Læknablaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: II1-2
111
FRÁ ÁRSHÁTÍÐ LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1986
Hér á eftir fara ávörp sem flutt voru á árshátíð Læknafélags
Reykjavíkur, 18. janúar 1986.
ÁVARP: KRISTJÁN BALDVINSSON
Góðir samkomugestir
Fyrir hönd stjórnar L.R. býð ég ykkur öll
hjartanlega velkomin til þessarar árshátíðar.
Mér er það sérstök ánægja að bjóða vel-
komna heiðursgesti félagsins og þeirra
dömur.
Þeir sem hingað eru komnir eru: Af
heiðursfélögum L.R. þeir Bjarni Jónsson,
Jón Sigurðsson og Arinbjörn Kolbeinsson.
Af 50 ára kandídötum þeir Baldur Johnsen,
Oddur Ólafsson og Úlfar Þórðarson. Af 45
ára kanídötum Karl Strand. Ræðumaður
kvöldsins er Baldur Johnsen.
Mörg okkar sem hér erum í kvöld hafa
notið handleiðslu þessara heiðursmanna sem
allir hafa skilað ósviknu dagsverki í íslenskri
læknisfræði. Við bjóðum þá hjartanlega
velkomna og gefum þeim gott klapp.
Veislustjóri kvöldsins verður okkar ágæti
kollega Sigurður Þ. Guðmundsson. Ég hef
alltaf borið mikla virðingu fyrir Sigurði.
Eina mynd geymi ég í huga mér. Þegar hann
útskrifaðist sem læknir var ég læknanemi á
öðru ári og keyrði vörubíl fyrir frystihús hér
í bæ. Ég var að koma með fisk frá Keflavík
klukkan 5 að morgni og ók yfir Suður-
landsbraut. Sólin var að koma upp. Sigurður
kom gangandi eftir miðri götunni hress í
bragði, elegant i smoking og með stórsígar
og naut greinilega líðandi stundar. Við gef-
um Sigurði ósvikið klapp.
Margt hefur verið sagt um lækna í aldanna
rás, mismunandi satt eins og gengur. Para-
celsus sagði að bestu læknarnir væru þeir
sem gerðu minnstan skaða.
Mikil umræða hefur að undanförnu átt sér
stað um AIDS eða ónæmistæringu. Oftar en
einu sinni hefur skotið upp í hugann gömlu
kvæði eftir óþekktan höfund. Væri skipt á
orðinu sýkill og veira þess í stað ætti það vel
við.
Tvennt er til—
að þú hafir sýkilinn
eða ekki.
Og takirðu sýkilinn
er tvennt til-
að þú veikist
eða ekki.
Og ef þú veikist,
er tvennt til-
að þú deyir
eða ekki.
Og ef þú deyrð,
ja, þá er tvennt til....
Samskipti lækna og T.R. hafa verið með
stirðara móti að undanförnu. Af hálfu
sjúkratrygginga hefur ríkt veruleg tortryggni
gegn tæknivæðingu og nýjungum í ýmsum
sérgreinum. Litið er með söknuði til þeirra
gömlu góðu daga þegar lækningar voru
ódýrar og læknar jafnvel óþarfir. Mér barst
njósn um að T.R. hafi í handriti lækn-
ingabók fyrir almenning og greip ég nið-
ur í hana af handahófi.
1. Gula:
Algengasta ráðið er að éta marflær soðnar i
mjólk eða þá lifandi tvær til þrjár í graut-
arspæni einu sinni á dag. Verkunin byggist á
því að marflærnar skríða úr maganum í lifr-
ina og éta burt skemmdina þar.
2. Kláði:
Áburður úr sméri og brennisteini, einnig
kornsúrulögur eða njólarótarseyði í ungven-
ta. Ráðlagt er að velta sér allsberum úti í
dögg á Jónsmessunótt áður en fugl flýgur
yfir. Við ofsakláða skal steypa yfir mann
köldu vatni og veifa síðan Saltaranum yfir
brjósti hans.