Læknablaðið - 15.10.1986, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ
251
Table V. Test-retest reliabihty with 7-14 days interval among patients in a geriatric ward in stable condition and
among 48 patients in a general medical ward with 20-28 hours interval.
Geriatric ward Medical ward
Student-t Student-t
Pearson R2 for diff. Pearson R2 for diff.
Orientation to time..............................765**) P>.4 .775**) .1<P<.375
Orientation to place.............................823**) P>.4 .805**) .1<P<.375
Registration.....................................615*) ,1<P<.375 .499**) ,375<P<.4
Attention & calculation..........................719**) ,025<P<.05 .727**) ,01<P<.025
Recall...........................................444*) 05<P<.1 .564**) ,005<P<.01
Language.........................................782**) ,1<P<.375 .725**) ,1<P<.375
Total .931**) P> .4 .943**) ,1<P<.375
*) = P<0.05
**) = P<0.01
muna öflugri á öllum þáttum prófsins en
öldungarnir, sérlega hvað varðar athygli og mál.
Einnig er athygli vert, hvað það er til muna
fljótlegra að prófa þá.
Til þess að athuga undirhópa á
öldrunarlækningadeild frekar þá voru lýsingar af
tölvusneiðmyndum af höfði 26 einstaklinga, sem
lágu á deildinni, bornar saman við árangur á
MMS. Þeir fjórir sem höfðu eðlilega mynd fengu
að meðaltali um 17 stig á prófinu, 14 voru með
heilarýrnun og 8 með einvörðungu staðbundnar
skemmdir og fengu að meðaltali 10.0 og 12.4 stig.
Þó ekki sé marktækur munur á heildarstigafjölda
þessara tveggja seinni hópa þá aðgreinast þeir á
næmi, athygli og minni (Tafla VII).
Sjúklingar á áfengis- og vímuefnadeild voru
miklir misnotendur, sem höfðu að meðaltali misst
stjórn á drykkjunni fyrir 20 árum. Áður en þeir
komu á deildina voru þeir að meðaltali búnir að
drekka samfellt í 26 daga, en það var mjög
misjafnt allt frá nokkrum dögum upp í ár. Flestir
höfðu byrjað drykkju við 17-18 ára aldurinn.
Þrettán höfðu staðfesta sögu um alvarlegt
höfuðhögg sem hafði krafist eftirlits, átta um
krampa, nítján um minnistap (black out) og tveir
um delerium tremens. Við rannsókn á sjúklingum
á áfengis- og vímuefnadeild kemur í ljós að við
komu er um helmingur undir 20/21 mörkunum
og rúmlega 70% undir 23/24 mörkunum, sem
hafa verið notuð við skimleit að glöpum.
Þegar fráhvarfsmeðferð er lokið eru tæp 90% yfir
20/21 mörkunum en ekki nema 55% yfir 23/24
mörkunum, sem er áberandi lægra en það sem
verkamenn fá í einkunn. Til þess að skoða þetta
nánar, er árangur af báðum prófum
áfengisjúklinganna flokkaður niður eftir þáttum
prófsins og það sama gert við próf
verkamannanna.
Tafla VIII sýnir að áfengissjúklingarnir fá fleiri
stig við lok fráhvarfsmeðferðar en við upphaf
hennar, en jafnframt mun færri stig en
verkamennirnir. Það er fyrst og fremst næmi,
minni og málskilningur, sem enn er lakara hjá
áfengissjúklingunum að lokinni meðferð. Einnig
er athygli vert að næmi og minni eru þeir þættir,
sem ekki batna við fráhvarfsmeðferðina. Þessir
þættir voru einnig lakari hjá öldruðum
sjúklingum með heilarýrnun heldur en hjá þeim,
sem voru með staðbundnar skemmdir. í ljósi
þessa er eftirtektarvert, eins og sést á mynd 2, að
árangur áfengissjúklinga við komu er
sambærilegur við árangur öldunga í
þjónustuíbúðum. Ef töflur VI og VIII eru bornar
saman, sést að árangur með tilliti til næmis og
minnis að lokinni fráhvarfsmeðferð hjá
áfengissjúklingunum, er svipaður og hjá
öldungunum þrátt fyrir nær 45 ára meðal
aldursmun.
Ef áfengissjúklingarnir hefðu ekki orðið fyrir
Table VI. Score on MMS subtests and mean score on
MMS among geriatric patients and control groups.
Geriatric ward Control groups
Demented Depressed Aged Workers
Orientation to time.. 1.3 3.5**) 4.4 4.9*)
Orientation to place . 1.8 4.1*) 4.1 4.8*)
Registration 1.0 1.6**) 2.1 2.8»)
Attention
& calculation 1.4 1.8*) 2.0 4.4**)
Recall 0.6 1.7**) 2.2 2.7*)
Language 4.7 6.0*) 6.7 8.3**)
Total 10.8 18.7**) 21.5 27.9**)
Testing time (min) 8.9 10.0 10.1 5.0**)
*) = P<0.05 for the figure next to the left in the table.
**) = P<0.01 for the figure next to the left in the table.