Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.1984, Qupperneq 18

Læknablaðið - 15.03.1984, Qupperneq 18
94 LÆKNABLAÐID 70,94-96,1984 Matthías J Kjeld, Jeffrey Wieland, Mok Puah, Marcella Iniguez. STÖÐUGLEIKIFJÖGURRA STERA HORMÓNA í GEYMDUM BLÓÐSÝNUM ÚTDRÁTTUR Stöðugleiki viö stofuhita á aldósteróni, kortí- sóli, testósteróni og östradíóli í sermi, plasma og heilblóði var rannsakaður. Testósterón og östradíól voru mæld í sýnum bæði frá konum og körlum. Eftir 24 stundir hafði aldósterón minnkað um 21 % (p<0.02) í sermi og 6 % í heilblóði; testósterón minnkaði um 19-36%, kortísól minnkaði um 19 % og 7 % í sermi og heilblóð. Östradíól í sermi kvenna jókst um 25 % eftir 24 stundir en sýndi annars ekki marktækar breytingar. Eftir 48 stundir höfðu aldósterón og testósterón gildi minnkað um 30-40% (p<0.05), kortísól 10% og östradíól sýndi litlar breytingar. Aðeins östradíól sýndi mismun milli sermis og plasma og var serum 20 % hærra. Testósterón minnkaði mun meira í kvennasýnum heldur en karla eftir 48 klukku- stundir. INNGANGUR Fáar greinar hafa verið birtar um stöðugleika sterahormóna í líffræðilegum sýnum. Magn »ókonjúgeraðra« kynhormóna jókst í pvagi manna við geymslu (1), en testósterón og andróstenedíón í plasma virtust vera stöðug í 24 klukkustundir við stofuhita (2). Nýlega hefur kortisólmagn í sermi ACTH örvaðra Beagle hunda sýnt sig að lækka um 21 % eftir 48 stundir (3). Lítill munur hefur fundist milli plasma og sermis sýna úr sömu blóðtöku hvort heldur EDTA eða heparin hafa verið notuð (4, 5). Okkur er ókunnugt um að nokkrar athug- anir hafi verið birtar fram að pessu um stöðugleika aldósteróns og östradíóls í blóði. Vitneskja um stöðugleika hormóna pessara í blóði eða sermissýnum sem standa einn eða tvo daga við stofuhita er augljóslega mikil- væg fyrir meðhöndlun sýnanna í hinu daglega starfi. í pessari grein segjum við frá rann- sóknum okkar á stöðugleika tveggja kynhor- móna, östradíóls og testósteróns, og tveggja Rannsóknastofa Landspítalans, Rannsókn 6 og Rannsókna- stofan í Domus Medica, Reykjavík. Barst 16/09/1983. Sampykkt 27/09/1983 og sent í prentsmiðju. nýrnahettubarkarhormóna, kortísóls og aldó- steróns, en allir eru pessir sterar mældir oftlega með RIA aðferðum í dag. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Blóð var tekið úr bláæð á framhandlegg úr 6 karlmönnum og 6 konum, heilbrigðum starfsmönnum á Landspítalnum, á aldrinum 21-63 ára. Blóðsýni úr karlmönnum var strax skipt niður í prjú glös; 1) Blóð sem látið var kekkjast og serum síðan tekið ofan af blóð- frumunum eftir að pað hafði verið skilið innan klukkustundar frá blóðtöku, 2) heilblóð par sem serum var skilið frá blóðkornum eftir geymslutíma, 3) EDTA-plasma sem var skilið frá blóðkornum innan klukkustundar. Blóð var tekið tvívegis úr kvenmönnum, einu sinni til pess að fá sermi og heilblóð og aftur síðar til pess að fá plasmasýni. Sermi var einnig fengið úr seinni blæðingunni til viðmiðunar. Serminu var skipt niður í prjú glös, eitt var sett strax í geymslu við — 20° C, annað var látið standa við stofuhita í 24 klukkustundir og priðja glasið látið standa við stofuhita í 48 stundir. Heilblóð var Iátið standa í stofuhita í 24 stundir, en pá var pað skilið og serum tekið ofan af. Eftir að plasma hafði verið skilið frá blóðkornum var pví skipt niður í 2 glös, eitt var sett í — 20° C samstundis en hitt var geymt við stofuhita í 48 klukkustundir. Að loknum geymslutímanum voru serum og plasma sýni fryst við — 20° C og geymd par til pau voru mæld, sérhver hormóni í einni lotu (batch). Nýrnahettubarkarhormónarnir (kortísól og aldósterón) voru mældir í karlasýnum eingöngu. Hormónarnir voru mældir með radioimmu- noassays (RIA). Aðferðunum fyrir testósterón og östradíól hefur verið lýst áður (6). Aldósterónaðferðin sem notuð var, er af- brigði af peirri sem lýst hefur verið af Vetter et al (7). Kortísól-aðferðin var svipuð aldósterónað-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.