Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Síða 54
@Ég var átta ára gamall þegar pabbi
minn sagði mér frá sérsveitinni Navy
Seals og mér fannst þeir æðislegir. Í
dag finnst mér þeir ennþá töff, en ég
er samt á móti þeim af tilgerðarleg-
um ástæðum. Leikurinn Socom Fir-
eteam Bravo 2 er reyndar afbragð,
en þó vil ég vita hvort Bandaríkja-
menn séu í alvöru að myrða fólk úti
um allan heim á jafn svalan hátt og
í leiknum. Leikmenn fara í hlutverk
sérsveitarmannsins Sandman sem
leiðir félaga sína í gegnum ótrúleg-
ustu verkefni. Ef menn hafa spil-
að mikið af Medal of Honor upp á
síðkastið mun það taka smá tíma
að venjast nýjum stýringum, sem
eru að öðru leyti frekar þægileg-
ar og láta vel að stjórn. Verkefnin
eru flest mjög skemmtileg en það
er eins með þennan leik og aðra;
því betri sem maður verður í hon-
um því skemmtilegri verður hann. Í
fyrstu verkefnunum var ég eiginlega
eins og trúður. Óvinirnir tóku alltaf
eftir mér, ég skaut saklausa liðið í
spað, vantaði alla “stealth” og
ég stóð í grimmum skotbar-
dögum þar til ég vissi ekkert
hvar ég var. Líklega er raun-
veruleikinn þannig. En núna
læðist ég um og sker menn á
háls, tíni þá niður með riffl-
inum úr fjarlægð og þeir vita
ekkert hvaðan er verið að ráð-
ast á þá. Socom er geggjaður
leikur og mér er sagt að hann
sé enn betri í multiplayer,
hins vegar, þegar ég reyndi að
spila hann þannig, gekk ekk-
ert þar sem enginn var á net-
inu neinu sinni. Ömurlegt, en
samt í lagi.
Dóri DNA
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 27. apríl 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
god of War 2 - PS2
pacMan rally - PSP
untold legends: Dark kingDom - PS3
steel Horizon - PSP
Metal gear solid: Portable oPS - PSP
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
Lara Croft
í júní
leikurinn lara Croft: tomb raider
anniversary, kemur út þann fimmta
júní á bæði PC og Playstation 2 í
bandaríkjunum. leikurinn er
endurgerð á fyrsta tomb raider-
leiknum sem vakti mikla lukku. Það
er því sama ævintýri til grundvallar,
en öll smáatriði hafa verið tekin í
gegn og er leikurinn keyrður áfram
af sömu grafíkvél og þeir allra
nýjustu. einnig er í pípunum að gefa
út leikinn á PSP en engin smáatriði
liggja enn fyrir.
God of War
á PSP
ljóst er að leikurinn
god of War er á
leiðinni á hina
smávöxnu psp: Ekki
hafa nein smáatriði
verið gefin upp um
útgáfuna, en nú hefur sony, útgefandi
leiksins, komið spilurum á óvart og
opnað heimasíðu fyrir leikinn. leikurinn
heitir god of War: Chains of Olympus og
kemru út í haust. Enn er ekki hægt að sjá
neinar ljósmyndir úr leiknum og
smáatriðin eru enn á huldu, en hins
vegar er hægt að nálgast demó af
leiknum, en þeir sem eru virkir þátttak-
endur í playstation underground-
heiminum geta fengið eintak af leiknum
sent heim.
Lítur veL
út á Wii
nýlega var sett á netið myndskeið um
Spider-man 3 tölvuleikinn á nintendo
Wii og lofar það góðu. leikurinn er
byggður á söguþræði myndarinnar
og býður upp á mikið af hreyfispilun
sem er aðalsmerki tölvunnar. Í
myndbrotinu getur maður séð
hvernig spilandinn hreyfir sig til þess
að kljást við óvini og sveifla sér á milli
húsa. Þá getur spilandinn einnig valið
á milli þess að vera í rauða eða svarta
búningnum, sem sagt Spider-man
eða Venom.
Breski leikjaframleiðandinn InXile
sýndi nýlega frá leiknum Hei$t, sem
er í framleiðslu um þessar mundir.
Leikurinn minnir um margt á GTA
þar sem leikmenn geta vafrað um
alla borgina í eigin erindagjörðum,
eða framið glæpi af eins mikilli hörku
og þeir vilja. Leikmenn fara í hlutverk
Johnny Sutton, en fjölskylda hans á
sér langa glæpasögu. Leikurinn hefst
þegar Johnny er nýkominn úr steinin-
um og leggur á ráðin ásamt félögum
sínum að fremja rán víða um borgina.
Með honum eru grimmir félagar, eða
þeir Cracker, sem sérhæfir sig í því
að opna hvelfingar, The Kid, sem sér
um að keyra flóttabílínn, vöðvatröllið
Crumb, svo síðast en ekki síst Unc-
le Sal, sem útvegar upplýsingar um
ránstaðina. Sérfræðingar hafa hrós-
að leiknum mikið fyrir einstaklega
vel heppnað kerfi sem fer í gang um
leið og gengið rænir banka. Þá fer í
gang klukka og verður áhættan meiri
því lengri tími sem líður. Leikmenn
þurfa svo að gæta þess að allir séu
að vinna sína vinnu, að fólk sé ekki
að flýja eða lögreglan mæti á svæðið.
Þá geta leikmenn einnig stjórnað að-
gerðum hinna í genginu með hrósum
eða skömmum. Sem dæmi má nefna
að ef einhver í genginu rotar örygg-
isvörð er hægt að hrósa honum fyrir
það eða banna honum það í næsta
verkefni. Aðeins 30% af leiknum eru
tilbúin enn sem komið er og hafa
forkólfar InXile lofað því að radd-
stýrikerfi verið einnig við höndina,
en þá nota menn hljóðnema til þess
að gefa skipanir. Þá er grafíkin alveg
einstök í leiknum og segja menn að
San Francisco hafi sjaldan litið jafn
vel út. Þó svo að tónlistin í leiknum
sé ekki komin á hreint, þá er víst að
lög eftir hljómsveitir á borð við The
Doors og Jimi Hendrix verði með. Á
milli verkefna geta menn svo vafrað
um borgina að vild. Þannig geta þeir
stækkað tengslanet sitt í undirheim-
um en þannig fá menn betri búnað,
betri samherja og geta aukið hæfi-
leika sína. Ekkert hefur enn verið
gefið upp um hvort hægt sé að spila
leikinn á netinu. Leikurinn kemur út
í lok ársins á Xbox360, Playstation 3
og PC.
Listin að myrða er skuggaLeg
Socom Fire-
team Bravo 2
Skotleikur
PSP
tölvuleiKur
H H H H H
Socom Fire team bravo skuggalegur, í einu orði sagt.
BanKarán einS oG
Þau GeraSt BeSt
aðalpersónurnar flottar týpur.