Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 159 lingum til samanburðar á rannsóknaðferð- unum. Samanburður á niðurstöðum úr Chla- mydiazyme og klamydíuræktunum hjá ein- staklingum, sem leituðu til húð- og kynsjúkdómadeildarinnar, sjást í töflum I og II. Þegar sýni frá þeim tveim konum, sem voru neikvæð í ræktun en jákvæð í Chla- mydiazyme-prófi, þ.e.a.s. falskjákvæð, voru lituð með flúrmerktum mótefnum og skoðuð í flúrsmásjá, reyndust bæði vera jákvæð í þeirri rannsókn einnig. Af þeim 45 sýnum, sem voru falskjákvæð í Chlamydia- zyme voru 29 tiltæk til slíkrar skoðunar. í töflu III sést samanburður á aðferðunum tveim hjá konum, sem rannsakaðar voru á kvennadeild Landspítalans vegna ýmiskonar einkenna. Af þeim sex sýnum, sem voru falskjákvæð í Chlamydiazyme voru þrjú rannsökuð með flúrsmásjárskoðun og reynd- ust tvö jákvæð. Tafla IV sýnir samanburð á aðferðunum tveim, hjá einkennalausum konum á kvennadeild Landspítalans. Aðeins þrjú af 484 sýnum voru neikvæð í Chlamy- diazyme en jákvæð í ræktun, þ.e.a.s. fals- kneikvæð, en 31 var falskjákvætt í Chla- mydiazyme. Tuttugu og fjögur sýni voru rannsökuð með flúrsmásjáskoðun og reynd- ust 11 eða tæpur helmingur vera jákvæð í þeirri rannsókn einnig. Frumagnir (elemen- tary bodies) reyndust fáar eða sjö að meðaltali (1-16 frumagnir) í þeim 15 sýnum, sem voru jákvæð við flúrskoðun. Tafla V sýnir samantekt á næmi, sérgrein ingu og spágildi Chlamydiazyme í saman- burði við ræktun og algengi (prevalence) klamydíasýkinga i hinum ýmsu hópum. Ef frá eru taldir karlar, sem komu á húð- og kynsjúkdómadeild vegna einkenna (næmi 47.8), var næmið 82.1 til 96.0%. Meðalnæmi fyrir konur í heild var 94.15%. í töflu VI sést hvaða áhrif það hafði að breyta sýnatökuröð hjá körlum og taka Chlamydiazyme á undan ræktun. Næmi jókst úr 82.1 i 91.2 hjá körl- um með einkenni, en úr 47.8 (tafla V) í 64.7 hjá einkennalausum körlum. Tvö sýni voru tekin í Chlamydiazyme hjá 90 konum, sem komu á húð- og kynsjúk- dómadeildina. C. trachomatis ræktaðist frá 35 þeirra og þar af bar sýnunum tveim saman í 30 tilvikum. Ræktun var neikvæð hjá 55 og bar sýnunum saman hjá 52. í þrem af þeim 35 tilvikum, þar sem ræktun var jákvæð, var fyrra Chlamydiazyme-sýnið jákvætt en það síðara neikvætt, en aldrei öfugt. Það voru Table IV. Results on asymptomatic women examined in the OB-GYN clinic. Culture for Chlamydia trachomatis Chlamydiazyme Positive Negative All Positive . Negative .... 25 .... 3 31 425 56 428 Total 28 456 484 Table V. Summary of results on 926 patients. All va- lues are percentages. Patients in STD clinic Symptomatic Asymptomatic indiviauais in OB-GYN clinic Male Female Male Female Sympt. Asympt. Sensitivity . 82.1 91.3 47.8 100.0 96.0 89.3 Specificity. 100.0 95.0 90.0 93.0 96.7 93.2 Prevalence 41.9 35.9 31.5 48.2 12.0 6.0 PVP* 100.0 93.1 68.6 93.0 80.0 44.6 PVN** .. . 88.6 95.0 78.9 100.0 99.4 99.3 * PVP = Predictive value of a positive. ** PVN = Predictive value of a negative. Table VI. Results of Chlamydiazyme and culture on men examined in the STD-clinic when first swab was processed for antigen detection. Culture for Chlamydia trachomatis Positive Negative Clamydia- zyme Sympto- matic Asympto- matic Sympto- matic Asympto- matic All Positive .. . 31 n 2 i 45 Negative . . 3 6 56 39 104 Total 34 17 58 40 149 þrjú falskjákvæð Chlamydiazyme og tvö falskneikvæð. í töflu VII eru teknar saman niðurstöður úr flúrsmásjárskoðun á falsk jákvæðum Chlamydiazyme sýnum. Eins og sjá má voru 15 af 29 jákvæð. í öllum tilvikum voru aðeins fáar frumur sjáanlegar, eða sjö að meðaltali á gleri (1-16 frumur). Tafla VIII sýnir niðurstöður hjá 473 þunguðum konum, sem rannsakaðar voru vegna skimunar og í töflu IX má sjá niðurstöður hjá þeim 114 sjúklingum, sem vitað var um getnaðar- varnanotkun hjá. Tafla X sýnir niðurstöður rannsókna á 133 sjúklingum með kviðverki og i töflum XI og XII eru niðurstöður skoðaðar með tilliti til aldurs og hjúskap- arstöðu. Konur með neikvæða ræktun, en

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.