Læknablaðið - 15.08.1986, Page 22
164
1986; 72: 164-6 LÆKNABLAÐIÐ
Ólafur Steingrímsson'), Óskar Jónsson2)
TÍÐNI SÝKINGA AF VÖLDUM CHLAMYDIA
TRACHOMATIS í SAUÐÁRKRÓKSHÉRAÐI
INNGANGUR
Ljóst er að Chlamydia trachomatis er al-
gengasta orsök kynsjúkdóma á íslandi eins
og í öðrum vestrænum ríkjum (1, 2, 3). Ekki
er þó vitað með vissu hver raunveruleg tíðni
klamydíusýkinga er í þjóðfélaginu. Erfitt er
að kanna hve margir einkennalausir eða
einkennalitlir einstaklingar eru sýktir á
hverjum tima og ekki hafa allir sjúklingar
aðgang að sérhæfðri greiningu. Oft er því
gripið til þess að gera samanburð við tíðni
lekanda og er þá gert ráð fyrir að farald-
ursfræði þessara sjúkdóma sé svipuð. Ekki
er þó vist að svo sé og má benda á að kla-
mydíusýkingar eru taldar minna smitandi en
lekandi (4). Stærri hluti einstaklinga með
klamydíusýkingar eru einkennalausir og ein-
hver munur virðist vera á hegðunarmunstri
þeirra hópa sem hafa þessa tvo sjúkdóma,
þ.e.a.s. sjúklingar með lekanda virðast hafa
fleiri kynsambönd, að meðaltali, en sjúk-
lingar með sýkingar af völdum C. tracho-
matis (1).
Eftirfarandi rannsókn var gerð í þeim
tilgangi að kanna tíðni klamydíasýkinga
meðal sjúklinga, sem leituðu til lækna vegna
einkenna, í héraði utan Reykjavíkur þ.e.a.s.
Sauðárkrókshéraði, þar sem vitað var að
lekandi var óalgengur.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Sy'ni. Sýni til klamydíuræktana voru tekin
frá þvagrás karla og frá leghálsi eða þvagrás
kvenna eftir því sem einkenni gáfu tilefni til.
Sýnin voru fryst strax eftir sýnatöku í frysti-
kistu við um 20°C og safnað saman og
send innan fjögurra vikna til sýkladeildar
Landspítalans. Þar var ræktun framkvæmd
eins og lýst hefur verið áður (1). Lekanda-
ræktanir voru einnig teknar frá nokkrum
hluta sjúklinganna á sama hátt og var rækt-
Frá 1) sýkladeild Landspítalans, Reykjavík og 2) Heilsu-
gæslustöð og Sjúkrahúsi Sauðárkróks. Barst ritstjórn 03/05/
1986. Samþykkt og sent í prentsmiðju 09/05/1986.
un framkvæmd á Sjúkrahúsi Sauðárkróks
samkvæmt forskrift frá sýkladeild Land-
spitalans (1).
Sjúklingar. Rannsóknin stóð í tvö ár frá
október 1983 til nóvember 1985. íbúar á
Sauðárkróki voru 4337 í lok ársins 1982 (2)
þegar rannsóknin hófst og þar störfuðu að
jafnaði fjórir læknar. Tekin voru sýni til
klamydíaræktana frá 65 sjúklingum, 44
konum og 19 körlum og tveim sjúklingum,
sem engar upplýsingar eru tiltækar um. Sýni
voru tekin frá 42 konum og 15 körlum, sem
leituðu læknis, einkum vegna eftirfarandi
einkenna: Körlum og konum með sviða í,
og/eða útferð frá þvagrás og konum með
kviðverki eða sviða í, og/eða útferð frá
leggöngum. Vegna þess hve niðurstöður úr
ræktunum bárust seint var ekki unnt að
rannsaka rekkjunauta á venjulegan hátt en í
nokkrum tilvikum voru sjúklingarnir beðnir
um að stuðla að því að þeir, sem hugsanlega
væru smitaðir, færu í rannsókn. Tekin voru
sýni frá tveim stúlkum og einum pilti, sem
voru einkennalaus en grunuð um að vera
sýkt vegna þess að þau höfðu haft samfarir
við sýkta einstaklinga. Ekki var ljóst hvers
vegna sýni höfðu verið tekin frá einum karli.
Tekin voru sýni til lekandaræktana frá 25
sjúklingum.
Fjöldi
Aldur
0 Jákvædar ■ Rannsakadar
Mynd 1. Aldursdreifing kvenna