Læknablaðið - 15.03.1984, Blaðsíða 22
96
LÆKNABLAÐIÐ
Table V. Cortisol (nmol/l) in blood (men) kept at
room temperature (= 22°C).
Hours Serum Whole blood Plasma
0 24 48 24 0 48
Subject
1) 486 348 403 284 259 372
2) 146 132 265 160 138 155
3) 119 166 196 155 163 157
4) 306 309 295 229 287 262
5) 237 273 279 226 312 315
6) 353 317 361 292 334 439
X .... 275 257 300 224 266 283
SD .... 137 88 73 58 93 115
(18%) en pessi minnkun reyndist ekki mark-
tæk (p<0.01). Aörar breytingar eru minni og
eru ekki marktækar.
UMRÆÐA
Niðurstöður pær, sem hér eru kynntar, sýna
ákveðna lækkun á aldósterón og testósterón-
gildum í blóðsýnum, sem geymd eru við
stofuhita og er lækkunin aukin, þegar geymslu-
tími lengist. Breytingarnar á östradíól og
kortísólgildum eru minni og óljósari. Viðmið-
unarsýni voru geymd við — 20° C en reynsla
okkar er sú, að þau geymast stöðug þannig í
a.m.k. 6 rnánuði.
Það er athyglisvert að aldósteróngildin
minnkuðu mun minna, þegar sýnið var geymt
sem heilblóð frekar en sermi eða plasma.
Okkur er ókunnugt um að nokkrar nið-
urstöður þessum líkar hafi verið birtar til
samanburðar. Niðurstöður okkar þýða í raun-
inni að séu sýni ekki fryst strax þá væri best að
geyma þau við stofuhita sem heilblóð. Ástæð-
an fyrir þessum aukna stöðugleika í heilblóði
gæti tengst því að aldósterón er jafnt inni í
rauðum blóðkornum sem utan öfugt við hina
sterónana sem hér hafa verið kannaðir. Það er
því mögulegt að aldósterón sé annað hvort
verndað í blóðkornunum eða sé hugsanlega
framleitt þar úr aldósterón»konjúgötum« með-
an á geymslunni stendur.
Ostradíólgildi jukust í kvennasermi eftir 24
klukkustundir. Þessi hækkun var ekki til staðar
eftir 48 stundir. Þetta fyrirbæri gæti hugsan-
lega skýrst með nýmyndun östradíóls og sam-
tímis eyðileggingu þess í sermi meðan á
geymslutíma stendur. Hækkunin gæti þannig
hafa komið til út af »hydrólýsu« á »konjúgö-
tum« eins og virðist eiga sér stað í þvagi (1).
Testósteróngildin minnkuðu meir í kvenna-
sýnum heldur en karla. Östradíólgildin sýndu
ekki þennan mun. Reimars et al (3) könnuðu
stöðugleika kortísóls í hundasermi við stofu-
hita og fundu 21 % minnkun (p<0.01) eftir 48
klukkustundir. Við fundum aðeins litlar og
óverulegar breytingar í plasma og sermi. í
heilblóði hins vegar, fundum við 18 % lækkun
á kortísólsgildum eftir 48 stundir, þótt sú
lækkun væri ekki marktæk.
Ef östradíól er ekki talið með, eru nið-
urstöður okkar í samræmi við það sem áður
hefur fundist (4, 5) og sýnir að það er lítill
munur milli serum og plasmagilda. í könnun
þessari kom í Ijós að östradíólgildi voru lægri í
EDTA-plasma en í serum hæði hjá körlum
(24 %, NS) og hjá konum (20 %, p < 0.02). Ekki
kunnum við skýringu á þessu en þetta þarf að
rannsaka frekar með meiri sýnafjölda frá fleiri
einstaklingum.
Pakkir. Þessi rannsókn hefur veriö styrkt af Vísindasjóði
Landspítalans.
HEIMILDIR
1) Kjeld MJ, Puah CM, Joplin CF. Rise of Conjuga-
ted Sex Hormones in Human Urine on Storage.
Clin Chim Acta 1977; 80: 285-91.
2) Wickings EJ, Nieschlag E. Stability of Testostero-
ne and Androsterone in Blood and Plasma
Samples. Clin Chim Acta 1976; 71: 439-43.
3) Reimers TJ, McCann JP, Cowan RG, Concannon
PW. Effects of storage, Hemolysis, and Freezing
and Thawing on Concentrations of Thyroxine,
Cortisol, and Insulin in Blood Samples. Proceed
Soc Experim Biol Med 1982; 170: 509-16.
4) Gleispach H, Kreuzer B, Fellier H, Borkenstein
M. How to Collect Blood for the Measurement
of HGH, LH, FSH, Cyclic AMP, folic acid,
cortisol and testosterone. Clin Chim Acta 1977;
80:381-4.
5) Bauman JE. Comparison of Radioimmunoassay
Results in Serum and Plasma. Clin Chem 1980;
26: 676-7.
6) Kjeld JM, Puah CM, Joplin GF. Changed Levels
of Endogenous Sex Steroids in Women on Oral
Contraceptives. Br Med J 1976; 2: 1354-6.
7) Vetter W, Vetter H, Siegenthaler W. Radioim-
munoassay for Aldosterone without Chromato-
graphy. Acta Endocr 1973; 74: 558-67.