Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 23

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 23
LÆKNABLAÐIÐ 255 fólk eldra en 65 ára fær að meðaltali 26 stig með 95% vikmörkum við 17 stig (7). í þeim hópi háaldraða (78-99 ára), sem hér var valinn til samanburðar við öldrunarsjúklinga, var meðalstigafjöldi 21.5 með 95% vikmörkum við 12. Séu ekki teknir með þeir, sem hafa sögu um truflun á blóðflæði til heila var meðalstigafjöldi 22.5 og 95% vikmörk við 15. Um 40% töldust hafa glöp miðað við 20/21 mörkin, sem er svipað hlutfall og fundist hefur hér á landi hjá fólki 90 ára og eldra er dó á sjúkrahúsi og var krufið (8). Af þeim, sem ekki höfðu sögu um truflun á heilablóðflæði, höfðu 32% glöp, sem er svipað og fannst í athugun á geðheilsu 85-87 ára gamalla íslendinga (9). Þannig virðast 20/21 mörkin, sem notuð hafa verið í erlendum athugunum (3-6) og hér til að áætla algengi glapa, gefa niðurstöður er svipar til fyrri hérlendra athugana, sem gerðar hafa verið með öðrum aðferðum. Ennfremur má benda á, að þeir einstaklingar, 60 ára og eldri, sem starfsfólk lyflækningadeildar er sammála um að sé ekki með glöp fá 20-29 stig á prófinu, en þeir, sem eru með glöp minna. Þá eru einstaklingar, sem skilgreindir eru heilbrigðir samkvæmt því, að þeir eru í fastri vinnu, allir með yfir 24 stig og eru því innan þeirra marka, sem talin hafa verið eðileg fyrir fólk 18 ára og eldra (7). Þau mörk eru 28 stig og 95% vikmörk við 22, en í þessari athugun er sambærileg tala 27.9 stig og 95% vikmörk við 2 5. Séu vikmörkin reiknuð út frá einstökum þáttum prófsins verða þau sett við 20/21 mörkin, en við þau mörk hefur sértækni prófsins á lyflækningadeild reynst um 93% (6). Þessi mörk gefa því væntanlega nokkuð örugga vísbendingu um hvort sjúklingur hafi glöp eða óráð. Hér hefur prófið reynst mjög stöðugt við endurtekningu hjá sjúklingum í óbreyttu ástandi, hvort sem er með sólarhrings eða með viku til hálfsmánaðar millibili. Þetta er í samræmi við nær allar aðrar athuganir, sem gerðar hafa verið á prófinu. Samkvæmt framansögðu er líklegt að nota megi greiningarmörk, sem byggjast á enskri útgáfu prófsins hér og að sú háa tíðni glapa, sem prófið greinir hjá einstökum hópum hér á Iandi, sé raunveruleg. Það er mikilvægt að starfsfólk sé vel á verði gagnvart þessum einkennum, þegar 50% sjúklinga á lyflækningadeild 60 ára og eldri og 87% sjúklinga á öldrunarlækningadeild virðast hafa marktæk glöp, til þess að tryggja að engar læknanlegar orsakir liggi að baki og að vitað sé hvort sjúklingur geti munað eftir þeim ráðleggingum, sem honum eru gefnar við útskrift. Þar sem glöp eru mjög alvarlegt einkenni, hefur verið skoðað hversu vel starfsfólki á sjúkrahúsum gengur að greina þau. Greiningarhæfni aðstoðarlækna á lyflækningadeild John Hopkins sjúkrahússins var borin saman við þau mörk, sem notuð hafa verið til skimleitar með MMS prófinu (10). Aðstoðarlæknar fundu 79% tilfella og greindu heilbrigða réttilega í 80% tilvika. Hér reyndist fundvísi aðstoðarlækna við sömu mörk er 63-69% og sértækni 85-100%. Ef greiningarmörk eru færð neðar í 20/21, þá er næmi og sértækni um 77% hjá reyndum aðstoðarlæknum hér, sem er nær erlendu niðurstöðunum. Þetta getur bent til þess að íslenskir aðstoðarlæknar séu ekki eins vakandi fyrir þessari greiningu og erlendu aðstoðarlæknarnir. Hugsanlegt er þó, að íslensku aðstoðarlæknarnir þekki sjúklingana ekki eins vel vegna mismunandi framkvæmdar á rannsóknunum. í amerísku athuguninni voru 380 sjúklingar sem 57 aðstoðarlæknar höfðu tekið á móti. Var hver aðstoðarlæknir spurður um sjúklinga, sem hann hafði tekið á móti. Hér voru fjórir reyndir aðstoðarlæknar beðnir um álit á 56 einstaklingum og fjórir ungir beðnir um sama, án tillits til hvort þeir hefðu tekið á móti sjúklingunum, en þó aðeins um sjúklinga sem voru á þeim gangi, sem læknirinn vann á. Sé hins vegar litið til þess, að hjúkrunarfræðingar í fullri vinnu greina réttilega 77% sjúklinga, sem hafa einhver merki um glöp miðað við 23/24 mörkin og geta útilokað glöp hjá 88% þeirra, sem eru ofan við mörkin, er Ijóst að vitneskjan er fyrir hendi á sjúkradeildunum. Það sem sagt hefur verið um næmi og sértækni íslenska starfsfólksins miðast við sjúklinga, sem það telur sig vita nægjanlega mikið um. Sjúklingar, sem aðstoðarlæknar telja sig ekki vita um, eru að meðaltali með alvarleg glöp (< 15 stig). Inni á sjúkradeildum eru því sjúklingar með merki um glöp, sem fá ekki athygli svarandi til meiri háttar einkenna. Þeir sjúklingar, sem hjúkrunarfræðingar telja sig ekki vita um eru hins vegar ekki skertir (>20 stig). Orsakir þessa munar milli hjúkrunarfræðinga og lækna er ekki unnt að útskýra samkvæmt gögnum rannsóknarinnar. Séu allir sammála um greininguna glöp eða ekki glöp, virðist það vera nokkuð öruggt álit samkvæmt niðurstöðum prófsins. Hins vegar er þetta álit varla nógu næmt, þar eð það nær ekki að greina nema 40% sjúklinga, sem prófið greinir við 20/21 mörkin

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.