Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1986, Page 6

Læknablaðið - 15.08.1986, Page 6
152 LÆKNABLAÐIÐ Tryggja þarf að einungis séu gerðar skoð- anir, sem að gagni koma og að mögulegt sé að vísa vandamálum þangað sem þróuð sérfræðiþekking er fyrir hendi (referral cen- ters). Átján ómsjár munu nú vera á landinu, þar af ellefu utan Reykjavíkur og á þeim eftir að fjölga. Ríkið hefur keypt flest tækin á höfuðborgarsvæðinu, en annars staðar hafa bæjarfélög eða áhugamannahópar lagt fé til kaupanna. Mikil fjárfesting liggur í þessum tækjum og sums staðar er hún óþarflega mikil. Nú þarf að sjá til þess, að ómskoðanir komi að sem bestum notum fyrir almenning. Til þess þarf kunnáttu og starfsþjálfun þeirra sem við ómskoðanir vinna og þekkingu þeirra, sem senda fólk í skoðun á því, hvers tæknin er megnug. Þessu hefur verið ábóta- vant hér á landi. Hvorki skoðunin sjálf né túlkun á niðurstöðum eru einfalt mál. Ná- kvæmni skoðunar, og þá árangur, eru mjög háð hæfni þess sem skoðar, vegna þess að ómskoðun er mjög gerandaháð (operator dependent). Þetta krefst annarsvegar góðrar líffærafræðikunnáttu og hinsvegar getu til að meta myndina og breyta skoðunartækni, hljóðstyrkleika og brennidepli ómgeislans meðan myndin er á skjánum. Margir sem skoða hér á landi hafa tiltölulega litla reynslu af ómskoðunum og fræðilegt nám hefur iðulega verið af mjög skornum skammti. Tilraun til úrbóta var námskeið um ómskoðanir, sem haldið var á Landspítal- anum í októbermánuði síðastliðnum. Þvi verður að fylgja eftir með fræðslu í ræðu og riti og fleiri námskeiðum. Einnig þarf að gefa þeim, sem við ómskoðanir fást, kost á starfsþjálfunartíma á þeim deildum sem til þess hafa aðstöðu og sérfræðiþekkingu. Hæfilegur þjálfunartími fyrir lækna, til að annast skoðanir á meðgöngu og í kvensjúk- dómum, er í Bandarikjunum talinn vera að minnsta kosti þrír mánuðir. Þá er reiknað með einum mánuði á viðurkenndri deild, þar sem veitt er fræðsla um eðlisfræðileg und- irstöðuatriði, skoðunartækni og úrvinnslu skoðunar. Að þvi búnu er gert ráð fyrir tveggja mánaða starfsreynslu eða 200 skoðunum áður en viðkomandi býður fólki þjónustu sína, sem læknir með ómskoðun- arkunnáttu (8). í Bretlandi er rætt um mismunandi þjálfunartíma á viðurkenndum stofnunum, frá tveim vikum upp í þrjá mánuði, eftir þvi hvort ætlunin er að menn vinni við einföldustu greiningar á meðgöngu eða fáist við erfiðari vandamál. Þar hefur verið lagt til að prófi í mæðravernd- arómskoðun verði komið á, til að tryggja góðan skoðunarstaðal (7). Á Norðurlöndum hafa námskeið í ómskoðun verið haldin alllengi og rætt hefur verið um tveggja mánaða þjálfunartíma. Mun lengri þjálfun- artima þarf þó til ýmissa sérhæfðra ómskoðana á meðgöngu. Enda þótt flestar ómsjár utan Reykjavíkur hafi verið keyptar með mæðravernd fyrir augum, koma þessi tæki einnig að gagni við almennar ómskoðanir, einkum í efri hluta kviðarhols. Má geta þess að á röntgendeild Landspítalans voru gerðar 2254 rannsóknir á 2067 einstaklingum á árinu 1985. Yfirleitt voru fleiri en eitt líffæri rannsakað í hvert skipti og oft fleiri en eitt svæði. Slíkar rannsóknir eru víðast erlendis framkvæmdar á röntgendeildum. Þar sem rannsóknar- sviðið er víðfeðmara við þessar skoðanir en við almennar skoðanir á burði þungaðra kvenna, er þjálfunin samsvarandi meiri, eigi þekking og reynsla, þess sem skoðar, að spanna allt sviðið. Góð líffærafræðileg þekking er algjört skilyrði. Víðast í Bandaríkjunum annast ómtæknar (sonargraphers) skoðunina, en undir ströngu eftirliti og á ábyrgð læknis. Ómtæknar fá mjög virka og stranga þjálfun á þessu sviði í eitt ár, áður en þeir fá réttindi. Læknirinn er sérfræðingur í geislagreiningu með margra mánaða, jafnvel nokkurra ára sérþjálfun í ómskoðunum. Á Norðurlöndunum, þar sem fjárhagsgrundvöllur heilbrigðiskerfisins er öðruvísi, framkvæma læknar almennt þessar skoðanir, en ekki ómtæknar. Varla er ástæða til að hafa kröfur um menntun og starfsreynslu minni hér en ann- ars staðar. Mætti til dæmis stefna að þvi, að til að fást við venjurannsóknir á meðgöngu þyrfti eins til tveggja mánaða nám, sem skipta mætti niður á tvö ár og komi eitt eða fleiri námskeið um grunnatriði inn í þennan tíma. Mánaðarlöng starfsþjálfun við mæðraverndarómskoðun og tveggja til þriggja mánaða ströng þjálfun geislagrein- ingarlæknis er lágmark. Jafnframt ætti að gera kröfur um viðhaldsmenntun á þessu sviði sem öðrum. Heilbrigðisyfirvöld hafa sýnt ómskoðun- armálum góðan skilning. Læknar, annað starfsfólk i heilbrigðisþjónustu og almenn-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.