Læknablaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 16
88
l./IiKNAHI.ADII)
sem undirbúningur fyrir krabbameinsskurð
aðgerð, (sem greinst hafi með röntgen-
mynd) og fannst þá ekkert óeðlilegt og var
þeim sjúklingi þannig hlíft við óþarfa skurð-
aðgerð.
Tíðni ristilkrabbameins hjá sjúklingum,
sem greindust á FSA á tveimur sex ára
tímabilum, fyrir og eftir að ristilspeglun var
gerð þar, hefur tvöfaldast (1974-1979, 18
sjúklingar en 1980-1985, 36 sjúklingar).
Einnig virðist áberandi, hve fleiri hafa
greinst snemma og með sjúkdóminn á lækn-
anlegu stigi (Duke’s A sex sjúklingar, Duke’s
B fimm sjúklingar og Duke’s C fimm sjúkl-
ingar, en um tvo sjúklinga er óvíst, því aldur
og aðrir sjúkdómar leyfðu ekki
skurðaðgerð). Tíðni sepa reyndist mjög há
og mun tíminn vonandi leiða í Ijós gagnið af
brottnámi þeirra.
SKIL
Síðustu fimm og hálft ár hefur ristilspeglun
á FSA reynst vera örugg og gagnleg, bæði
við sjúkdómsgreiningu og meðferð sjúk-
dóma í ristli. Tiðni ristilkrabbameins fer
vaxandi á íslandi og er það álit greinar-
höfunda, að ristilspeglun sé besta vopnið
gegn þeim vágesti.
ÞAKKIR
Sérstakar þakkir til Lionsklúbba Akureyrar
fyrir gjafir, fyrri ristilspegilinn, ljósgjafa og
fleira. Einnig til hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða gegnum árin, meinafræðinga og
krabbameinsskráningar fyrir góða hjálp.
Þorkell Guðbrandsson, yfirlæknir lyflækn-
ingadeildar FSA, fær þakkir fyrir yfirlestur
og ábendingar og síðast en ekki síst, fær
María S. Ásgrímsdóttir læknaritari, þakkir
fyrir ótrúlega þolinmæði.
SUMMARY
The indications and results of 450 consecutive colono-
scopies performed during a 5 and a half year period by
the same endoscopist at the Regional Hospital in Ak-
ureyri, Iceland, is presented. Results seem to indicate a
high incidence of neoplastic polyps in the areas popu-
lation. Futhermore after the introduction of routine
colonoscopy the incidence of diagnosed colon cancer
doubled. the distribution of the polyps and cancers in
the colon seem to be similar to that seen in the USA
during the period 1969 to 1975 before the reported be-
ginnings of a right sided shift.