Læknablaðið - 15.10.1986, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ
263
gallblöðru en enga steina. Allt þetta þótti benda til
bráðrar gallblöðrubólgu og var ákveðið að framkvæma
aðgerð. f Ijós kom mikið bólgin gallblaðra með
drepblettum á víð og dreif í veggnum. Hún var
grænsvört að sjá og innihélt þykkt og seigt gall en enga
steina. Vegna mikillar bólgu var ekki unnt að fjarlægja
gallblöðruna, heldur var gerð gallblöðruraufun
(cholecystostomy). Svæfing og aðgerð voru að öðru
leyti áfallalaus. Ræktun úr gallblöðru var neikvæð.
Þriðja aðgerðin var síðan framkvæmd sex vikum seinna
og þá var gallblaðran fjarlægð. Smásjárskoðun sýndi
bráða gallblöðrubólgu með drepi á víð og dreif í
veggnum. Sjúklingurinn náði sér að fullu eftir aðgerðina
og útskrifaðist. Hann var þó skorinn upp aftur nokkru
seinna vegna kviðslits í skurðsárinu.
Sjúkrasaga 3. Karlmaður um sjötugt, lagður inn vegna
kviðverkja. Hann hafði sögu um háþrýsting og
hjartavöðvasjúkdóm, auk rýrnunar í litla heila.
Við rannsóknir kom í ljós víkkun á mjógirnislykkjum og
var hann í framhaldi af því skorinn upp. Hann reyndist
vera með töluvert víkkaðar mjógirnislykkjur, en
ástæðan fyrir því fannst ekki. Svæfing og aðgerð voru
áfallalaus og sjúklingi heilsaðist vel fyrst eftir
aögerðina.
Á tíunda degi fór sjúklingur að fá verki í hægri síðu,
hita og fyrirferðaraukningu undir hægra rifjabarði.
Ómskoðun sýndi þanda gallblöðru og grunur var um
stein. Hann reyndist blóðlaus og auk þess mældist
fjölgun hvítra blóðkorna, fjölgun blóðflagna, hækkun
á alkalískum fósfatasa, hækkun á
alamín-amínótransferasa (ALAT) og bílírúbíni og
lækkun á prótínum í sermi. Við aðgerð kom í ljós mikið
bólgin gallblaðra, grænsvört og komnir í hana
drepblettir. Ekki fundust neinir steinar. Blaðran var
fjarlægð og gekk það vel. Smásjárskoðun sýndi miklar
bólgubreytingar og drep í veggnum. Úr gallinu
ræktaðist E.coli. Sjúklingi heiisaðist vel eftir aðgerðina.
Sjúkrasaga 4. Áður hraustur hálfþrítugur karlmaður
lagður inn eftir að hafa skotið sjáífan sig í kviðinn í
naflahæð með haglabyssu. Hann kom á slysadeild hálfri
þriðju klukkustund eftir atvikið og var í losti allan
timann. Við komu var hann meðvitundarlaus og í losti.
Kviður var brettharður og merki um truflaða blóðrás í
vinstra fæti.
Reyndist hann vera með tvo og hálfan lítra af blóði í
kvið, en meiriháttar æðaskaðar fundust ekki. Vinstri
mjaðmarspaði reyndist illa tættur og görnin var
sködduð á nokkrum stöðum. Gert var við mjógirnið og
ristillinn tengdur út á kviðvegginn. Sjúklingur var með
lágan blóðþrýsting (50-80 mm Hg sýstólu) og lítinn
þvagútskilnað í upphafi aðgerðar, en hvorutveggja
lagaðist þegar á leið. Alls fékk hann 9 einingar, 4,5 lítra,
heilblóðs meðan á aðgerðinni stóð. Eftir komu á
gjörgæslu hélt áfram að blæða og fékk hann því áfram
blóðgjafir næstu daga. Fyrst í stað var honum haldið
sofandi í öndunarvél. Daginn eftir aðgerðina fór
þvagútskilnaður minnkandi og á lungnamynd sást aukin
æðavídd. Kalíum og kreatinín fór stighækkandi í blóði
næstu daga og þótti því ljóst að hann hafði fengið bráða
nýrnabilun. Blóöskiíjun hófst sex dögum eftir slysið og
hann var tekinn úr öndunarvél um svipað leyti. Einnig
var hafin meðferð með amínósýru- og fitulausnum í æð.
Mánuði eftir slysið var nýrnastarfsemin aftur farin að
lagast og hann útskrifaðist af gjörgæsludeild. Um það
leyti fannst fyrirferð undir hægra rifjabarði. Ómskoðun
sýndi þykkveggja gallblöðru með ómríku innihaldi sem
samrýmdist þykku galli. ísótópa-skönnun sýndi að
gallblaðra fylltist ekki og blóðrannsóknir sýndu
blóðleysi, mikla hækkun á alkalískum fósfatasa,
hækkun á ASAT, ALAT og bílírúbíni og lækkun á
prótínum í sermi.
Sjúkingur var skorinn upp á ný og kom þá í ljós
grænsvört gallblaðra án steina með drepblettum í
veggnum. Hún var fjarlægð og gekk það vel og sjúklingi
heilsaðist vel eftir aðgerðina. Smásjárskoðun sýndi öll
stig bráðrar bólgu.
Sjúkrasaga 5. Rúmlega fertugur karlmaður sem gekkst
undir kransæðaaðgerð. í upphafi aðgerðar fékk hann
sleglatif (fibrillatio ventriculorum), en að öðru leyti
virðist aðgerðin hafa gengið vel. Grunur lék þó á, að
hann hefði fengið kransæðastíflu í aðgerðinni. Gerð var
aðgerð á þremur kransæðum, en eftir aðgerðina hafði
hann hita og óþægindi í brjóstholi. Hann var grunaður
um að hafa heilkenni það, sem kemur í kjölfar
kransæðastíflu og kennt er við Dressler,
(postmyocardial infarction syndrome) og var settur á
indometasín-meðferð. Við komu á Borgarspítalann tíu
dögum eftir aðgerð var hann mjög þreyttur og slæptur
og reyndist vera með þéttingu í hægra lunga. Hann var
með hita, hátt sökk og fjölgun blóðflagna.
Sjúklingurinn haföi áfram hitavellu þrátt fyrir
indometasínmeðferð og á 20. degi eftir aðgerð fékk
hann 40 stiga hita, kuldahroll og skjálfta. Rannsóknir
leiddu í ljós þrefalt hækkaðan alkalískan fósfatasa,
hækkun á gammaglútamýltransferasa og bílírúbíni.
Einnig fór sjúklingurinn að kvarta um verki undir
hægra rifjabarði og hann hafði eymsli á gallblöðrustað
við þreifingu. Við ómskoðun fundust ekki neinir steinar
og ísótópaskönnun sýndi að gallblaðra fylltist ekki.
Vegna gruns um gallblöðrubólgu án steina var
sjúklingurinn skorinn upp og kom þá í ljós mjög spennt
þykkveggja gallblaðra með töluverðri bólgu umhverfis.
Blaðran var fjarlægð og gekk það vel, svæfing var
áfallalaus. Ekki fundust neinir steinar og
smásjárskoðun á gallblöðrunni sýndi mikla íferð
bólgufrumna. Sjúklingnum heilsaðist vel í fyrstu eftir
aðgerðina, en framkvæma þurfti aðra aðgerð tveimur
vikum seinna vegna ígerðar bak við lífhimnu. Þetta
hafði uppgötvast við tölvusneiðmyndun, sem
framkvæmd var vegna áframhaldandi hita og óþæginda
við hreyfingar í hægri mjöðm. í ljós kom stór ígerð
umhverfis hægra nýra og náði hún niður á
lundavöðvann (psoas). Sjúklingurinn stóð sig einnig
ágætlega í þessari aðgerð.
Hiti hélt áfram og við rannsóknir fannst rifa á ristli og
skeifugörn og þetta tæmdi sig út í ígerðarsvæðið í
kviðarholi. Rúmum mánuði eftir gallblöðruaðgerðina
var því gerð enn ein aðgerð og þá maga-, garna- og
ristilraufun (gastrostomia, jejunostomia og
colostomia). Hann þoldi aðgerðina og svæfinguna
ágætlega og ástand hans fór batnandi eftir þetta.
Sjúkrasaga 6. Hálfsjötugur karlmaöur, áður hraustur,
lagður inn eftir að hafa orðið fyrir bíl. Hann reyndist
vera mjaðmargrindarbrotinn og með áverka á báðum