Læknablaðið - 15.05.1985, Qupperneq 38
138
LÆKNABLAÐIÐ 1985; 71: 138-44
Guðmundur Viggósson, Jón Grétar Ingvason, Guðmundur Björnsson
Gláka á íslandi 5. grein:
NOTKUN GLÁKULYFJA Á ÍSLANDI
INNGANGUR
í grein þessari er fjallað í fyrsta sinn um
notkun glákulyfja á íslandi. Ekki vitum við til
að þeirri aðferð, sem hér er notuð, hafi áður
verið beitt við rannsóknir á glákulyfjanotkun.
Megintilgangur könnunarinnar var að afla vit-
neskju um notkun glákulyfja almennt og ekki
síst samsetningu lyfjameðferðar.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Könnunin byggir á athugun á innkölluðum
glákulyfseðlum útgefnum á sex mánaða tíma-
bili frá september 1981 til febrúar 1982 (1).
Með þessu móti fengust upplýsingar um
heildarnotkun glákulyfja á íslandi á þessu
tímabili, lyfjanotkun hvers sjúklings og sam-
setningu lyfjameðferðar.
Til þess að auðvelda samanburð á notkun
glákulyfja er notast við hugtakið skilgreindur
dagskammtur (Defined Daily Dose = DDD) á
1000 íbúa á dag, sem fengið er frá Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni og notað er við
Frá augndeild Landakotsspítala. Barst ritstjórn 20/01/1985. Sent
í prentsmiðju 28/01/1985.
athuganir á lyfjanotkun. Skilgreindur dag-
skammtur Iyfs er sá skammtur sem neytt er
daglega miðað við eðlilega notkun lyfsins,
nokkurskonar meðaldagskammtur. Sam-
kvæmt skilgreiningu er notkun augndropa 2
dropar (0.1 ml) við hverja dreypingu. Skil-
greindur dagskammtur pilocarpins og carba-
chols er því 0.4 ml (2 dropar x 4 daglega) en
timolols og epinephrins 0.2 ml (2 droparx2
daglega).Skilgreindurdagskammturacetazol-
amids er 0.75 g (250 mg x 3 daglega).
Kannaðar voru einnig söluskýrslur
umboðsmanna glákulyfja hér á landi árin
1981-83 og upplýsingar bornar saman við
samskonar vitneskju frá öðrum Norðurlönd-
um (2).
NIÐURSTÖÐUR
í töflu I eru talin upp þau Iyf, sem notuð eru
við hægfara gláku hér á landi. Sýnd er notkun
hvers lyfs á rannsóknartímabilinu og einnig
skilgreindur dagskammtur hvers lyfs og lyfja-
flokks á hverja 1.000 íbúa á dag.
Hlutfallsleg notkun helztu flokka gláku-
Table I. Glaucoma medication in Iceland, September 1981-February 1982 in defined daily doses (DDD)ZI.OOO
inhabitants/day.
Drug Concen- tration Milli- liters/ bottle Total use DDD DDD per year DDD/1.000 inhabitants/day
Eye-drops
Eppy — 7.5 150 bottles 0.2 ml 11,250 3;g>0.45 (8.8%)
Isopto Epinal 1.0% 7.5 360 bottles 0.2 ml 27,000
Isopto Carbachol 1.5% 15 61 bottles 0.4 ml 4,575 (L24>0-29 (5-7%)
Isopto Carbachol 3.0% 15 269 bottles 0.4 ml 20,175
Isopto Carpine 1% 15 68 bottles 0.4 ml 2,550 0.03\
Isopto Carpine 2% 15 706 bottles 0.4 ml 52,950 0.63 \
Isopto Carpine 4% 15 1,447 bottles 0.4 ml 108,525
Pilocarpine 2% 10 16 bottles 0.4 ml 800 q qj )1.95 (38.3%)
Pilocarpine 4% 10 3 bottles 0.4 ml 75 o.oo/
Isopto P-Es 15 12 bottles 0.4 ml 900 0.01'
Blocadren 0.25% 5 756 bottles 0.2 ml 37,500 j27>1.71 (33.6%)
Blocadren 0.5% 5 2,151 bottles 0.2 ml 107,550
Other glaucoma drops... 10 2 bottles 0.4 ml 150 0.00
Oral medication
Tabl. Acetazolamide . 250 mg 51,280 tablets 0.75 g 34,887 2 27>0.68(13.4%)
Caps. Diamox . 500 mg 23,180 tablets 0.75 g 23,180