Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1984, Side 38

Læknablaðið - 15.03.1984, Side 38
106 LÆKNABLAÐIÐ hafi eyðilagt í sér sjónina, vegna þess að pau voru of sterk. Sannleikurinn er sá að gleraugu eru eingöngu til að beina mynd á miðgróf sjónu. Hvorki of veik né of sterk gleraugu geta gert neinn skaða, en geta aftur á móti valdið óþægindum. Margir spyrja hvort pað sé óhollt fyrir augun eða jafnvel skaðlegt að horfa á sjónvarp. Svarið er nei. Er hægt að skemma í sér augun með pví að lesa í hálfrökkri spyrja aðrir. Svarið er nei. Margir, sem eru nærsýnir, halda að peir losni alveg við gleraugu, pegar peir eldast. Það er ekki rétt. Nærsýnir þurfa alltaf á gleraugum að halda til að sjá vel frá sér, en taka ofan gleraugu við lestur eftir miðjan aldur. Ymsir spyrja hvort sólgleraugu séu hættuleg, ef þau eru ekki með slípuðu gleri? Svarið er nei. Það er hættulegur misskilningur að halda að skjálg eldist af börnum og að ekkert liggi á að fara með rangeygt barn til augnlæknis. Þetta er ekki rétt. Því fyrr sem barnið fær meðferð þeim mun meiri líkur eru til þess að eðlileg samsjón náist og að það fái fulla lækningu. 6.0. Fyrirgreiðsla í sambandi við augnlækn- isþjónustu á heilsugæslustöð er fólgin í undirbúningsstarfi í sambandi við augnlækn- ingaferðir og þjónustu væntanlegrar sjón- stöðvar. 6.1. Aður en augnlæknir kemur til starfa á heilsugæslustöð á augnlækningaferðalagi þarf að vera til skrá yfir þau börn, sem fundist hafa með sjóngalla og á ég þá einkum við 4 ára börn. Þarf að gefa þeim tíma hjá viðkomandi augnlækni. Einnig er æskilegt að skýrsla um glákusjúklinga á heilsugæslustöðinni sé fyrir hendi og að séð sé um að glákusjúklingar fái tíma hjá augnlækninum. Náið samstarf þarf að vera milli heilsugæslulækna og augnlækna, sem annast augnlækningaferðalög. 6.2. Eitt af verkefnum væntanlegrar þjónustu- og endurhæfingarstöðvar sjónskertra (Syn- central) er að vera sjóndöpru fólki til hjálpar. Færi vel á því að heilsugæslustöðvar í samráði við viðkomandi augnlækni aðstoðuðu sjón- skerta að komast í samband við sjónstöðina, sem kemur til með að veita þeim ýmsa þjónustu. 7.0. Æskileg pekking heilsugæslulækna í augnsjúkdómafræði. Eftir þennan lestur kunna einhverjir að spyrja hvort heilsugæslulæknar almennt hafi þá undirbúningsmenntun og þjálf- un í greiningu og meðferð augnsjúkdóma til að geta framkvæmt það, sem drepið hefur verið á. 7.1. Kennslan í augnsjúkdómafræði í lækna- deildinni er miðuð við það, sem heilsugæslu- læknir á að vita og geta gert með einföld- um áhöldum. í sambandi við kennslu í deild- inni eru verkleg námskeið í augnskoðun og er ætlast til að stúdentar geri grunnskoðun á augum við allar læknisskoðanir bæði meðan á námi stendur og síðar í læknisstarfi. 7.2. Ef heilsugæslulæknar vilja bæta við þekk- ingu sína í augnsjúkdómafræði eru ýmsir möguleikar fyrir hendi. 7.3. Hægt er að stofna til stuttra upprifjunar- námskeiða á augndeildinni á Landakoti fyrir heilsugæslulækna t.d. á haustin á undan eða eftir að læknaþing eru haldin. 7.4. A augndeildinni eru tvær aðstoðarlækn- isstöður, sem verðandi augnlæknar hafa aðallega notfært sér. Annarri stöðunni mætti hæglega breyta í stöðu fyrir heilsugæslulækna, sem vilja kynna sér augnlækningar í skamman tíma t.d. 2-3 mánuði. Sex mánaða staða fyrir verðandi heimilislækna kemur og til greina, þegar sérnám í heimilislækningum flyst heim til íslands. 8.0. Tækjabúnaður. Á hverri heilsugæslustöð þarf að vera lágmarks tækjabúnaður til augn- rannsókna og einföldustu skurðáhöld. Þessi tækjabúnaður er ekki dýr. 8.1. Þetta eru helstu tækin: Sjónpróf- unarspjöld og spegill á standi. Augnspegill (ophtalmoscop), sjónsviðprófunartjald (Bjerr- um screen) og augnþrýstingsmælir. 9.0. Sé grunnþekking á augnsjúkdómum fyrir hendi, ásamt vilja og áhuga getur heilsugæslu- læknir gert mikið átak í sjónverndarmálum, sem er mikilvægur þáttur almennrar heilsu- gæslu.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.