Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.1984, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.03.1984, Qupperneq 7
LÆKNABLADID 70,87-90,1984 87 Sigurður Halldórsson KÖNNUN Á MEÐFERÐARHELDNI VIÐ GJÖF SÝKLALYFJA í VOPNAFJARÐARLÆKNISHÉRAÐI INNGANGUR Það er vel þekkt að fólk tekur ekki alltaf lyfin sín samkvæmt forskrift. Oft er frá þessu greint í nokkurs konar skrýtluformi þegar dregin eru fram einstök tilfelli, þar sem fundist hefur mikill fjöldi lyfjaglasa með þúsundum taflna í fórum sama einstaklings (1). í tilfellum sem þessum má þó e.t.v. allt eins sþyrja hvort um geti verið að ræða ábyrgðarlausar lyfjaút- skriftir læknis fremur en óeðlilega hegðun sjúklings. Með fáeinum undantekningum hefur meðferðarheldni (heldni á lyfjameðferð) verið lítill gaumur gefinn hér á landi; í ræðu og riti. Ég minnist þess til dæmis ekki að hugtakið »compliance« hafi verið rætt sérstaklega í kennslu í læknadeild. Er þetta þó mái sem mikilvægt er að allir læknar geri sér grein fyrir og varla er ástæða til að ætla að viðhorf fólks og heilbrigðisþjónusta hér á landi séu svo frábrugðin því sem gerist í nágrannalöndunum að vandamálið sé ekki til staðar í svipuðum mæli. Enda renna kannanir hér (2, 3) stoðum undir þá skoðun. Tilgangur þessarar könnunar er að vekja frekari athygli á vandamálum lélegrar meðferð- arheldni með því að gera grein fyrir eigin athugun, sem nefna má frumkönnun. Þótt lítil sé, styður hún ákveðið þá skoðun að léleg meðferðarheldni sé hér svipað vandamál og í öðrum löndum. Er það von mín að greinar- kornið stuðli að því að læknar hugsi sig tvisv- ar um áður en þeir »leysa málin« með lyf- seðli einum saman og jafnframt að það hvetji einhverja til að hefja frekari rannsókn- ir á þessu sviði hér á landi, en á því er full þörf. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐ í könnun þessari var töflutalningaraðferðin notuð og við uppsetningu að nokkru leyti stuðst við svipaða breska könnum (4). Vett- vangur könnunarinnar var Vopnafjarðarlækn- Barst ritstjórn 25/07/1983. Sampykkt í breyttu formi 10/10/- 1983 og send í prentsmiðju. ishérað, þ.e. Vopnafjarðar- og Skeggjastaða- hreppar með samtals 991 íbúa samkvæmt þjóðskrá 1. desember 1981. Frumefniviður voru allir lyfseðlar á sýklalyf, sem afgreiddir voru úr lyfsölunni á Vopnafirði á þriggja mánaða tímabili frá 15/9 til 15/12 1981, er undirritaður var þar heilsugæslulæknir og hafði jafnframt umsjón með lyfsölunni. Flesta lyfseðlana gaf undirritaður út sjálfur, en tann- læknir staðarins nokkra. Var því auðvelt að fylgjast með að allir lyfseðlanir væru leystir út samdægurs. Vegna legu héraðsins og veðurfars var samgangur við önnur héruð lítill og má þvt gera ráð fyrir að könnunin gefi allgóða mynd af tíðni sýkinga og heildar sýklalyfjanotkun íbúanna á rannsóknartímabilinu. Enginn meiri háttar sýkingafaraldur gekk í héraðinu og enginn einstaklingur dó eða var sendur til meðferðar annars staðar vegna sýkingar á umræddu tímabili. Við útgáfu lyfseðils reyndi undirritaður ætíð að útskýra vel tilgang meðferðarinnar og undirstrika mikilvægi þess að ljúka skammt- inum, til að fullnægjandi árangur næðist. í langflestum tilfellum var um 6-7 daga meðferð að ræða. Skriflegar upplýsingar voru engar umfram magn og fjölda dagskammta og oftast heiti sjúkdóms, sem prentað var á lyfjaglös. Ekkert var minnst á það við sjúkling að könnun væri t gangi. Persónuupplýsingar sjúk- linga ásamt sjúkdómsgreiningu, lyfi, magni og skömmtum var skráð jafnóðum og þeir komu. Annar ritara heilsugæslustöðvarinnar hringdi síðan í viðkomandi sjúklinga frá 7 og upp í 10 dögum síðar, ef illa gekk að ná, og spurði ákveðinna spurninga, sbr. töflu I. Var petta talið líklegra til að fá fram réttar upplýsingar en ef lítt þekktur læknir hringdi sjálfur. Meðferðarheldnin var síðar reiknuð út frá því lyfjamagni, sem eftir var í glasinu sem hlutfall fjölda tekinna skammta og þess fjölda skammta sem hefði átt að vera lokið sam- kvæmt fyrirmælunum á þeim tíma sem hringt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.