Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 24

Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 24
256 LÆKNABLAÐIÐ eða 30% við 23/24 mörkin. Fylgni milli álits starfshópa á glöpum sjúklinga og niðurstaða prófsins reyndist þó dágóð (R2 = 0,504-0,675). Gott samræmi er á milli þessarar athugunar á notkun MMS og erlendra rannsókna. Einstaklingar með vinnugreininguna glöp fengu í þessari athugun að meðaltali um 10 stig, sem er mjög svipað og aðrir hafa fundið (3). Þunglyndu sjúklingarnir fá um 18 stig, svipað því, sem aðrir hafa fundið hjá sjúklingum með þunglyndisglöp (3). Hins vegar voru ekki nema 6 sjúklingar með þunglyndi sem rannsóknar- og meðferðarvanda á öldrunarlækningadeild hér, sem eru of fáir til þess að draga ályktanir af. Orsakir glapa er ekki hægt að greina með prófinu. Þó að niðurstöður tölvusneiðmynda af höfði virðist benda til, að heilarýrnun sé tengd truflun á athygli, minni og næmi, þá er þörf á að gera mun viðameiri rannsókn til að athuga þau tengsl nánar. Niðurstöður fyrri athugana hafa ekki verið á einn veg (4,5). Það er hins vegar mikilvægt að fá úr þessu skorið, þar sem gera verður ráð fyrir að einstaklingar með betra næmi, minni og athygli hafi meiri möguleika til endurhæfingar. Við rannsókn á áfengissjúklingum reyndist prófið nothæft til þess að sýna breytingu, sem verður við afeitrun, þegar bráir af sjúklingunum. Ákveðin atriði i sjúkrasögu tengdust árangri sjúklinganna að lokinni meðferð. Þannig virtist langvinnt stjórnleysi drykkju standa í sambandi við lélegan árangur að aflokinni afvötnun. Þetta er í samræmi við niðurstöður annarra (11). Hér kom einnig í ljós að saga um alvarleg höfuðhögg virtist skipta máli fyrir árangur þann, sem sjúklingurinn nær á prófinu að lokinni afvötnun. Athugunin er ekki nógu umfangsmikil til að greina hve mikinn þátt hvort þessara atriða á í að skýra lakan árangur á prófinu að lokinni afvötnun. Prófið gefur hugmynd um, að hve miklu leyti mismunandi þættir vitsmunastarfseminnar jafna sig. Þó að árangur á prófinu í heild virðist benda til að sjúklingur sé að smáhressast, þegar lyfjameðferð vegna fráhvarfs er hætt, kemur í ljós, að minni og næmi hafa ekkert lagast. Þetta er í samræmi við aðrar niðurstöður þar sem hefur fundist, að allt að 4 vikum eftir síðasta sopann þá væri enn skerðing til staðar (12). Aðrir hafa fundið skerðingu á vitrænni starfsemi allt að 13 mánuðum frá því, að sjúklingurinn hætti að drekka. Þeir bentu jafnframt á, að sjúklingar, sem væru meira skertir væru Iíklegri til þess að hefja neyslu að nýju (13). Hvort slík skerðing lagast er óvíst. Við samanburð á áfengissjúklingum, sem höfðu verið allsgáðir í eina, þrjár og tuttugu og fimm vikur fannst betri námsgeta eftir þrjár vikur en eina, en ekki aðrar marktækar breytingar (14). Þetta gæti bent til að slíkir sjúklingar þyrftu sérstaka meðferð sem miðast að því að hindra áfengisneyslu í von um að draga úr áhrifum skerðingarinnar og til að breyta neysluvenjum. MMS-prófið er einföld og örugg aðferð til að fylgja sjúklingunum eftir og athuga hvort dregur úr skerðingunni á fyrstu 1-3 vikum meðferðar og velja þannig sjúklinga fyrir mismunandi meðferðarform. Við samanburð á töflum VI og VIII og mynd 2 kemur í ljós, hversu lík dreifing er á stigafjölda, sem áfengissjúklingar fá og háaldraðir, sem búa í þjónustuíbúðum, þrátt fyrir um 45 ára mun á meðalaldri. Stigafjöldi áfengissjúklinganna við komu er sambærilegur og hjá öldungunum og við útskrift er minni og næmi svipað og hjá þeim gömlu. Þetta rennir stoðum undir tilgátur er lúta að því, að áfengi valdi skaða ekki ósvipuðum og gerist við ellihrörnun. Sambærilegar niðurstöður hafa fundist við samanburð á áfengissjúkum konum og gömlum konum (15) og hjá áfengissjúkum körlum og gömlum körlum (16). Þessar athuganir sýndu, að á ítarlegum taugasálfræðiprófum var árangur áfengissjúklinganna sambærilegur við árangur mun eldri einstaklinga. Gilti þetta sérlega varðandi skammtímaminni og afstæða hugsun. Hérlendis sem annars staðar reynist MMS vera hentugt próf til þess að meta glöp. Það tekur um 5-10 mínútur í notkun. í því eru fá atriði, sem eru persónulegs eðlis, sem sjúklingnum gæti fundist óþægilegt að svara, og það er því honum og þeim, sem leggur prófið fyrir óþægindalítið. Þrátt fyrir eða vegna einfaldleika síns er prófið allöruggt við mat á glöpum, og má því nota það til skimleitar eða til að meta algengi glapa. Vegna mikils stöðugleika gefur prófið möguleika á því að fylgja þróun glapa eftir og með því að skoða einstaka þætti þess má sjá hvernig þeir batna eða versna eftir því sem breyting verður á sjúklingnum. í þessari athugun kom i ljós mjög hátt algengi glapa meðal aldraðra, sérstaklega á sjúkrahúsum, og jafnframt að læknar og hjúkrunarfræðingar eru ekki nægjanlega á verði gagnvart þessum alvarlegu einkennum. Einnig eru áfengissjúklingar, þrátt fyrir að þeir séu til muna yngri, með verulega skerðingu á vitsmunastarfsemi jafnvel eftir að fráhvarfsmeðferð er lokið. Þakkir: Ársæll Jónsson sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum á Borgarspítala og Gunnar Sigurðsson yfirlæknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.