Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 58
Í myndinni Blades Of Glory koma saman yfirgrínari undanfarinna ára og nýstirnið í grínheiminum, þeir Will Ferrell og Jon Heder úr Napoleon Dyn- amite. Myndin fjallar um um listskaut- arana Jimmy MacElroy sem er leikinn af Heder og Chazz Michael Michaels sem er leikinn af Ferrell. Jimmy er hinn fíngerði, tekníski og fullkomni skautari. Chazz er hins vegar „bad boy“ skautaheimsins. Villtur, óheflað- ur og algjörlega stjórnlaus. Eftir að hafa verið lengi erkióvin- ir á ísnum þurfa þeir að deila gull- verðlaunum og brjótast út slagsmál á verðlaunapallinum. Í kjölfarið eru þeir dæmdir í ævilangt keppnisbann. Eins og góðri súrrealískri grínmynd sæmir finna þeir glufu í reglunum sem gerir þeim kleift að keppa en aðeins í parakeppni. Eini möguleiki þeirra til þess að ná á heimsmeistaramótið og vinna gullið sem báðir þrá svo heitt er að keppa saman. Yfirstíga hatrið og hommafóbíuna og grafa stríðsöxina. Myndin er einfaldlega byggð á for- múlu sem virkar. Þó svo að hvorki Will Ferrell né Jon Heder séu í rauninni að gera neitt nýtt í henni eru þeir að gera það sem þeir gera best, að leika fíflið og lúðann. Það er enginn betri en Fer- rell í að leika misheppnaða töffarann og það er enginn betri í að leika mega- nördið en Jon Heder. Ferrell hefur ekki verið betri síðan í Anchorman og fer algjörlega á kostum sem villkötturinn og kynlífsfíkillinn Chazz. Ferrell held- ur klárlega uppi myndinni þó svo að Heder veiti honum dyggan stuðning. Will Arnett og Amy Poehler standa sig líka vel sem helstu keppinautar þeirra. Þetta er fyrsta stóra myndin sem Will Speck og Josh Gordon leikstýra og þeir standa sig vel. Um tíma fannst mér yfirbragð myndarinnar minna mig töluvert á Zoolander og sérstak- lega þegar var verið að kynna aðal- persónurnar til leiks. Listskautasjónarhornið er að miklu leyti það sem gerir myndina. Það er bara of fyndið að sjá Ferrell sína lip- urð sína og snilli á ísnum. Þegar upp er staðið er þetta mjög góð grínmynd. Bara spurning um að láta aulahúmor- inn sigra sig og hlæja að vitleysunni. Ásgeir Jónsson Mynd með Travolta Grínarinn Robin Williams mun leika í Disney-myndinni Old Dogs á móti John nokkrum Travolta. Myndinni er leikstýrt af Walt Becker sem gerði meðal annars myndina Wild Hogs sem Travolta lék einnig í. Old Dogs fjallar um vini og viðskiptafélaga en líf þeirra umturnast þegar þeir þurfa að sjá um sjö ára gamla tíbura. Þá mun Kelly Preston einnig leika í myndinni sem og Ella Travolta dóttir danskonungsins. Fær aðalhlut- verkið í Col- umbus Day Leikarinn Val Kilmer mun leika aðalhlutverkið í glæpamyndinni Columbus Day sem er framleidd af fyrirtæki Kevins Spacey, Trigger Street. Ásamt Kilmer munu Wilmer Valderrama úr That 70´s Show og Marg Helgenberger úr CSI leika með honum í myndinni. Kilmer leikur þjóf sem hefur einn morgun til þess að laga það sem er að áætlun stærsta ráns sem hann hefur framkvæmt. Samferða því reynir hann að ná sáttum við fyrrverandi konu sína. The Reaping hillary Swank leikur fyrrverandi trúboða sem rannsakar undarlega atburði sem líta út fyrir að vera endurkoma faraldranna tíu sem spáð var í Biblíunni. hún telur þó skýringarnar vera vísindalegar. iMDb: 5,3/10 Rottentomatoes.com: 8%/100% Metacritic: 36/100 paThfinDeR Víkingar ráðast á indjána í ameríku. Þeir skilja eftir strák sem er alinn upp af ættbálknum. hann verður þeirra helsti stríðsmaður og bjargvættur þegar víkingarnir snúa aftur. iMDb: 4,9/10 Rottentomatoes.com: 12%/100% Metacritic: 29/100 inlanD eMpiRe Mynd eftir David lynch. leikkona undirbýr sig fyrir sitt stærsta hlutverk þegar hún fellur fyrir meðleikara. hún áttar sig á því að líf hennar er farið að líkjast myndinni sem þau eru að taka upp fullmikið. iMDb: 7,8/10 Rottentomatoes.com: 69%/100% Metacritic: 72/100 BlaDeS of gloRy Will ferrell og Jon heder leika skauta- stjörnur sem eru erkióvinir. nokkrir atburðir verða til þess að þeir verða að sigrast á fjand- skapnum og vinna saman til þess að ná toppnum á ný. iMDb: 6,9/10 Rottentomatoes.com: 70%/100% Metacritic: 64/100 Frumsýningar helgarinnar Bíódómur Blades Of GlOry Blades Of Glory er þræl góð grínmynd þar sem bæði Will Ferrell og Jon Heder sýna sínar bestu hliðar. Leikstjórn: Will Speck & Josh Gordon Aðalhlutverk: Will Ferrell, Jon Heder, Will Arnett, Amy Poehler, William Fichtner, Jenna Fischer. Niðurstaða: HHHHH Formúla sem virkar Blanda sem virkar Ferrell og Heder ná vel saman í Blades Of Glory. Will arnett og amy poehler Standa sig vel sem of nánu Waldenberg- systkynin. ...Á STÆRÐ VIÐ HNETU ! diane keaton mandy moore Háskólabíó GOLD CIRCLE FILMS DIANE KEATON MANDY MOORE “BECAUSE I SAID SO” GABRIEL MACHT TOM EVERETT SCOTT LAUREN GRAHAM PIPER PERABO ANNAR ÞESSARA TVEGGJA HEFUR HEILA.... Saga öflugustu leyniþjónustu fyrr og síðar, CIA. Úrvalslið leikara í magnaðri kvikmynd undir tryggri leikstjórn Robert DeNiro / kringlunni / keflavík/ álfabakka / akureyri DigiTal-3D DigiTal-3D MÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINING DAY Börn sjá meira en fullorðnir gera sér grein fyrir! hvER þARF UPPhæÐIN AÐ vERA Svo þú SvíKIR þJÓÐ þíNA... SANNSÖGULEG MYND UM STæRSTA hNEYKSLISMÁL í SÖGU FbI SHOOTER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 HOT FUZZ kl. 8 - 10:20 B.i. 16 BECAUSE I SAID SO kl. 8 Leyfð MEET THE ROBINSSON kl 6 Leyfð MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 Leyfð THE MESSENGERS kl. 8 B.i.16 MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 Leyfð ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 3:40 - 5:50 Leyfð WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 b.i 7 SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.16 SHOOTER VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40 THE GOOD SHEPERD kl. 8 - 10:40 B.i.12 THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16 www.SAMbio.is SV MBL MMJ KVIKMYNDIR.COM “Fyrsti sumarsmellurinn í ár”“Líflegur og hugvitssa- mlegur spennutryllir” SV MBL HJ MBL BREACH kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 THE MESSENGERS kl. 6 - 10:20 B.i.16 ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð MEET THE... M/- ENSKU Tali kl. 8:10 Leyfð 300. kl. 10 B.i.16 BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 Leyfð MRS POTTER kl. 5:40 Leyfð 300. kl. 8 - 10:30 B.i.16 BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12 TíMAMóT kl. 6 - 8 - 10 Leyfð THE GOOD SHEPERD kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.12 DigiTal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.