Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 30

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 30
262 1986; 72: 262-5 LÆKNABLAÐIÐ Kristinn Sigvaldason, Þorbjörg Magnúsdóttir BRÁÐ BÓLGA í GALLBLÖÐRU ÁN STEINA Sjúkrasögur sex sjúklinga sem vistaðir voru á Borgarspítalanum 1980-1986 INNGANGUR Bráð gallblöðrubólga steinalaus er alvarlegur sjúkdómur, sem einkum leggst á þá sem veikir eru fyrir, t.d. af völdum fjöláverka, alvarlegra sjúkdóma eða hafa nýverið gengist undir skurðaðgerðir. í eftirfarandi grein er ætlunin að kynna sex tilfelli, sem greinst hafa á Borgarspítalanum undanfarin sex ár. Sjúkdómnum eru gerð skil í leiðara á öðrum stað í þessu tölublaði. Hér nægir að endurtaka það eitt, að til þess að flokkast undir þessa sjúkdómsgreiningu mega menn ekki hafa sögu um gallsjúkdóm eða steina í gallblöðru eða í gallvegum og sjást þurfa merki um bráða bólgu í gallblöðruveggnum. Sé stuðst við þessi skilmerki útilokast öll vafatilfelli, en við þessa leit fundust nokkur slik og verða þau ekki rakin hér. í þessari grein eru því einungis tekin fyrir þau tilfelli þar sem sjúkdómurinn greindist með vissu, þ.e. gerð var skurðaðgerð eða krufning og gallblaðran rannsökuð meinafræðilega. SJÚKLINGAR OG AÐFERÐIR Kannaðar voru sjúkraskýrslur þeirra sjúklinga, sem legið höfðu á gjörgæsludeild Borgarspítalans frá janúar 1980 til mars 1986. Farið var í gegnum gögn um þá sem vistaðir voru vegna bráðrar gallblöðrubólgu á sama tímabili samkvæmt sjúkdómaskrá spítalans. Ennfremur voru athugaðar krufningsskýrslur þeirra, sem létust af völdum fjöláverka á tímabilinu og vistaðir höfðu verið á Borgarspítalanum og reyndist enginn þeirra hafa gallblöðrubólgu. Á árinu 1980 voru greind 25 tilvik af bráðri gallblöðrubólgu, 18 á árinu 1981, 27 árið 1982, 28 árið 1983, 20 árið 1984 og 20 árið 1985. Samtals 138 tilvik á sex árum. Fyrstu tvo mánuði ársins 1986 greindust átta tilvik. Við þessa leit fundust samtals sex tilfelli af bráðri gallblöðrubólgu án steina (AAC): Árið 1980 eitt, 1984 tvö, 1985 eitt og fyrstu tvo mánuði ársins 1986 greindust tvö tilfelli. Frá gjörgæsludeild Borgarspítala. Barst ritstjórn 22/05/1986. Samþykkt i breyttu formi 27/06/1986. Sjúkrasaga 1. Sjötugur karlmaður, sem hafði verið hraustur um ævina. Hann hafði gengist tvisvar undir aðgerð vegna brjóskloss. Átta mánuðum eftir seinni aðgerðina lá hann á endurhæfingardeild, þar sem tekið var eftir húðþykkildi á hægri síðu hans. Tekið var sýni úr því og við rannsókn kom í ljós traffrumueitlaæxli (histocytic lymphoma). í framhaldi af þvi var hann lagður inn á lyflækningadeild. Fyrir utan hækkað kalsíum í blóði var ekkert athugavert að finna við rannsóknir. Hafin var meðferð með prednísólóni, adríamýsíni, endoxani og vínkristíni. Sjúklingnum hrakaði um þremur vikum síðar, fór að fá kviðverki og uppköst. Yfirlitsmynd af kvið leiddi ekkert sérstakt í Ijós. Fylgst var með sjúklingnum í tvo daga án þess að einkennin löguðust. Endurtekin yfirlitsmynd leiddi í ljós frítt loft í kvið og garnalömun. Hann fór í aðgerð í framhaldi af því og reyndist vera með sprungna gallblöðru og lífhimnubólgu. Enginn æxlisvöxtur fannst í kviðarholi né aftan við það og engin meinvörp sáust í lifur. Gallblaðran var fjarlægð og smásjárskoðun á henni sýndi bráða gallblöðrubólgu, en engir steinar fundust. Æxlisberið á kviðveggnum gekk saman við lyfjameðferðina en sjúklingurinn náði sér aldrei á strik eftir þetta. Mánuði eftir aðgerðina fannst hann látinn í rúmi sínu. Krufning var ekki framkvæmd. Sjúkrasaga 2. Hálffimmtugur karlmaður, áður hraustur, lagður inn eftir að hafa veitt sjálfum sér stungusár á kvið í tilraun til sjálfsmorðs. Við komu á slysadeild reyndist hann hafa tvö stungusár á neðanverðum kvið hægra megin, en kviður var mjúkur og garnahljóð voru lífleg. Sárin voru ekki talin ná inn í kviðarholið og hann var útskrifaður sama dag. Daginn eftir var hann lagður inn á ný vegna vaxandi kviðverkja frá því um nóttina. Við komu var hann veikindalegur, með hita og þaninn kvið, sem var aumur við þreifingu. Við aðgerð sama dag kom í ljós gat á mjógirni sem var saumað. Aðrir sjúkdómar eða áverkar sáust ekki í kviðarholi. Svæfing og aðgerð voru áfallalaus. Honum heilsaðist vel í fyrstu eftir aðgerðina og útskrifaðist af gjörgæslu eftir stutta legu. Á fjórða degi eftir aðgerð fékk hann skyndilega takverk vinstra megin fyrir brjósti. Eftir rannsóknir vaknaði grunur um lungnarek og var hann settur á blóðþynningarmeðferð. Um þrem vikum eftir aðgerð fór hann að fá verki í hægri síðu og hita. Rannsóknir sýndu fjölgun hvítra blóðkorna og fjölgun blóðflagna. Einnig reyndist hann vera meö hækkaöa alkalíska fósfatasa, gammaglútamlntransferasa og bílírúbín. Ómskoðun sýndi víða og þykkveggja gallblöðru en engir steinar sáust. ísótópa-skönnun af gallblöðru sýndi jafna upptöku í lifur og útskilnað í gallvegi, en gallblaðran fylltist ekki. Tölvusneiðmyndun sýndi víkkaða

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.