Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 45
Meistarinn Sigríður Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri Matgæðingurinn DV Helgarblað Föstudagur 27. apríl 2007 55 Sigurður Júlíus Leifsson smiður var matgæðingur síðustu viku. Hann skoraði a Sigríði Þorgeirsdóttur, fram- kvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Lo- gos lögmannsþjónustu, að vera mat- gæðingur vikunnar. Sigríður skoraðist að sjálfsögðu ekki undan því og deil- ir tveimur af sínum uppáhaldsupp- skriftum með lesendum DV. Í síðasta helgarblaði hafði Siguð- ur Júlíus orð á því að Sigríður væri ótrúlega mikill matgæðingur og sæl- kerakokur. Það sé því einstaklega skemmtilegt að vera í boðið í mat til hennar. Sigríður útbjó tvírétta máltíð, í aðalrétt er pasta með ferskum villi- sveppum, parmesan osti, furuhnet- um og hvítvíni. Í eftirrétt er sænsk súkkulaðikaka, sem er vel þekkt í fjölskyldu hennar, en uppskriftina fékk hún hjá móður sinni. Aðalréttur pasta að eigin vali (ég nota tagliatelle) Ferskir sveppir - 2 öskjur. Misjafnt hvað er til í búðunum en endilega velja eitthvað spennandi Þurrkaðir villisveppir - 2-3 pokar Ferskur chillipipar (eða minced chili í krukku) parmesanostur Furuhnetur (eða Nomu Egyptian Dukkah Mix) 1/4 hluti úr rauðlauk Kjötkraftur - 1 tsk. Extra Virgin Ólífuolía Hvítvín - 2-3 dl. svartur pipar Aðferð: Gott er að byrja á að útbúa villi- sveppina. Fylgja leiðbeiningunum á pakkanum, þá þarf yfirleitt að leggja í bleyti í 15 - 25 mínútur. Passa uppá að þurrka sveppina vel á eftir. Dreifa úr þeim og salta áður en þeir eru steiktir. Skera fersku sveppina í sneið- ar, saxa laukinn og chili piparinn og steikja alla sveppina, laukinn og pip- arinn í smjöri í 5 mínútur eða svo, bæta kjötkrafti við og hella svo vel af hvítvíni út á og láta malla í smá stund. Furuhneturnar ristaðar á pönnu. Olíu dreift yfir pastað og sveppag- umsinu og safanum hellt af pönn- unni og yfir pastað. Mala svartan pipar yfir pastað. Setja vel af par- mesanosti og furuhnetum yfir. Hef stundum sett Egyptian Dukkah Mix yfir í stað þess að nota furuhnetur en það þarf að passa að setja ekki of mikið, því sveppabragðið þarf að fá njóta sín. Sænsk súkkulaðikaka 100 gr. konsum suðusúkkulaði 100 gr. 76% síríus súkkulaði 200 gr. smjör 2 dl. sykur 4 egg 2,5 dl. hveiti 1 tsk. lyftiduft Aðferð: Bræða saman smjör og súkku- laði. Þeyta sykur og egg, mjög vel. Hræra hveitinu og lyftiduftinu var- lega út í. Hella súkkulaðinu saman við og hræra varlega. Baka í 12 - 15 mín við 180°. Kakan á að vera blaut í miðjunni þannig að gott er að baka hana í formi sem hægt er að bera hana fram í. „Þessi klikkar ekki en er þó allt- af best þegar mamma gerir hana. Þessi er kölluð sænska í fjölskyld- unni hjá okkur því mamma fékk uppskriftina hjá vinkonu sinni sem bjó þá í Svíþjóð. Margir myndu nú kalla þetta franska súkkulaðiköku,“ segir Sigríður. Villisveppapasta og sænsk súkkulaðikaka Subaru Legacy árg. ´97 Ekinn 166 þús km. Skoðaður ´08 Ný heilsársdekk, vel með farinn bíll í góðu ástandi. Sjálfskiptur. 390 þúsund. Uppl. í síma 699 7710. Klæðningar og viðgerðir á húsgögnum Bólstrun Ásgríms Þ. Ásgrímssonar Iðnbúð 5, 220 Garðabær Sími 551 1133 Óáfengir sumarkokkteilar Fyrst sólin er farin að hækka á lofti og gróðurinn farinn að láta á sér kræla er tilvalið að fara að huga að sumarveislunum sem í vændum eru. Hér er uppskrift að óáfengum kokkteilum fyrir ábyrga ökumenn. Epla ísdrykkur 1 hluti vanilluís 2 hlutar eplasafi nýmalað múskat þeyttur rjómi til að setja ofan á setjið ísinn í blandara og hrærið. Bætið í eplasafa og múskati og hrærið þangað til freyðir. setið þeyttan rjóma ofan á og skreytið með smá múskati. Skrælið og skerið kartöfluranr í litla bita og setjið í pott og sjóð- ið. Hellið vatninu af kartöflunum og setjið kartöflurnar á fínt sygti og merjið þær í gegn. Sjóðið upp á rjómanum og setjið kartöflurnar úti hann, bætið smjörinu út í og pískið vel í á meðan. Setjið trufflurnar út í og smakkið til með saltinu og truffluolíunni. StEikt AndAlifur l 4 x 30 gr andalifrasteikur l Maldonsalt l svartur pipar Skerið þunnar rákir í steikurnar, setjið þær á heita pönnu og steikið þar til þær eru gullinbrúnar á hvorri hlið. Kryddið vel með saltinu og pip- arnum. BrúnAð kryddSmjör mEð SoðSóSu l 100 gr ósaltað smjör l ½ fínt skorinn rauður chili l ½ fínt skorinn skalottlaukur l 1 msk fínt skorinn graslaukur l 1 msk fínt skorin flöt steinselja l sherry edik eftir smekk l 4 msk af soðsósugrunni l fínt salt Setjið smjörið í pott á hæsta hita og hrærið vel í á meðan. Þegar smjörið er farið að taka dökkan lit hellið því yfir í annan pott í gegnum kaffisíu. Hitið upp á sósugrunninum og hellið svo volgu smjörinu út í. Bætið því næst skalottlauknum og chiliinu út í og smakkið til með saltinu og edikinu. Að lokum bætið þið graslauknum og steinseljunni út í. önnur Atriði á diSknum l sakura krydd lauf l Frise salat l truffluskífur l Þurkuð vínber Eyþór Rúnarsson er matreiðslu- meistari og yfirkokkur á veitinga- staðnum Óðinsvéum í Reykjavík. Hann lærði á Fiðlaranum Akureyri og útskrifaðist í maí 2002. Að lokinni útskrift fór hann til Noregs og Dan- mörkur þar sem hann vann við fag- ið en réð sig til starfa hjá Sigga Hall í nóvember 2002. Hann var ráðinn yf- irkokkur á Óðinsvéum í mars 2003. Ég skora á Berghildi Magn- úsdóttur. Berghildur er snilld- ar kokkur, alltaf að prófa eitt- hvað nýtt. Alltaf notalegt að fara í matarboð hjá þeim hjón- um enda sérlega hentugt þar sem þau búa í sama parhúsi og við. Hemingway um vín í huga okkar Evrópubúa var vín talið eins hollt og eðlilegt og matur, eitthvað sem veitti gleði og vellíðan. Víndrykkja tengdist ekki snobbi né heldur var hún merki fágunar eða sérvisku. í mínum augum var hún einfaldlega nauðsynlegur hluti lífsins.“ -- Ernest Hemingway
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.