Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 62
föstudagur 27. apríl 200762 Síðast en ekki síst DV veðrið ritstjorn@dv.is laugardagurföstudagur rósenberg á Myspace Búið er að stofan Myspace síðu utan um Reisum Rósenberg tónleikana sem fara fram laugardag og sunnudag. Fjöldi lista- manna mun þar koma sam- an til þess að safna pening til þess að end- urreisa Rósenberg sem brann til kaldra kola ekki alls fyrir löngu. Kynnir á tónleikunum verður Þórhallur Þórhallsson sem var á dögunum valinn fyndnasti mað- ur Íslands en fram koma KK og F rakkarnir, Andrea Gylfadótt- ir og Sviðin jörð ásamt mörgum fleiri. stóra kítlan Inn á síðunni poppoli.com má finna kítlu eða „teaser“ úr ís- lensku mynd- inni Stóra planið eða The Higher Force sem er vænt- anleg í októb- er. Yifrskrift myndarinn- ar er „Næst- um því kung fu mynd“. Þegar kítlan byrjar stend- ur stórum stöfum á skjánum að um hugljúfa sögu úr Reykjavík sé að ræða. Þar næst kemur Egg- ert Þorleifsson í mynd þar sem hann situr einbeittur við borð og les. Síðan sést einhver hreyfing í bakgrunni og Pétur Jóhann Sigfússon kemur gangandi út úr myrkrinu. Hann gerir sér lítið fyr- ir og snýr Eggert úr hálsliðnum. Næst vaknar Pétur upp af værum svefni og var hann þá að dreyma. Myndin er troðfull af stórum nöfnum en það er Ólafur de Fleur sem leikstýrir henni. Í myndinnui leika meðal annars auk Péturs og Eggerts þau Ilmur Kristjánsdóttir, Ingvar E. Sig- urðsson, Benedikt Erlingsson, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson, Halldóra Geirharðsdóttir, Laddi, Erpur Eyvindarson og margir, margir fleiri. Þá leikur Michael Imperioli einnig í myndinni en hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Christopher litli frændi Tony Soprano. fundar með Platini Geir Þorsteinsson nýkjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands og Þórir Hákonarson framkvæmd- arstjóra sam- bandsins fund- uðu í gær með fyrrverandi fót- boltahetjunni og formanni UEFA, Michel Platini. Fundur þeirra félaga fór fram í Sviss en þar eru höfuð- stöðvar UEFA staðsettar. Fundur- inn fjallaði um samskipti á milli Knattspyrnusambands Íslands og UEFA. Þá var staða sambandsins einnig rædd sem og undankeppni Evrópumeistaramótsins í U19 landsliðum kvenna sem fer fram hér á landi í sumar. siv með teiti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra heldur teiti á morgun í Bæjarlind í Kópavogi þar sem vaskar framsóknar- konur munu skemmta sér saman. Meðal annars munu gestir sem og Sif stíga á stokk með heimatilbúin skemmtiatriði. Um einkasamkvæmi er að ræða og fá sennilega bara hörðustu framsóknarkonur boðskort. Sandkorn Tengsl sigmar guðmundsson á það sameiginlegt með ... ...Valtý Birni Valtýssyni að vera lágvaxinn fjöl- miðlamaður. Valtýr á það sameiginlegt með ...Hrafni gunnlaugssyni að segja sína skoðun. Hrafn á það sameiginlegt með ...diddu skáldkonu að hafa getið barn á Kúbu. didda á það sameiginlegt með ...Ingvari E. sigurðssyni að leika í nýjustu kvikmynd sólveigar anspach. Ingvar á það sameiginlegt með ...dóru takefusa að hafa komið nakinn fram. dóra takefúsa á það sameiginlegt með ...Valgerði Matthíasdóttur að hafa stjórnað þætti á skjáEinum. Valgerður á það sameiginlegt með ...friðriki Weiss- happel að vera smekk- smann- eskja. friðrik á það sameigin- legt með ...Þorsteini Hreggviðssyni að búa í danmörku. Þorsteinn á það sameiginlegt með Með sigmari að hafa verið í klóm drekans. Nú andar suðrið sæla.... „Ekki er annað að sjá en eink- ar hlýtt verði í veðri næstu daga,“ segir Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur. „Apríl er ekki úti enn, en engu að síður lítur út fyrir að hitinn verði 15-20 stig fyrir norðan og aust- an um helgina. Þar verður léttskýj- að bæði á laugardag og sunnudag, en einhver staðbundinn sunnan blástur. Til að mynda er raunhæft að gera ráð fyrir því að hitinn verði 20°C á Egilsstöðum bæði á laugar- dag og sunnudag!“ Suðvestan- og vestanlands er þó gert ráð fyrir einhverri vætu á laug- ardag, að sögn Einars, en ef spár ganga eftir verður sunnudagur hlýr og bjartur um mikinn hluta lands- ins. „Það er því óhætt að spá eink- ar örri gróðurkomu, tún og gras- blettir grænka og trén laufgast. Þetta vorið getur græni liturinn birst okkur í náttúrunni hraðar og fyrr en oft áður. Engin hret eða veðurafturbata er að sjá í langtímaspám, en sagan kennir okkur að líklegra sé en ekki að eitt- hvert bakslag geri áður en því verð- ur lýst yfir að sumarið sé endanlega gengið í garð. Í fyrra var veðurlagið með áþekkum hætti, þá gerði nokkuð óvenjuleg hlýindi, reyndar um viku síðar en nú, eða í byrjun maí. Þá hins vegar kólnaði aftur eft- irminnilega um 20. maí.“ geir gestsson stendur fyrir heimildamyndahátíð á Patreksfirði ásamt Hálfdáni Pedersen, Huldari Breiðfjörð og greipi gísla- syni. Hann vinnur nú hörðum höndum að uppbyggingu kvik- myndahússins sem hann segir með fallegri byggingum landsins. Hvítasunnuhelgina 25. til 28. maí verður haldin hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði í kvik- myndahúsi Patreksfjarðar. Einn af skipuleggjendum hátíðarinnar er Lionsmaðurinn Geir Gestsson sem stendur fyrir einu til þremur kvik- myndasýningum í viku á Patreks- firði. „Hugmyndin að hátíðinni kom upp á sjómannadagshelginni í fyrra en það er alltaf mikið um dýrðir hér á Patró á sjómannahelginni“ segir Geir. „Einn liður af hátíðarhöldun- um var að sýna gamalt heimagert efni í kvikmyndahúsinu okkar. Það var einn drengur úr Reykjavík hann Hálfdán Pedersen sem hreifst svona að aðstöðunni hérna að í kjölfarið kviknaði hugmynd að kvikmyndahá- tíð,“ segir Geir sem sagði að í fyrstu hafi þetta verið alveg ferlega klikk- uð hugmynd sem síðar varð að veru- leika „Það var samt eitthvað svo töff við það að halda svona sveitó heim- ildamyndahátíð í einu fallegasta kvikmyndahúsi landsins.“ Nóg um að vera kringum hátíðina Á hátíðinni verða sýnda íslensk- ar heimildamyndir eða myndir sem unnar eru af íslenskum forsprökkum. „Það er reyndar möguleiki fyrir alla að vera með, bara að bera það und- ir okkur og við tökum svo ákvörðun um það hvort myndin henti hátíð- inni eða ekki.Þetta er aðallega vett- vangur fyrir kvikmyndagerðamenn að hittast og ræða málin,“ segir Geir. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga og verður nóg um að vera á Patreksfirði og sveitunum í kring. „Við ætlum að bjóða upp á eins mikið af ferða- lögum og mögulegt er og hafa þetta sem skemmtilegast. Svo slúttum við hátíðinni með alvöru sveitaballi og það verða þeir Viðar og Matti sem skemmta fólki enda löngu orðnir heimsfrægir í heimabyggð,“ segir at- hafnamaðurinn Geir. Vinna að uppbyggingu kvikmyndahússins Geir er ásamt fleiri hraustum karl- mönnum á Patreksfirði í Lionsklúbbn- um og standa þeir félagar fyrir kvik- myndakvöldum og uppbyggingu kvikmyndahússins. „Í fyrstu var hug- myndin að skiptast á með að skipa bíónefndina ár eftir ár en nú hefur bara myndast ákveðinn kjarni sem sér um þetta kvikmyndastúss“ segir Geir og bætir því við að hann geti alls ekki kvartað yfir aðsókninni á kvik- myndasýningarnar miðað við fólks- fjöldan í bænum.“Það sem er líka svo skemmtilegt við þetta allt saman er að við erum að gera allt húsið upp að utan og hyggjumst við koma bygging- unni í upprunalegt form. Þetta er mjög fallegt hús að utan, byggt árið 1934, nú erum við búin að smíða aftur gömlu upprunalegu gluggana og hefjumst nú handa við smíð á götuhliðinni“ Geir segir einnig að í dag sé kvikmynda- húsið einskonar menningarhús sunn- anverðra vestfjarða. „Það er náttúru- lega ófært átta mánuði ársins á milli okkar og Ísafjarðar svo við verðum að skemmta okkur sjálf hér á Patró.“ fyrstir í heimi til að sýna stjörnustríð Geir er líka að vonum stoltur að segja frá því að þeir hafi verið þeir fyrstu í veröldinni til að sýna nýjustu stjörnustríðsmyndina. „Það kom til vegna þess að við vorum fyrsta lands- byggðarbíóið til að setja upp nýtt textakerfi fyrir kvikmyndir. Í leiðinni uppfærðum við allt hljóðkerfið okk- ar með aðstoð Jóns Eiríks hjá Senu og til að prófa allan nýja búnaðinn fengum við þann heiður að sýna Star Wars fyrstir í heimi,“ segir Geir. Hann bendir svo á nýja heimasíðu hátíðar- innar skjaldborg.com og hvetur alla til að skella sér á heimildamyndahá- tíð í Patreksfirði. „Þessi hátíð er að verða svo flott að hún verður bráðum jafn falleg og landslagið hér á Patró,“ segir Geir að lokum. 7 4 7 11 11 12 13 4 15 413 4 11 7 9 7 129 7 12 7 7 7 19 7 1 7 4 1 4 11 10 12 9 12 12 17 16 14 14 geir gestsson gerir upp skjaldborgar- bíóhúsið. Eitthvað töff að halda sveitó hátíð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.