Læknablaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: 107-9
107
f?
n
KVARTANIR OG KÆRUR VARÐANDISAMSKIPTI
ALMENNINGS OG HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR
Skipun nefndar sem tekur til meðferðar ágreiningsmál
í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 56/1973
var landlækni gert skylt, »að sinna kvört-
unum eða kærum, er varða samskipti al-
mennings og heilbrigðisstétta.» Þetta á-
kvæði var óbreytt í lögum nr. 57/1978, en
með lögum nr. 40 25. mars 1983 um breyt-
ingu á fyrrgreindum lögum var sett inn nýtt
ákvæði, (sjá nú 3. grein 5. tölulið laga nr.
59/1983 um heilbrigðisþjónustu):
»Landlækni er skylt að sinna kvörtunum
eða kærum, er varða samskipti almennings
og heilbrigðisþjónustunnar. Heimilt er að
vísa ágreiningsmálum til sérstakrar nefndar,
sem í eiga sæti þrír menn, tilnefndir af
Hæstarétti og ráðherra skipar til fjögurra
ára í senn. Enginn nefndarmanna má vera
starfsmaður heilbrigðisþjónustunnar, og
einn skal vera embættisgengur lögfræðingur
og jafnframt formaður. Sömu reglur gilda
um varamenn. Ráðherra setur nefndinni
starfsreglur að fengnum tillögum hennar.
Kostnaður vegna starfa nefndarinnar greið-
ist úr ríkissjóði.«
í samræmi við ofangreint heimildar-
ákvæði voru 19. mars 1983 settar starfsregl-
ur fyrir nefndina. Nefndin sem hér um ræð-
ir, er skipuð eins og fram kemur í reglu-
gerðinni, af heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra eftir tilnefningu Hæstaréttar.
í nefndinni eru nú Ólafur St. Sigurðsson
lögfræðingur, formaður, María Pétursdóttir
hjúkrunarfræðingur og Baldur Johnsen
læknir.
í 2. og 3. tölulið fyrstu greinar reglu-
gerðarinnar er fjallað um hlutverk nefndar-
innar, sem aðallega felst í því, að leitast við
að meta skaða á heilsu sjúklings vegna mis-
taka eða rangrar meðferðar lækna, hjúkr-
unarfræðinga eða annars starfsfólks inn-
an eða utan sjúkrastofnana.
Hér er gert ráð fyrir, að meta skuli mistök
til sektar hlutaðeigandi og skoða bótaskyldu
ef svo ber undir. Fram til þessa hafa slík mál
verið fá hér á landi, en hafi þau komið upp
á yfirborðið, hefur þeim stundum verið vísað
til landlæknis, siðanefndar lækna, lækna-
ráðs o.s.frv.
Ekkert bannar að þessi leið sé enn farin og
ef þannig tekst að leysa mál og komast að
niðurstöðu, þá er vel. Starfsreglur nefndar-
innar eru birtar i heild hér i blaðinu.
STARFSREGLUR NR. 150 19. MARS 1985 FYRIR NEFND UM AGREININGSMAL
SAMKVÆMT LÖGUM NR. 59/1983 UM HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
1. KAFLI
Almenn ákvæði og verksvið.
1. gr.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skip-
ar þriggja manna nefnd til fjögurra ára í
senn, til þess að taka til meðferðar ágrein-
ingsmál, sem rísa vegna samskipta almenn-
ings og heilbrigðisþjónustunnar og vísað er
til nefndarinnar.
Nefndinni ber að skila álitsgerð í slíkum
málum, þar með talið um ætlaðan skaða á
heilsu sjúklings vegna aðgerðar lækna í eða
utan sjúkrastofnana, rangra aðgerða eða of
seint framkvæmdra, svo og vegna hjúkrunar
eða vistunar á heilbrigðisstofnun, svo og
önnur þau atriði, sem kærur eða kvartanir
fjalla um.
Nefndin skal leitast við að meta ábyrgð
aðila og bótaskyldu, komi fram beiðni um
það.