Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 51
L/liKNABLAÐIÐ 1986; 72: 271-83 271 Jón Hrafnkelsson KRABBAMEIN í SKJALDKIRTLIÁ ÍSLANDI 1955-1984 ÚTDRÁTTUR Afturskyggn rannsókn á nýgengi klínísks krabbameins í skjaldkirtli var gerð árið 1985. Á rannsóknartímabilinu voru skráð 526 krabbameinstilfelli í skjaldkirtli á íslandi. Af þeim greindust 98, þ.e 19% við krufningu, Þeir sem greindust með skjaldkirtitlskrabbamein út frá einkennum eða við skoðun á þessum þrjátíu árum voru 428. Nýgengi á ári miðað við hverja 100.000 íbúa var 10,0 fyrir konur og 3,5 fyrir karla, þetta er tvisvar til þrisvar sinnum hærra hlutfall en er í nágrannalöndum okkar og með því hæsta sem gerist í heiminum. Krabbamein í skjaldkirtli á íslandi er þannig mun algengara meðal kvenna en karla. Hlutfallið var 2,9:1 fyrir allt tímabilið, en hlutur karla varð meiri eftir því sem á leið og síðustu fimm árin var hlutfallið 1,7:1. Þrátt fyrir aukinn fjölda greindra tilfella hefur dánartíðni af völdum skjaldkirtilskrabbameins lítið breyst á síðustu 30 árum. INNGANGUR Á íslandi hefur nýgengi skjaldkirtilskrabbameins verið hlutfallslega hátt miðað við önnur lönd (1, 2, 3). Hér á landi var þetta sjöunda algengasta krabbameinið hjá konum og hið fimmtánda í röðinni hjá körlum á árunum 1955-1984. Nokkur hluti sjúklinga með krabbamein i skjaldkirtli greinist fyrst við krufningu, án þess að hafa haft nokkur einkenni um sjúkdóminn. Tilgangur þessarar rannsóknar var í fyrsta lagi að kanna nýgengi krabbameins i skjaldkirtli á íslandi 1955-1984. Athugaður var fjöldi þeirra sem greindust út frá einkennum eða skoðun annars vegar (hópur A) og hins vegar hversu stór hluti greindist fyrst við krufningu (hópur B). í öðru lagi var tilgangurinn að athuga hegðun sjúkdómsins hér á landi. Verkefni unnið á vegum Félags um innkirtlafræði og Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags íslands. Barst ritstjórn 15/12/1985. Samþykkt og sent í prentsmiðju 06/04/1986. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Gagnasöfnun hófst í byrjun árs 1985. Frá Krabbameinsfélagi íslands var fengin skrá yfir alla sjúklinga, sem greindust með skjaldkirtilskrabbamein á tímabilinu 1955-1984. í þessari skrá voru upplýsingar um nöfn, fæðingardag, greiningarár, vefjagreiningarnúmer og sjúkrastofnun, þar sem mein viðkomandi einstaklings greindist. Hjá Rannsóknarstofu Háskólans í meinafræði fengust afrit af vefjagreiningarsvörum og krufningarskýrslum. Frá viðkomandi sjúkrahúsum voru skoðuð læknabréf og/eða sjúkraskrár. Út frá þessum upplýsingum voru skráð einkenni sjúklinganna, hvort um fyrirferð í skjaldkirtli væri að ræða og hvernig hún hefði fundist. Reynt var að meta stærð og útbreiðslu æxlisins samkvæmt klínísku mati (TNM, T: stærð og /eða útbreiðsla æxlis í skjaldkirtli, N: meinvörp í eitlum, M: fjarmeinvörp) og út frá niðurstöðu meinafræðirannsóknar (pTNM). Farið var eftir flokkun International Union Against Cancer (UICC) (4). Skurðaðgerð við greiningu var skráð, en fyrir kom að sjúklingur gekkst undir fleiri en eina aðgerð og voru þær þá skoðaðar sem ein heild. Athugað var, hvort sjúklingur hefði fengið geislameðferð eða ekki og þá, hvort um ytri geislun hefði verið að ræða eða geislajoðmeðferð. Þeir sjúklingar sem taldir voru læknaðir eftir fyrstu meðferð voru athugaðir með tilliti til endurkomu æxlis. Út frá þessum upplýsingum og dánarvottorðum frá Hagstofu íslands var skráð dánarorsök þeirra sem látist höfðu á athugunartímabilinu. Varðandi afdrif voru fengnar upplýsingarsímleiðis eða bréflega hjá viðkomandilæknum eða sjúklingi sjálfum og fengust þannig upplýsingar um líðan sjúkling- anna í árslok 1984. Hjá Erfðafræðinefnd Háskólans var leitað eftir ættartengslum sjúklinga með skjaldkirtilskrabbamein merggerðar (medullaris).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.