Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ
269
heilbrigðir í samanburðarhópi, er munurinn
enginn á hjartarúmmáli (418,9 ml/m2 ±61,7,
416,0 ml/m2 ±69,9).
Þrír karlanna úr greinrofshópi höfðu stærra
hjartarúmmál en 600 ml/m2. Tveir þeirra höfðu
kransæðasjúkdóm og sá þriðji langvarandi
hjartabilun. Fjórir karlar og ein kona úr
samanburðarhópi höfðu stækkað hjarta
(>600 ml/m2). Öll höfðu þau önnur merki
hjartasjúkdóma. Þrír karlanna höfðu háþrýsting,
einn þeirra einnig kransæðasjúkdóm, annar
stækkun á vinstra slegli og sá þriðji var að auki
hjartabilaður og með forhólfaflökt. Fjórði
karlinn var hjartabilaður og hafði farið í
kransæðaaðgerð. Konan hafði bæði háþrýsting
og forhólfaflökt.
Áreynslupróf. í greinrofshópi reyndist unnt að
áreynsluprófa 17 karla af 21 og 13 konur af 15.
Ekki var unnt að áreynsluprófa fjóra karla. Einn
þeirra hafði hjartagangráð, annar nýlegt
hjartadrep, þriðji nýlegt sjónhimnulos og sá
fjórði hafði áður farið í hjartastopp. Önnur
konan, sem ekki var áreynsluprófuð, hafði mikla
lungnaþembu en hin hjartagangráð.
Einn karl með sögu um hjartadrep hætti áreynslu
eftir 5 Vi mínútu vegna svima og annar með
hjartakveisu var látinn hætta eftir sama tíma
vegna tíðra aukaslaga. Ein kona með höggbrjóst
og frumsjúkdóm í leiðslukerfinu var látin hætta
áreynslu eftir þrjár mínútur vegna aukaslaga.
Aðrir þoldu áreynslu í lengri tíma. Hættu 16
vegna þreytu, sex vegna mæði, fimm fengu
hjartakveisu, þrír tíð aukaslög frá sleglum, einn
svima og loks einn vegna blóðþurrðarverkja í
fótum.
Sex karlar og fjórar konur voru á betahemlandi
lyfjum.
Mynd 2 (fig. 2) sýnir meðaltöl áreynslutíma og
púlshraða.
DreiFmg áreynsluþols er mikil, en meðaltal er ekki
síðra en í heilbrigðum samanburðarhópi Bruce (5).
Eðlilegt áreynsluþol höfðu 11 karlar af 17
(>7 mínútur) og 11 konur af 13 (>6 mínútur).
Undirliggjandi hjarta- og æðasjúkdómar virðast
einkum ákvaðra áreynsluþolið. Karlar og. konur
með frumsjúkdóm í leiðslukerfinu höfðu eðlilegt
þol.
Þegar áreynsluþol er flokkað eftir skilmerkjum
NYHA eru 12 karlar og 10 konur í flokki l-II
(61 *Vo) en 9 karlar og 5 konur í flokki III-IV
(39%).
Heart rate (beats/min)
0 2 4 6 8 10 12 14
Exercise time (min)
Fig. 2. Average exercise lime for men and women
( + /-SD) and pulse ratefor LBBB and control groups.
For comparison, the normal control groups of Bruce (5).
UMRÆÐA
Framingham rannsóknin (2) á vinstra greinrofi er
sambærileg við okkar rannsókn þar sem þýði
þeirrar rannsóknar var valið á mjög svipaðan
hátt. Vinstra greinroshópar annarra rannsókna er
yfirleitt spítalaþýði (6, 7) eða þýði einstaklinga,
sem voru óvenju heilbrigðir, t.d. flugmanna (8).
Rannsókn okkar er frábrugðin öðrum
sambærilegum rannsóknum að því leyti, að við
skoðuðum mun stærri samanburðarhóp og
ítarlegar en aðrir. í Framingham-rannsókninni
var samanburðarhópurinn t.d. tvöfalt stærri en
greinrofshópurinn, en okkar smanburðarhópur er
fjórfalt stærri. Ekki hefur heldur verið gerð
hjartaómritun á hópi eins og okkar áður.
Athyglisvert er, að hjá okkur er ekki marktækur
munur á algengi kransæðasjúkdóms og
háþrýstings í greinrofshópi og samanburðarhópi
og er það í mótsögn við niðurstöðu
Framingham-rannsóknarinnar (2), þar sem hinir
ýmsu hjarta- og æðasjúkdómar voru marktækt
mun algengari hjá sjúklingum með vinstra
greinrof. Hjá okkur vekur athygli, hversu sterkt
sambandið er milli hjartavöðvasjúkdóms og
vinstra greinrofs. Sjö karlar (16%) i greinrofshópi
höfðu hjartavöðvasjúkdóm, en aðeins ein kona í
samanburðarhópi (p< 0,001). Þetta er i samræmi
við niðurstöður Kuhns og félaga (9) en í mótsögn
við niðurstöður Framingham-rannsóknarinnar.
Að vísu hafði nokkur fjöldi sjúklinga með vinstra
greinrof i Framingham-rannsókninni merki um
hjartabilun. Verið gæti að nokkrir þeirra hefðu
ofrýmis hjartavöðvasjúkdóm (cardiomyopathia