Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.10.1986, Blaðsíða 52
272 LÆKNABLAÐIÐ Sjúklingarnir voru flokkaðir eftir vefjagerð æxlanna og var stuðst við flokkun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) (5). Öll vefjagreiningarsýnin frá sjúklingum, sem greindust fyrir 1968 voru yfirfarin af Ólafi Bjarnasyni og Hrafni Túliníus. Hjá þeim sjúklingum, sem greindust eftir þann tíma, var stuðst við vefjagreiningarsvör frá Rannsóknarstofu Háskólans. Flestar krufningar á þessu tímabili voru gerðar á vegum þeirrar stofnunar. Venjulega var skjaldkirtill skoðaður og tekin ein sneið úr hvorum lappa til vefjagrein- ingar, ef útlit skjaldkirtils var eðlilegt. Ef hnútar fundust voru að auki tekin sýni úr þeim. Var þessi framkvæmd óbreytt allt athugunartímabilið. Tölva Krabbameinsskrárinnar var notuð til vinnslu á gögnum. Við marktækniútreikninga var notað kí kvaðrats-próf. NIÐURSTÖÐUR Nygengi og aldursdreifing: Alls greindist skjaldkirtilskrabbamein hjá 526 sjúklitigum á þessu tímabili. í þeim hópi voru 390 konur og 136 karlar. í hópi A (greindir út frá einkennum eða skoðun) voru 428 sjúklingar, 322 konur og 106 karlar, hlutfall milli kynja 3:1. í hópi B (greindir við krufningu) voru 98 sjúklingar, 68 konur og 30 karlar, hlutfall milli kynja 2,2:1. Þessi munur milli kynja í hóp A og B er ekki marktækur (P>0,10). Mynd 1 sýnir nýgengi skjaldkirtilskrabbameins miðað við hverja 100.000 íbúa á ári frá 1955 til 1984 skipt niður í sex 5 ára tímabil. Þar sýnir efsta línan nýgengi fyrir konur (hópar A + B saman), næst konur í hópi A, þá karlar (hópar A + B saman) og neðsta línan sýnir nýgengi hjá körlum í hópi A. Nýgengi jókst hjá konum fyrstu 15 árin en hefur síðan lækkað. Er um marktæka lækkun að ræða siðustu fímm árin miðað við næstu fimm ár á undan (p<0,05). Meðal karla hækkaði nýgengi fram til 1979, en hefur haldist að mestu óbreytt síðustu fimm árin. Þetta hefur valdið því að hlutfall milli kynja hefur lækkað í 1,7:1 á síðustu fimm árum, en var fyrir allt tímabilið 2,9:1. Nýgengi á ári var 12,0 miðað við hverja 100.000 íbúa fyrir konur og 4,6 fyrir karla. Ef einungis er tekinn hópur A, þá lækka þessar tölur í 10,1 og 3,5. Þessar tölur eru aldursstaðlaðar fyrir ísland (6). Aldursdreifing fyrir karla og konur sést á mynd 2 og er fjöldinn miðaður við fimm ára aldurshópa. Aldursstaðlað nýgengi miðað við 100.000 fyrir hóp A er sýnt á mynd 3 og Incidence rate 1955-59 1960Æ4 1965-69 1970-74 1975-79 1980-84 — Females all cases Time Periods Females clinical cases Males all cases ■+• Males clinical cases Fig. 1. Incidence rates of thyroid cancer in Iceland 1955-1984: Number of patients per 100.000 population per annum. Adjusted to Icelandic standard population. fyrir hóp B á mynd 4. Þar kemur fram að sjúkdómurinn var hlutfallslega algengastur í elstu aldurshópunum. Meðalaldur í hópi A var hjá konum 54 ár, en meðal karla 57 ár. í hópi B voru samsvarandi tölur 65 og 74 ár. Meinafræði: Greining var fengin meðvefjagreiningu hjá 520 sjúklingum, en meðal sex sjúklinga var einungis um klíníska greiningu að ræða. Fjöldi sjúklinga í hverjum vefjaflokki var eftirfarandi (tafla I): 370 með totumyndun (papilliferum), 84 með skildilsbú (follicularis), 16 merggerðar (medullaris) og 41 með villivöxt Table I. Classification of thyroid cancer by histology and clinical findings: Wholc group Clinical Incidental n °7o n °7o n «7o Sex Females 390 (74.1) 322 (75.2) 68 (69.4) Males 136 (25.9) 106 (24.8) 30 (30.6) Histology Papillary .... 370 (70.4) 296 (69.2) 74 (75.5) Follicular ... 84 (16.0) 66 (15.4) 18 (18.4) Medullary ... 16 (3.0) 15 (3.5) 1 (1.0) Anaplastic... 41 (7.8) 38 (8.9) 3 (3.1) Unclassified . 9 (1.7) 7 (2.1) 2 (2.0) Without histology .. 6 (1.1) 6 (1.4) - - Total number 526 (100.0) 428 (100.0) 98 (100.0)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.