svo þorskinn á pönnuna ásamt rós-
maríninu og hvítlauknum. Brúnið
steikurnar þar til þær fara að losna
frá pönnunni. Bætið smjörinu út á
pönnuna og ausið því yfir meðan þið
eruð að klára að elda fiskinn.
Gljáð svartrót
l 2 stk svartrót
l 2 dl kjúklingasoð
l 1 msk smjör
l 1 msk fínt skorinn graslaukur
l hvítur pipar úr kvörn
l maldonsalt
Skrælið og skerið svartrótina í
fallegar lengjur. Setjið hana í sjóð-
andi salt vatn og forsjóðið í um það
bil eina mínútu og setjið svo strax í
klakavatn. Þerrið rótina setjið hana
í pönnu með kjúklingasoðinu, þegar
soðið fer að sjóða bætið þið smjörinu
út. Þegar rótin er orðin glansandi og
falleg hellið þið graslauknum yfir og
kryddið til með salti og pipar.
truffluilmuð kartöflumús
l 2 stk bökunarkartöflur
l 2 msk smjör
l 1 tsk fínt skornar svartar trufflur
l 70 ml rjómi
l fínt salt
l truffluolía
með gljáðri svartrót
Steiktur þorskhnakki með
gljáðri svartrót, truffluilmað-
ari kartöflumús, þurrkuðum
vínberjum, steiktri andalifur
og kryddsmjöri í soðsósu.
Fyrir fjóra.
Steiktur
þorskhnakki