Læknablaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 39
ÍSLENSKT SÉRLYF:
ATENÓLÓL
HAGKVÆMT OG ÁRANGURSRÍKT LYF
TIL MEÐFERÐAR Á HÁÞRÝSTINGI OG HJARTAÖNG.
Eiginleikar: Beta-blokkari með áhrifiim aðallega á beta-1 viðtæki, en án eigin sympatomi-
metískra áhrifa (ISA). Ábendingar: 1. Háþrýstingur. 2. Hjartaöng (angina pectoris). Frá-
bendingar: Algerar: 1. Ómeðhöndluð hjartabilun. 2. II-III. gráðu leiðslurof (dissociatio
atrioventricularis). Afstæðar: 1. Lungnasjúkdómar með berkjusamdrætti. 2. Hjartabilun.
3. Hægurhjartsláttur. 4. Æðaþrengsli íútlimum (arteriosclerosis obliterans, Raynauds phen-
omen). 5. Sykursýki án meðferðar. 6. Sýring í líkamanum (acidosis metabolica). 7. Háþrýst-
ingur ílungnablóðrás (corpulmonale). 8. Þungun. Várúð: 1. Varast ber að hætta gjöf lyfsins
skyndilega hjá kransæðasjúklingum. 2. Lyfið dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjarta-
bilun, sem áður olli ekki einkennum, getur þá komið fram. 3. Einkenni berkjusamdráttar (mb.
respiratoricus obstructivus) geta komið í ljós af lyfinu. 4. Lyfið getur leynt einkennum of lágs
blóðsykurs og ofstarfsemi skjaldkirtils (thyreotoxicosis). 5. Við nýmabUun þarf að minnka
skammt lyfsins. Aukaverkanir: Geðrænar: Þreyta, þunglyndi, svefnleysi, martröð, of-
skynjanir. Meltingarfæri: Verkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðrás: svimi, hand- og
fótkuldi. - Vöðvaþreyta. Útþot og þurrkur í augum, þá ber að hætta notkun lyfsins, þó ekki
skyndilega. Milliverkanir: 1. Beta-blokkara og verapamíl (Isoptin) á helst ekki að gefa
samtímis vegna hættu á AV-blokki og hjartabilun. Nífedipín (Adalat) getur einnig valdið AV-
blokki og hjartabilun, ef það er gefið samtímis beta-blokkara, en sjaldnar en verapamil.
Hvorki skal gefa beta-blokkara, né kalsíumantagónista (nífedipín, verapamfl) í œi> fyrr en
a.m.k. tveimur sólarhringum liðnum frá því gjöf lyfsins úr hinum lyfjaflokknum var hætt.
2. Digitalis og beta-blokkarar geta dregið of mikið úr rafleiðni og valdið hægum hjartslætti
eða leiðslurofi. 3. Sýrubindandi lyf með álsöltum draga úr virkni lyfsins. 4. Címetidtn eykur
áhrif lifsins. 5. Svæfingalyf geta ásamt beta-blokkurum dregið verulega úr samdráttarkrafti
hjartans. 6. Gæta skal sérstakrar varúðar ef beta-blokkarar og dísópýramíð eða sl<yld lyf eru
gefin samtímis vegna hættu á hjartabilun eða alvarlegum leiðslutruflunum. Elturverkanir:
Hægur hjartsláttur, leiðslurof, blóðþrýstingsfall, lágur blóðsykur, krampar, berkjusamdrátt-
ur. Meðferð: Atrópín 1-2 mg iv, má endurtaka; handa smábömum 50 míkróg. Glucagon
10 mg iv, má endurtaka eftir 10 mín. Prenalterol 10 mg hægt iv, það má gefa þennan skammt
á 3-5 mín. fresti, þar til hjartabilunareinkenni minnka. Skammtastærðir handa fullorðn-
um: Háþrýstingur: 50-100 mg á dag, sjaldan 200 mg á dag. Lyfið má gefa í einum skammti
daglega. Minni skammta skal nota, ef nýmarstarfsemi er skert. Hjartaöng: 50 mg tvisvar
sinnum á dag; má auka með varúð í 100 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa
bömum: Ekki em tilgreindar upplýsingar um skammtastærðir handa börnum.
Töflur: 50 mg og 100 mg / 30 og 100 stk.
j/4 Tóró hf
SÍÐUMÚLA 32 - 108 REYKJAVÍK • SlMI 91-686044