Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 10
156
LÆKNABLAÐIÐ
Ég leyfi mér hæstvirtur heilbrigðisráð-
herra, að senda yður ljósrit af vottorðum
þessum til glöggvunar og þóknanlegra ráð-
stafana.«
Eitt af vottorðunum, sem fylgdu bréfi
þessu mun hafa verið vottorð Ólafs Jóns-
sonar, dagsett 18. maí 1984. í vottorði
þessu segir m.a.:
»Það vottast hér með, að ....... kom til
mín á lækningastofu í dag og tjáði mér, að
undanfarið hefði hann þjáðst af öndunar-
vegssýkingu með hálsóþægindum og eyrna-
verk og auk þess hafi hann haft undanfarið
þrálátan höfuðverk og meltingartruflun.
..... telur sig óvinnufæran vegna þessa
að minnsta kosti í dag. Skoðun leiðir í ljós
áberandi roða á hægri hljóðhimnu.«
í framhaldi af bréfi Jóns K. Jóhannssonar
til heilbrigðisráðherra ritaði heilbrigðisráðu-
neytið landlækni bréf, dagsett 22. júní 1984,
þar sem málið var sent landlækni til um-
sagnar með vísan til 13., svo og 7. gr.
læknalaga nr. 80/1969.
í bréfi landlæknis til heilbrigðisráðherra,
dagsettu 7. ágúst 1984, er m.a. fjallað um
fyrrgreint vottorð Ólafs Jónssonar og segir
þar m.a. svo: »Ég fæ ekki séð neitt athuga-
vert við framangreint vottorð. Trúnaðar-
læknir hafði ekki samband við lækni eða
sjúkling.«
Hinn 30. ágúst 1984 ritaði landlæknir Jóni
K. Jóhannssyni bréf og áminnti hann fyrir
ámælisverða framkomu. í framahaldi af
bréfi þessu ritaði Jón K. Jóhannsson heil-
brigðisráðherra bréf, dagsett 17. september
1984 og tilkynnti um áminningarbréf land-
læknis. Bréfi Jóns lýkur svo: »Ég fæ ekki séð
hvaðan þessum starfsmanni í ráðuneyti yðar
kemur vald eða umboð til að veita ákúrur á
þessum forsendum og leyfi ég mér því að
óska þess við yður, hæstvirtur heil-
brigðisráðherra, að þér hlutist til um að
landlæknir dragi ummæli sín skriflega til
baka.«
Jón K. Jóhannsson mætti á fund hjá
nefndinni 10. desember s.l. og afhenti þá
m.a. ljósrit af áðurgreindu bréfi, dagsettu
17. september 1984. Á fundi þessum neitaði
Jón að draga framburð sinn til baka og
neitaði jafnframt að biðja Ólaf Jónsson
afsökunar.
Siðanefnd L.í. hefur ekkert vald til þess að
knýja Jón K. Jóhannsson til þess að draga
framburð sinn til baka eða til þess að biðja
Ólaf Jónsson eða aðra afsökunar.
Með ritun framangreindra bréfa til heil-
brigðisráðherra, dagsettu 4. júní 1984 og 17.
september 1984, hefur Jón K. Jóhannsson,
læknir, brotið ákvæði 1. gr. III. kafla Codex
Ethicus.
Eftir atvikum telur siðanefnd L.í. rétt að
vekja athygli læknisins Jóns K. Jóhansson-
ar á ákvæðum 13. gr. laga nr. 80/1969 og
3. gr. laga nr. 59/1983, um leið og nefndin
áminnir lækninn alvarlega um, að halda
ofangreint ákvæði 1. gr. III. kafla, svo og
önnur ákvæði Codex Ethicus.