Læknablaðið - 15.08.1986, Síða 16
160
LÆKNABLAÐIÐ
jákvætt Chlamydiazyme próf eru hlutfall-
slega fleiri i eldri aldurshópum. Aldursdreif-
ing þeirra sést á myndinni. Einnig kemur
fram mikill munur á algengi hjá konum eftir
hjúskaparstöðu þeirra. Þessu virðist ekki svo
farið hjá körlum.
UMRÆÐA
Rannsóknaraðferð eins og Chlamydiazyme
hefur tvo umtalsverða kosti fram yfir ræktun
í frumugróðri. í fyrsta lagi fæst niðurstaða
samdægurs, í stað þess að ræktun getur tekið
allt að tveim vikum. í öðru lagi eru sýni fyrir
Chlamydiazyme ekki viðkvæm í flutningi.
Þau þarf ekki að kæla og þau mega vera allt
að fimm dögum á leiðinni til rannsókna-
stofunnar, án þess að það hafi áhrif á
niðurstöðu rannsóknarinnar. Ef næmi og
sérgreining eru viðunandi mun hún koma í
stað ræktana á þeim stöðum þar sem þær
hafa verið gerðar og gera sérhæfðar
sjúkdómsgreiningar mögulegar á stöðum,
sem ekki hafa átt kost á slíkum greiningum
vegna fjarlægðar frá rannsóknastofum.
í þessari rannsókn var reynt að meta gildi
Chlamydiazyme miðað við ræktanir, en þeg-
ar tvær rannsóknaraðferðir eru bornar sam-
an á þann hátt, sem hér er gert, verður að
hafa í huga, að ekki er unnt að nota sama
Table VII. Resulls of Direct Fluorescent Antibody Test
on 29 of 45 false positive Chlamydiazyme tests.
Group Direct Fluorescent Antibody Test Positive Negative All
Women in the STD-clinic ... 2 0 2
Symptomatic women in the OB-GYN-clinic 2 1 3
Asymptomatic women in the OB-GYN-clinic 11 13 24
Total 15 14 29
Table VIII. Results of screening on 473 individuals.
Positive culture for: Chlamydiazyme:
»Diagnosis« C.trachomatis N. gonor- rhoeae False- False- Nega- Posi- tive tive All
Pregnant 10 (4.3%) í 1 25 234
Legal abortion . 19 (11.8%) 3 0 7 161
Spontaneuos abortion 3 (3.8%) 0 1 7 78
Total 32 (6.8%) 4 2 39 473
sýnið fyrir báðar rannsóknirnar. Þvi má gera
ráð fyrir breytileika vegna þess að sýnin eru
ekki eins. Ef þetta er haft í huga er niður-
staða rannsóknarinnar sú að Chlamydiazy-
me er gott til greiningar á klamydíasýkingum
hjá öllum sjúklingum, sem hafa einkenni.
Einnig reyndist rannsóknin vel til þess að
finna klamydiusýkingu í leghálsi einkenna-
lausra kvenna, sem voru rannsakaðar vegna
þess að þær voru rekkjunautar sýktra karla.
Næmið var 100% og aðgreining (specificity)
var 93%.
Chlamydiazyme reyndist ekki vel hjá
tveim hópum sjúklinga. Aðgreining var lé-
leg hjá einkennalausum konum, sem rann-
sakaðar voru á kvennadeild, vegna margra
falskjákvæðra Chlamydiazyme prófa (eða
falskneikvæðra ræktana, tafla IV) og hjá
körlum, sem voru einkennalausir rekkju-
nautar sýktra kvenna, voru bæði næmi og
aðgreining léleg (tafla V). Þegar sýnatökuröð
var breytt hjá þeim síðastnefndu, batnaði
næmið töluvert en var samt ófullnægjandi
(tafla VI). Þetta bendir til að ræktunin sé
heldur næmari en Chlamydiazyme og liklega
er fáar bakteríur að finna í þvagrás ein-
kennalausra karla, sem sýktir eru af C. tra-
chomatis. Þetta sést einnig þegar fjöldi
sýktra fruma í frumugróðri er skoðaður. Við
Table IX. Results of tests on 114 patients on whom
information was available on usage of contraceptives.
Group Culture for False- positive
N. C.tracho- gonor- matis rhoeae Chlamy- diazyme All
With IUD .. 3 5 í 30
Oral contraceptives ... .. 2 6 2 34
No contraceptives .... .. 2 6 3 50
Total 7 17 6 114
Table X. Results on 133 patients examined because of
abdominal pain.
Diagnosis N Culture for False- positive Chlamy- diazyme:
N.gonor- rhoeae C.tracho- matis
Salpingitis 31 6 10 í
Ovarian cyst 31 í 3
Extrauterine pregnancy. 10 - - 1
Other 61 2 5 1
Total 133 8 16 6