Læknablaðið - 15.08.1986, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ
165
NIÐURSTÖÐUR
Af þeim 65 sjúklingum, sem rannsakaðir
voru höfðu 4 þegar fengið meðferð með
sýklalyfjum. Átján þeirra 61, sem voru
ómeðhöndlaðir, voru sýktir af C. tracho-
matis, eða tæp 30%. Af 44 konum voru 10
sýktar af C. trachomatis eða 23% og af 19
körlum voru 8 sýktir eða 44%. Á myndum
1 og 2 má sjá aldursdreifingu eftir kynjum.
Af þeim þrem sjúklingum, sem rannsakað
voru vegna þess að þeir höfðu haft samfarir
við sýkta einstaklinga, var ein stúlka jákvæð.
Á töflu 1 og 11 má sjá hver einkenni sjúk-
linganna voru.
N. gonorrhoeae ræktaðist ekki frá neinum
þeirra 25 sjúklinga, sem leitað var að lekanda
hjá.
UMRÆÐA
Ekki er unnt að draga víðtækar ályktanir af
þessari rannsókn vegna þess hve sjúkling-
arnir eru fáir. Ljóst er þó að klamy-
díasýkingar eru umtalsvert vandamál á því
svæði sem um ræðir, eða sem svarar til
a.m.k. 200 sýkinga á 100.000 íbúa á ári.
Vegna þess að aðeins innan við 40%
sjúklinganna voru rannsakaðir m.t.t.
lekanda er ekki hægt að fullyrða um
tiðni hans í sjúklingahópnum, en sú
staðreynd að enginn sjúklingur greindist með
lekanda á svæðinu á meðan rannsóknin stóð
yfir, bendir eindregið til þess að hann sé mun
sjaldgæfari í Sauðárkrókshéraði en klamy-
díusýkingar. Á höfuðborgarsvæðinu voru
klamydíusýkingar um þrefalt algengari
en lekandi 1984, samkvæmt bókum sýkla-
deildar Landspítalans.
Stundum hefur verið freistast til þess að
Fjöldi
17-18 19-20 21-22 23-24 25-26 27-28 29-30 >30
Aldur
a Jákvædar ■ Rannsakadar
Mynd 2. Aldursdreifing karia
álita sem svo, að hlutföllin milli tíðni þessara
sjúkdóma séu svipuð um allt land (1).
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda
eindregið til þess að svo sé alls ekki. Vel er
hugsanlegt að á stöðum eins og Sauðárkróki,
þar sem aðstæður til heilsugæslu eru tiltölu-
lega góðar, útrými læknar bakteríum eins og
N. gonorrhoeae, jafn óðum og þær berast
inn í samfélagið, vegna þess að greining er
tiltæk og meðferð nokkuð örugg. Möguleik-
ar á greiningu klamydíusýkinga hafa aftur
á móti ekki verið fyrir hendi og enn stærri
hluti sjúklinga með slikar sýkingar, en
sjúklinga með lekanda, er einkennalaus. Því
má vel vera að klamydíusýkingar séu algeng-
ar á stöðum þar sem lekandi er sjaldgæfur
og að tíðni klamydíusýkinga sé mun meiri á
landinu en talið hefur verið. Nú þegar nýjar
greiningaaðferðir, sem hægt er að nota alls
staðar á landinu (5-6) eru komnar í notkun
á sýkladeild Landspitalans, er ástæða til þess
að læknar um allt land hefjist handa um að
kanna tíðni þessara sjúkdóma hver á sínu
svæði.
SUMMARY
Chlamydia trachomatis is now the most common cause
of sexually transmitted disease (STD) in Iceland. Very
little is known about the prevalence in smaller commu-
nities outside the capital and surrounding area, because
specific diagnostic tests have not been available. It has
often been assumed that the relationship between the
prevalence of gonhorroea and chlamydial diease is si-
milar all over the country, but this is by no means
certain. The present study was conducted in
Sauðárkrókur district, which consists of a small town,
Sauðárkrókur, and surrounding rural community and
was inhabited by 4.337 inhabitants at the beginning of
the study. For two years specimens were collected from
all patients presenting with symptoms suggesting chla-
Tafla I.
Einkenni kvenna er rannsakaðar voru Fjöldi Hlutfall
Útferð úr leggöngum 24 55
Kláði í leggöngum 10 23
Sviði við þvaglát 7 16
Blæðing úr leggöngum 2 5
Tafla II.
Einkenni karla er
rannsakaðir voru Fjöldi Hlutfall
Útferð frá þvagrás............... 10 52
Sviði við þvaglát................ 4 21
Vörtur eða útbrot á kynfærum .... 6 31