Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 44

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 44
268 LÆKNABLAÐIÐ Table III. Causes of death. LBBB Controls P Value Coronary artery disease í 10 N.S. Cardiomyopathy 3 - p<0.02 Cancer 2 7 N.S. Traffic Accidents 1 1 N.S. Cerebral Hemorrhage . - 1 N.S. Total 7 19 N.S. Sudden death 3 7 N.S. körlum og tveimur konum í greinrofshópi og 12 körlum og þremur konum í samanburðarhópi. Tveir karlanna þriggja í greinrofshópnum höfðu háþrýsting og annar þeirra að auki kransæðasjúkdóm og hinn hjartavöðvasjúkdóm. Sá þriðji var með frumsjúkdóm í leiðslukerfinu. Konurnar tvær í greinrofshópi höfðu báðar háþrýsting. Fimm karlanna 12 í samanburðarhópnum með þykknaða sleglaskipt virtust heilbrigðir. Fimm höfðu háþrýsting og fjórir kransæðasjúkdóm, þrír þeirra hvort tveggja. Loks hafði einn karlanna ósæðarlokuþrengsli. Af konunum þremur í sam anburðarhópnum hafði ein ofþykknunarsjúkdóm í hjartavöðva, önnur háþrýsting og hin þriðja virtist heilbrigð. Marktækur munur var ekki á bakveggsþykkt greinrofshóps (1,11 sm±0,15) og samanburðarhóps (1,06 sm±0,16). Einn karl úr greinrofshópi með kransæðasjúkdóm á háu stigi reyndist hafa þykknaðan bakvegg svo og tveir karlar úr samanburðarhópi. Annar þeirra var án annarra merkja um hjartasjúkdóm en hinn var með ósæðarlokuleka. Engin kona hafði þykknaðan bakvegg. Marktækur munur var ekki á þvermáli vinstra forhólfs hjá greinrofshópi (3,45 sm±0,49) og samanburðarhópi (3,35 sm±0,59). Ekki var heldur marktækur munur á massa vinstra slegils (259 g± 101) (254 g±74). Veik fylgni var milli massa vinstra slegils og stærðar vinstra forhólfs hjá báðum hópunum (r = 0,24). Þvermál vinstra slegils í lagbili var mælt með hjartaómriti og reiknað á einn fermetra likamsyfirborðs (Fig. 1) fyrir greinrofshóp og samanburðarhóp (sm/m2). Þvermálið reyndist marktækt stærra í greinrofshópi (2,85 sm/m2 ±0,50) en samanburðarhópi (2,58 sm/m2 ±0,38) (p<0,001). Þeir sem hafa frumsjúkdóm í leiðslukerfinu í greinrofshópi höfðu einnig lítið eitt stærra þvermál (2,65sm/m2 ±0,39) en þeir sem virtust heilbrigðir í samanburðarhópi (2,58 ±0,38). Munurinn er þó ekki marktækur. Þvermálið reyndist aukið (>3,2 sm/m2) hjá sjö körlum og tveimur konum í greinrofshópi. öll nema eitt höfðu þau önnur merki hjartasjúkdóma. Þrír karlanna höfðu hjartavöðvasjúkdóm. Einn þeirra hafði einnig háþrýsting og annar hjartakveisu auk fullkomins leiðslurofs. Þrír aðrir karlanna sjö höfðu kransæðasjúkdóm og hafði einn þeirra fengið hjartadrep og farið í krasnæðaaðgerð. Loks hafði einn karlanna bæði háþrýsting og langvarandi hjartabilun. Önnur konan hafði háþrýsting eingöngu en hin frumsjúkdóm í leiðslukerfinu. í samanburðarhóp höfðu tveir karlar og fimm konur aukið þvermál vinsta slegils á einn fermetra líkamsyfirborðs (>3,2 sm/m2). Annar karlanna hafði háþrýsting en hinn sögu um hjartadrep. Þrjár kvennanna virtust heilbrigðar en tvær höfðu háþrýsting. Hjartarúmmál. Hjartarúmmál mælt af röntgenmynd var reiknað á einn fermetra líkamsyfirborðs ml/m2) (4). Meðalrúmmál greinrofshóps var 457,5 ml/m2 ±81,6 eða nokkru meira en samanburðarhóps, 430,3 ml/m2 ±81,9. Munurinn er þó ekki marktækur (p<0,10). Þegar bornir eru saman þeir sem hafa frumsjúkdóm í leiðslukerfinu í greinrofshópi og þeir sem virtust Diastolic diameter of left ventricle per square meter of BSA (cm/m2) 4.10 3.90 3.70 3.50 3.30 3.10 2.90 2.70 2.50 2.30 2.10 1.90 1.70 LBBB Controls LBBB Normal or + 9 cr + 9 PCD controls Fig. 1. The diastolic L V diameter. From left: All LBBB patients, all controls, LBBB patients with a primary conduction disorder, normal controls. - E T ® P <0.001 s ±5 lí O o

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.